Boltinn
Áfram halda mínir menn á sigurbraut, nú með glæsilegum sigri á erkifjendunum í City. Frábær mörk eftir góðan undirbúning og reyndar spiluðu varnarmenn City stóra rullu í mörkunum þremur líka. Það er alltaf gaman að þessum leikjum en ég verð nú að viðurkenna að ég hef verið fremur pirraður á City sl. ár því þeir hafa verið að hirða heilmikið af stigum af okkur á Old Trafford sem er alltaf vont. En gærdagurinn er eiginlega magnaðastur fyrir stórglæsilegt mark Matthew Taylor fyrir Portsmouth gegn Everton. Menn skora svona mörk sennilega bara einu sinni á ævinni ef þeir eru heppnir og þá sennilega á æfingu. Svo nær fullkomnuðu Rassenalmenn helgina með því að ná jafntefli við Chelsea á Brúnni. Það hefði verið rosalegt hefði þeim tekist að vinna en þrumufleygurinn hans Essien kom í veg fyrir það. Það var líka rosalegt mark.
Hálfvitar sem eiga heima bak við lás og slá
Fréttir af hálfvitum sem voru með skæting við lögreglumenn á slystað um helgina og helgina áður eru vægast sagt sláandi. Að menn skuli ekki bera meiri virðingu fyrir líðan og heilsu annarra að þeir ekki aðeins hjálpi ekki til á slysstað heldur vægast sagt geri björgunar- og rannsóknarmönnum erfiðara fyrir er náttúrlega alveg með ólíkindum. Mér finnst reyndar að það eigi bara að vera regla að taka svona fólk til yfirheyrslu og sekta með háum fjárhæðum þá sem verða uppvísir að því að raska slysstað eða hindra störf þar. Við vorum síðan að hlusta á síðdegisútvarp Bylgjunnar á leiðinni í ræktina í dag og þar lét einhver hálfviti þá skoðun sína í ljós að lögreglan ætti að taka meira tillit til þeirra sem bíða í svona röðum. Þessu er ég algjörlega ósammála. Auðvitað er mikilvægt að lögreglan taki tillit til hins almenna borgara en þegar aðstæður eru svona þá getur hún ekki verið að hugsa um hvað einhverjir hálfvitar í röðinni eru að pæla, það tefur bara störf á vettvangi. Það eina sem gildir er að loka fyrir umferð og klára rannsóknina, sama hversu langan tíma hún tekur. Ég vona bara að þetta fólk sem var með læti í röðinni fari að fordæmi ólátabelgsins sem hringdi í lögregluna og baðst afsökunnar. Batnandi mönnum er best að lifa.
Sömu skoðun hef ég á þeim mönnum sem hafa hótað þeim lögreglumönnum líkamsmeiðingum sem voru viðstaddir þegar berserkurinn af Hótel Sögu lést í vörslu þeirra. Ég leyfi mér að efast um að menn sem velja sér að starfa innan lögreglunnar á Íslandi hafi áhuga á því að drepa aðra menn, hversu illa þokkaðir sem þeir kunna að vera. Mér skilst líka á fréttum að lögreglan hafi brugðist hárrétt við og hafið rannsókn á þessu máli sem sakamáli strax og ljóst var hvað hafði gerst. Mér finnst að menn sem ógna lögreglumönnum eigi heima í klefanum við hliðina á fábjánunum sem trufla störf á slysstað og þó. Þeir eiga bara heima á Hrauninu. Það breytir því hins vegar ekki að ungur maður lést eftir ryskingar við umboðsmenn ríkisvaldsins og alveg eins og þegar fólk deyr í aðgerðum án þess að nokkur mistök hafi átt sér stað finnst mér að það eigi að sjá fyrir börnum mannsins að einhverju leyti.
Nostalgía dauðans
Ég hef sl. daga og vikur verið að aðstoða bróðurson minn í prófunum í 3ja bekk í MR. Hann er búinn að standa sig vel miðað við það að hann flutti heim til Íslands eftir 8 ára búsetu í Noregi í haust. Íslenskan er aðeins að vefjast fyrir honum en að öðru leyti hefur honum gengið ágætlega. Það verður gaman að sjá einkunnaspjaldið hans. Ég held að stráksi komi á óvart.
Ræktin
Fjórða tilraun til heilbrigðara lífs hófst í gær. Ég er alltaf að reyna að koma mér í gang og hef fengið skötuhjúin Viðar og Gunnar til að drífa mig upp úr sleninu. Lyfti í gær og tók síðan þolið í dag. Það var svo sem ekki merkilegt, hljóp 5,5 km á 40 mínútum. Ætla mér að ná 7 km á 45 mínútum áður en erfinginn kemur í heiminn. Auk þess skal vera þvottabretti á maganum, helköttaðir upphandleggir og mökkskornir brjóstvöðvar. Ætti kannski að spara yfirlýsingarnar en planið er að verða í hörkuformi næstu tvö sumur og klára knattspyrnuferilinn með sæmd hjá Duffa. Vonandi tekst það.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli