26. feb. 2007

Chels$ky deildarbikarmeistarar

Chelseamenn lyftu deildarbikarnum í gær við lítinn fögnuð tengdafjölskyldunnar. Svenni mágur, Magga og Elín Helga horfðu víst saman og voru ekki kát. Ég sá ekki mikið af þessum leik en ég er búinn að sjá mörkin, slagsmálin og þegar Terry sleikti ilina á Diaby. Mér fannst nú sumir Chelseamennirnir sleppa ansi ódýrt eftir slagsmálin í lokin en allir sem fengu rautt áttu það nú skilið. Spurning hvort Lampard hefði ekki mátt fá reisupassann líka en það er erfitt fyrir dómarann að sjá svona lagað. Chelsea tóku sem sagt fyrsta stóra titilinn þetta árið og ég vona að það verði jafnframt sá síðasti sem þeir taka í ár.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ade hefði alls ekki átt að fá rautt, gerði ekkert nema að reyna stöðva slagsmál leikmanna... Enda höfum við áfrýjað spjaldinu, sagt er að dómarinn hafi ruglast á honum og Eboue sem er ótrúlegt ef satt reynist!! Essien hefði nú líka mátt vera búinn að fjúka út af í leiknum, tæklaði Baptista frá læri og upp í bringu... En skemmtilegur leikur samt sem áður, gaman að sjá unglingalið arsenal(meðalaldur 21 ár) taka a lið chelsea í bakaríið í fyrri hálfleik og í rauninni fyrstu 70 mín!!

Nafnlaus sagði...

Átti ekki að vera nafnlaust komment, kann bara ekki alveg á þetta kommentakerfi, en þú hlýtur að hafa fattað það gísli að það var ég sem skrifaði það ;)

Magga

Gísli Björn Bergmann sagði...

Ósammála. Það sést á myndbandinu þegar adebayour slær til leikmanns chelsea. Hins vegar átti Lampard að fá rautt líka ef sanngirni er gætt. Held bara að þetta hafi engu máli skipt. Var ekki leikurinn búinn hvort strax á eftir?

Nafnlaus sagði...

Nei það var eitthvað eftir af honum, var samtals 102 mín og þetta var á 95 eða eitthvað. Það er búið að segja að Ade hefði ekki átt að fá rauða heldur Eboue, Ade er samt kærður vegna þess að hann neitaði að fara útaf, en hann átti í fyrstu ekki að fá rauða spjaldið. Hversu lélegt er það af dómara leiksins!
Magga

Gísli Björn Bergmann sagði...

Aftur er það ekki rétt hjá þér. Í dag var dæmt að rauða spjaldið hjá Adebayour skildi standa auk þess sem hann verður kærður fyrir hitt allt saman. Eboue er svo í djúpum skít. Persónulega skil ég ekki afhverju Lampard og Fabregas eru ekki grillaðir líka. Hægt að sjá video af þessu á ruv.is í helgarsportinu á sunnudagskvöld.