Pólítíkin
Ingibjörg Sólrún virðist alveg búin að missa það. Eftir að hún tók sér frí og fór að læra meira hefur færst yfir hana þessi menntasnobbsyfirlætisangan sem svo gjarnan einkennir hámenntaða vinstrimenn. Hámenntaðir vinstri menn finnst mér alltaf svolítið spaugilegir því mér finnst þeir alltaf svo ótrúverðugir. Ég mundi miklu frekar kjósa verkalýðsforingjann sem hefur unnið 400 daga á ári og á sautján börn með æskuástinni sinni heldur en einhvern uppskafinn vinstrisinnaðan háskólamann. Þeir eru bara miklu trúverðugri. Kannski er ég gamaldags og vil að veröldin sé bara sama gamla ríku hægri, fátæku vinstri ímyndin. Þetta er orðið svo flókið núna eftir að allir flokkarnir færðu sig inn á miðjuna, Sjálfstæðisflokkur frá hægri og vinstri flokkarnir frá vinstri. Um leið hefur gamli miðjuflokkurinn Framsókn einhvern veginn sokkið í niðurfallið og er nú í endalausum lífsbáráttuspíral í hringiðu niðurfallsins. Til allrar hamingju fyrir þá var Alfreð Þorsteinsson búinn að rústa holræsakerfinu og yfirtaka Orkuveituna þannig að öll niðurföll borgarinnar eru hálfstífluð og taka illa við svona hroða. Við þurfum að fá okkur svona tætara eins og eru á öllum góðum heimilum í henni Amríku.
Vaktin
Ég er á næturvöktum um helgina ásamt Ingólfi Ozon. Vona að það verði rólegt svo maður geti lagt sig og gert eitthvað úr deginum en það er svo sem ekki algengt. Kannski maður nái í það minnsta að sjá leikinn á morgunn.
Eru allir hættir að lesa?
Það hafa ekki komið nein komment á síðustu tvær færslur og Ljós-Gíslinn er farinn að hallast að því að allir séu búnir að gefast upp á honum. Slíkt er ekki óhugsandi enda hefur oft liðið langt á milli færsla. Sjáum hvort við fáum ekki einhvern til að rífa sig yfir þessum skrifum.
Buffið gengið út
Já, hvort sem þið trúið því eða ekki þá er buffið gengið út. Hann hefur sést með ónefndri dömu (ath! ekki Safapressunni) í öllum helstu kvikmyndahúsum borgarinnar upp á síðkastið. Ólyginn sagði að hann hefði m.a.s. farið í áttunda skipti á The Departed án þess að segja stúlkunni frá fyrri kynnum sínum af myndinni. Áform Buffsins og Safapressunar um sambúð eru í uppnámi að sögn vina Safapressunnar og hann lifir nú milli vonar og ótta að fregnir af tilvonandi brullupi Buffsins seint í næstu viku séu úr lausi lofti gripnar. Undirbúningur ku þó vera svo langt á veg kominn að tilvonandi brúður hafi sést nær daglega ásamt þreknum einkaþjálfara í Laugum upp á síðkastið. Sögusagnir segja að um bróður Buffsins sé að ræða en líklegt verður að teljast að Buffið sjálft sé þar á ferðinni enda þeir bræður sláandi líkir. Meira um þetta mál síðar.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli