1. des. 2006

Sautjánda endurlífgun Ljós-Gíslans
Ætli ég reyni ekki enn eina endurlífgunina á blogginu. Ég hef verið einstaklega latur við skriftir sl. vikur þrátt fyrir að tölvukostur heimilisins hafi tvöfaldast síðan síðasta færsla var skrifuð. Ég festi sem sagt kaup á nýrri tölvu fyrir nokkrum vikum. Þetta er Dell inspiron og ég er bara þrusuánægður með hana. Hef auðvitað sleppt mér aðeins í tölvuleikjum sl. vikur en er að verða saddur í bíli. Var búinn að næla mér í FM 2007, Call of Duty 2 og Need for Speed Carbon. Allt saman ágætis leikir en nú ætla ég að leggja þeim aðeins í bili. Þá verður maður að hafa eitthvað fyrir stafni svo ætli ég reyni ekki að blogga svolítið.

Baggalútur
Er að hlusta á Jól og Blíðu með þeim félögum og þetta er náttúrlega bara tær snilld. Ég er sérstaklega hrifinn af Rjúpur og Jólajólasveinn. Þessir snillingar virðast vera ótæmandi uppspretta af snilldarlegum rugltextum.

Þórunn Lárusdóttir
Hann er líka frábær nýi diskurinn með Þórunni og Friðrik Karlssyni. Það virðist vera í tísku að taka þessi gömlu íslensku dægurlög og gefa þau út á disk.

Brúðkaup
Mikið af brúðkaupum þessar vikurnar. Haffi og Hrefna gengu í það alheilagasta um síðustu helgi og tókst það með eindæmum vel. Skemmtileg og falleg athöfn í Dómkirkjunni og síðan var frábær athöfn í sal Ferðafélags Íslands í Mörkinni. Ég hef aldrei komið í þennan sal en hann er mjög skemmtilegur fyrir svona veislur, opinn og rúmur. Í stuttu máli var veislan hin ágætasta líka, frábær matur, góðar ræður og sérdeilis prýðileg súkkulaðikaka í eftirrétt. Ég og Heiðar héldum uppi heiðri Garðabæjargengisins, Heiðar flutti frábæra ræðu og ég afhenti Maka enda handhafi hans í tæpa 11 mánuði. Þorgeir er nú sá úr hópnum sem hefur átt bikarinn lengst en Viðar skemmst enn sem komið er. Haffi mun þó bæta það met því hann nær aðeins að hafa bikarinn í rúman mánuð sem stofustáss því Heiðar ætlar að ganga í hnappelduna 30. desember og verður þá handhafi bikarsins. Hann verður svo að treysta á að Jói og Guðrún eða Gissur og Lára drífi í þessu fljótlega því Gunni, Viðar og Sjonni eru allir dottnir í piparsveinasukkið, djamma allar helgar og ekkert gagn í þeim hvað giftingar varðar á næstunni. Kötturinn hefur reyndar verið með veiðihárin á lofti eins og Gunni með radarinn opinn en þeir hafa eftir því sem ég best veit ekki gert neinar framtíðaráætlanir með baugfingurshandjárnum. Þeir eru hins vegar orðnir svo óaðskiljanlegir að við hjónin köllum þá aldrei annað en skötuhjúin.

Boltinn
Mínir menn standa sig sæmilega í deildinni en ég er reyndar ekki nógu ánægður með að hafa tapað stigum á móti bæði Arsenal og Chelsea á heimavelli. Það þýðir að við eigum tvo gríðarlega erfiða leiki eftir áramót, þ.e. Chelsea á Brúnni og Arsenal á Emirates. Það verður erfitt.

Jæja læt þetta gott heita í bili en reyni að láta ekki líða 2 mánuði þangað til ég skrifa aftur.

Engin ummæli: