22. feb. 2007
Vinnan
Þá er ég búinn að vera hér í rúmar þrjár vikur á háls-, nef- og eyrnadeildinni (HNE) og líkar bara nokkuð vel. Það er auðvitað alltaf þannig þegar maður byrjar á nýjum stað að maður er algjör bjáni og þarf aðstoð og kennslu við minnstu viðvik en svo kemur þetta hægt og bítandi. Annars hefur verið svo mikið að gera hjá mér að ég hef því miður haft lítinn tíma til að lesa fagið. Það stendur til bóta. Maður reynir að glugga í þetta á vöktunum en oft er svo mikið að gera að það er lítið hægt að lesa.
2 ummæli:
Ég varð bara að athuga hvort þetta virkar. Það segir enginn neitt hérna.
Duglegur ertu að blogga ástin mín.
Ég og bumbubúinn eigum eitthvað erfitt með að sofa og þú ert í vinnunni núna. Okkur langaði bara
að segja hæ......
Skrifa ummæli