Kominn heim frá Noregi
Jæja! Þá er maður kominn heim frá Noregi eftir 12 daga sumar og sól - beint í yndislega sumarveðrið á Íslandi. Það var reyndar sæmilegt í gær þegar við komum en nú rignir bara og rignir. Gott fyrir gróðurinn en súrt fyrir okkur hin. Annars held ég að öll þessi rigning geri gróðrinum ekkert sérlega gott ef sólin skín ekki inn á milli. En hvað um það. 5 dagar eftir í vinnu og svo er það bara sveitasælan í næstu viku. Ég verð sem sé á Hamarsheiði frá 1. ágúst og sennilega alveg fram til 11. en þá er fyrirhugað að fara norður í Hrísey með Garðabæjargenginu. Það er nú að verða hefð hjá þessum hóp að kíkja í Hrísey í ágúst (annað árið í röð) og við Edda hlökkum mikið til enda komumst við ekki í fyrra í margrómaða ferð. Síðan er ný vinna eftir sumarfrí þar sem ég hef árs rotation á lyflækningadeildum LSH. Byrja á lungnadeildinni og svo mun ég taka 2ja mánaða bunur á hverri deildinni af annarri út júlí 2007. Síðan er stefnan tekin á svæfinguna á Hringbraut eftir það í a.m.k. hálft ár. Síðan fer maður að huga að sérnámi.
"Sérfræðingar í fréttum"
Í gær var ég að hlusta á fréttirnar á Rás 2 og þar var verið að fjalla um málefni Ísraels og Líbanon og áhrif Bandaríkjanna á þær deilur. Þar var kallaður til einhver stjórnmálafræðingur sem var sagður sérfræðingur í málefnum landanna fyrir botni Miðjarðarhafs. Í fyrsta lagi var ekkert farið ofan í saumanna á því hvers vegna þessi hálfbjáni var svona mikill sérfræðingur og því varð innlegg hans í umræðuna strax hálfkjánalegt. Hérlendis virðist vera nóg að menn hafi áhuga á einhverju sviði og lesi kannski eina erlenda vefsíðu um málefnin til að teljast sérfræðingar. Ekki skánaði það síðan þegar viðtalið hófst því þessi maður, sem vel getur verið vel að sér um málefnin þarna suðaustur frá, sagði ekkert annað en "menn telja..." og "það er talið...". Fréttamaðurinn hafði nú ekki vit á því að ganga svolítið á sérfræðinginn og pumpa hann svolítið um hvaða menn þetta voru sem telja allan þennan andskota. Fréttaflutningurinn hérna er því miður litaður af því að fréttamennirnir eru ekki nógu grimmir. Svona lagað mundu menn aldrei komast upp með hjá metnaðargjörnum hlutlausum fréttastofum erlendis. Nú var ég reyndar sammála flestu því sem sérfræðingurinn sagði um að áhrif ísreala væru sterk í Bandaríkjunum vegna fjölda gyðinga þar en það er ekki þar með sagt að skoðanir manna séu heilagur sannleikur og eigi að predika í fréttatímum. Menn verða að gera greinarmun á því hvort sérfræðingar eru spurðir eftir skoðunum sínum, annarra eða bláköldum harðsönnuðum staðreyndum. Skoðanir eru fyrir fréttaskýringaþætti en staðreyndir fyrir fréttatíma.
Ég ætla að drífa mig í vinnuna áður en ég fer að pípa eins og hraðsuðuketill. Reyni að blogga eitthvað á næstunni en vera mín í sveitinni gæti slegið slíkum framkvæmdum á frest. Þar til síðar.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli