Boltinn
Víkingar eru ekki alveg að bera virðingu fyrir því að ég hef sterka ættarsögu um hjartasjúkdóma. Ég er ekki ánægður með að þeir skuli geyma það fram í síðustu umferð að redda sér frá falli en þar sem Skagamenn hafa þegar reddað sér held ég að mínir menn séu hólpnir. Sérstaklega í ljósi þess að Grindvíkingar fá FH-inga í heimsókn.
MUFC er líka strax búið að gera veturinn óbærilegan með því að tapa fyrir Arsenal. Það sem verra er, er það að þeir skyldu tapa svona hrikalega verðskuldað. Rassgötin yfirspiluðu þá allan tímann og við fengum ekki nema eitt almennilegt færi og Ronaldo skaut þá beint í hausinn á Þjóðverjagimpinu í markinu.
Utandeildarboltinn
Duffi er að gera góða hluti í umspili fyrir úrslitakeppnina. Vorum að spila við FC Reyni í gærkvöldi. Þeir höfðu verið með einhver ummæli um hversu gamlir við værum á síðunni hjá sér og menn mættu því dýrvitlausir til leiks. Ég sá reyndar ekki nema seinni hálfleikinn en hann var rosalegur. Ég hef ekki séð svona yfirburði í utandeildinni áður. Það var alger einstefna að marki FC Reynis og í einu skiptin sem þeir komu boltanum yfir miðjuna þá hljóp litli fljóti framherjinn þeirra með boltann út í horn og datt. Ótrúlega dapurt og sennilega það slakasta sem ég hef séð í sumar. Við eigum síðan leik við Melsteð á morgunn og ég ætla að reyna að mæta þó ég hafi legið í bælinu í dag veikur.
Rockstar Supernova
Hef aðeins þetta um málið að segja. Magni var sjálfum sér, fjölskyldu sinni, landi og þjóð til sóma og við eigum að vera stolt af honum. Vona að hann rokki áfram svo við fáum að heyra alvöru tónlist af vörum hans en ekki þetta pí#uvæl sem hann hefur verið að syngja með Á móti sól.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli