Gleðilegt ár og takk fyrir gamla!
Já, nú er komið enn eitt nýárið. Janúar er skemmtilegur mánuður. Hann ber með sér marga skemmtilega atburði. Í ár er sá fyrsti brúðkaup þeirra Árna Gríms og Steinunnar á laugardaginn en á sunnudaginn eigum við Edda svo eins árs brúðkaupsafmæli. Tíminn er fljótur að líða. Þá verður Óttar bróðir líka 37. Janúar er líka mánuðurinn sem ég er mikið í símanum að tala við apótek. Þannig er nefnilega mál með vexti að lyfseðlar duga bara í 1 ár frá útgáfudegi og ég er mjög lengi að átta mig á áraskiptum og skrifa því lengi fram eftir mánuðnum gamla árið með dagsetningunni. Þannig eru seðlarnir í raun útrunnir um leið og ég skrifa þá. Súrt að vera svona utan við sig stundum.
Vellyktandi
Við Edda höfum þann sið að kaupa dýrasta skoruþerrinn í búðinni yfir hátíðirnar. Um þessi jól reyndist hann vellyktandi og jólasteikin hefur því ferðast um blómlega haga á leið sinni til fiskanna. Alltaf gott að hafa botninn vellyktandi.
Áramótapartý
Við skötuhjúin héldum heljarinnar teiti hér á gamlárskvöld og nýársnótt. Við byrjuðum á að bjóða tengdó og Möggu í mat auk þess sem Viðar kom þar sem hann var ekki boðinn til tilvonandi tengdaforeldra sinna á Álftanesinu og foreldrar hans voru í sveitasælunni. Við höfðum Nautalund Wellington sem var frumraun og þótt innpökkunum heppnaðist ekki alveg var maturinn ljúffengur á bragðið þó ég segi sjálfur frá. Edda gerði svo stórkostlega súkkulaðiköku í eftirrétt. Síðan var horft á skaupið sem var svo sem allt í lagi, svolítið steikt en ekki nógu að mínu mati. Stundum er betra að fara bara með steikina alla leið. Svo skutum við upp flugeldum í kapp við nágrannana og svo var tekið á Konna og ölinu fram eftir nóttu. Það var fámennt en góðmennt. Gott partý.
Hörmuleg hestaslys
Það hafa verið skelfileg hestaslys á þessu ári. Fjöldi mænuskaða og a.m.k. tvö dauðsföll, það síðasta var nú rétt fyrir áramótin þegar Jóhanna Björnsdóttir blóðmeinafræðingur og kollegi minn fannst látin eftir útreiðartúr. Ég vann nú ekki mikið með henni Jóhönnu en talaði töluvert oft við hana í síma og hún var mjög viðkunnaleg kona. Blessuð sé minning hennar.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli