8. feb. 2007

Boltinn
Mínir menn að standa sig í boltanum. 0-4 á útivelli á móti Tottenham og þeir sáu aldrei til sólar í leiknum. Ronaldo er náttúrlega ótrúlegur leikmaður og þó vítið hafi verið fremur ódýrt þá verður að segjast að dómarinn sleppti augljósum vítaspyrnudómi stuttu áður þegar Larsson var teikaður í teignum. Vidic er svo auðvitað baneitraður þarna í hornunum en ég hafði nú samt svolitla samúð með Robinson greyinu að fá á sig mark eftir nokkrar stórkostlegar markvörslur í aðdraganda marksins. Scholes setti svo eitt sem Ronaldo gaf honum eiginlega og Giggs kláraði leikinn endanlega þegar hann sett'ann undir lokin. Ég var að vonast eftir marki frá Larsson en hann gerði svo sem flest annað en að skora í leiknum. Ótrúlega seigur leikmaður. Arsenal og Liverpool halda áfram að skíta í buxurnar en ég er ekki nógu ánægður með hvað Chelsea tekst alltaf að bjarga sér fyrir horn. Það er reyndar ánægjulegt að sjá hvað þeir skora lítið en það gæti skilað sér í óþarfa jafnteflum á móti liðum sem tekst að skora á móti þeim.

Umhverfisverndarendaleysan
Það hlýtur að vera erfitt að hafa ekkert áhugamál í pólitík annað en umhverfismál. Það er nefnilega þannig að umhverfisvernd er áhugamál fólks úr öllum flokkum og hefur ekkert með aðrar pólitískar hugsjónir fólks að gera. Ég held að þeir einstaklingar sem fengjust til að bjóða sig fram í nafni umhverfisverndarhugsjóna yrðu ekki frambærilegir þingmenn því mér virðist sem ötulustu talsmenn umhverfismála séu algerlega stefnulausir í öðrum mikilvægari málum. Umhverfismál ættu að vera sameiginlegt áhugamál fólks úr mismunandi flokkum og rétti vettvangurinn fyrir slíka baráttu eru fjölmiðlar og baráttuhópar en ekki stjórnmálaflokkar sem hafa engan áhuga á öðrum stefnumálum og fá einhverja leigða kosningasérfræðinga til að setja saman eitthvað stefnumálamombodjombo sem þeir nenna síðan ekki einu sinni að kynna sér. Ég mundi persónulega ekki kjósa Ómar eða Andra Snæ. Ég mundi einfaldlega ekki treysta þeim fyrir heilbrigðis-, efnahags- og velferðarmálunum því menn sem láta ástríðu fremur en skynsemi ráða ferð enda yfirleitt í ógöngum.

Nýja vinnan
Mér líst mjög vel á mig á nýja staðnum. Maður er reyndar frekar ryðgaður í skurðlæknisfræðinni sem við er að eiga á vöktunum en dagvinnan er frábær og ég finn strax að það mun nýtast mér vel svæfingunum. Ég er líka að byrja fyrir alvöru að vinna í rannsókninni minni sem snýst um starfsemi nýrnanna í gjörgæslusjúklingum. Það ætti að taka mig 4-6 mánuði að fá einhverjar niðurstöður úr því ef ég held vel á spöðunum.

Engin ummæli: