5. sep. 2003

Sælir kæru aðdáendur
Ég hef því miður ekki getað staðið undir væntingum ykkar um skrif á þennan vef sl. daga sökum gífurlegrar fíknar í tölvuleik sem heitir Rise of Nations. Ég hef nú tekið á því vandamáli með því að eyða leiknum út úr tölvunni og mun ekki spila hann framar eða a.m.k. ekki fyrr en ég hef lokið skuldbindingum mínum gagnvart HÍ og öðrum. Ég hef einnig eytt tölvuleikjunum CM4 og Colin McRae 2 út úr tölvunni og bý ný einungis við þann munað að geta spilað Tetris í einhverri millennium útgáfu.

Síðan síðast hef ég lokið vinnu minni á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og skólinn er hafinn að nýju. Ég hef ekki verið duglegur að fara þangað m.a. vegna veikinda en líka vegna þess að fyrirlestrarnir eru leiðinlegir, a.m.k. töluvert leiðinlegri en Rise of Nations. Nú hef ég hins vegar enga afsökun og mun mæta samviskusamlega í næstu viku jafnvel þótt ég hafi enga trú á fyrirlestrum sem kennsluformi.

Ég fór líka að heimsækja rauðhærða prímadonnu í vesturbæinn á sl. mánudag en það er hin stórmyndarlega Erla Hlín Guðmundsdóttir Jörgensen en það er dóttir Rögnu bekkjarsystur minnar og Gumma mannsins hennar fyrir ykkur sem eruð fáfróð um þessa hluti. Í stuttu máli er þarna um þvílíka prinsessu að ræða að annað eins hefur varla sést, rauðhærð og brosmild eins og mamman en svipurinn er að stórum hluta frá pabbanum þó Ragna eigi kannski nebbann. Vonum að það breytist :).
Til hamingju með prinsessuna Ragna og Gummi.

Leikurinn...
...á morgunn er stórt spurningarmerki og ég held að sigur okkar manna velti eingöngu á því hversu vel Eiður nær sér á strik. Ég vona að Ásgeir hafi vit á því að stilla Veigari Páli upp með Eiði frammi og síðan ætti miðjan að vera a.m.k. Þórður og Jóhannes bróðir hans. Í vörninni verður hrossið vonandi en það er ómögulegt að segja hver verður með honum. Vonandi ekki Lárus Orri sem hefur alltaf haft lag á að klúðra svona mikilvægum leikjum fyrir okkur.

En úr því ég er að tala um boltann þá held ég að ég verði aðeins að koma ensku að. Mínir menn byrjuðu ágætlega og kláruðu Bolton heima og Newcastle úti en síðan rétt mörðu þeir Úlfana og töpuðu loks fyrir Southampton þar sem þeir gátu ekki rassgat. Vonandi verður liðið skárra í næstu leikjum en það er svo sem ekkert nýtt að þeir byrji illa. Ég gæti vælt í allt haust yfir meiðslum eins og Arsenal-aðdáendur gerðu í vor en það er ekki háttur okkar United manna. Við bíðum bara vors og sjáum hvað setur.

24. ágú. 2003

Jæja
Þetta er búin að vera fín helgi. Á föstudaginn náði ég loks að heimsækja gamla manninn sem varð sextugur á miðvikudaginn. Síðan var farið í heimsókn til Svenna mágs og Kötu konunnar hans í nýja húsið þeirra á Nesbala á Seltjarnarnesi. Á laugardagsmorgunn fékk ég þá fáránlegu hugmynd að fara í þvottahúsið kl. 8 um morguninn (sem ég geri aldrei aftur). Það var síðan fyrsi laugardagsbolti vetrarins í hádeginu þar sem mæting var slæleg en varamenn redduðu málunum. Síðan kom hingað rafvirki að unita ADSLið mitt sem er nú orðið snilld með þráðlausu neti og látum. Strax eftir það fór ég á hestbak með kallinum og um kvöldið var síðan grillað. Á eftir kom Ingólfur ásamt Sverri hingað heim og við horfðum á Pianistann sem ég dæmi hér á eftir.

Der Klavierspieler
Snilld og aftur hrein snilld. Besta mynd sem ég hef séð síðan As Good as it Gets var og hét. Þessi mynd er alveg hrikalega óhugguleg og maður á nú erfitt með að trúa því að Þjóðverjar hafi verið svona rosalega illir. Adrian Brody átti klárlega skilið að fá Óskarinn fyrir þessa frábæru túlkun og Roman Polanski fyrir leikstjórn þrátt fyrir að hann sé dæmdur barnaníðingur. Myndin fær klárlega 5 bolta, alla í skeytin og inn.

Í dag...
...fór ég svo í skírn hjá móðurbróður hennar Eddu en hann var að skíra sitt fjórða barn. Stúlkan litla fékk nafnið Heiðrún Edda í höfuðið á ömmu sinni (þeirri sömu og Edda heitir í höfuðið á) og líklega vínbúðinni í Árbæ þrátt fyrir að foreldrarnir þvertaki fyrir það :). Nú er ég að undirbúa mat fyrir settið en við ætlum að bjóða þeim í kjúlla og franskar a la mama mia.

United...
...voru sterkir í gær þegar þeir tóku Newcastle í kennslustund þrátt fyrir ótrúlegan heimadómara. Þessi Rennie karakter er nú það versta gimp sem ég hef á ævi minni séð dæma. Hann hefur alltaf verið með rosalega heimadómgæslu þegar ég hef séð hann dæma. En við unnum samt og vermum toppsætið ásamt Rómanveldi og frönsku herdeildinni. Arsenal voru suddalega góðir á móti Boro í dag og þeir verða örugglega ofarlega í deildinni í vetur ásamt United, Chelsea og Newcastle. Ég hef ekki trú á Liverpool á meðan franska fyllibyttan er við stjórnvölinn. Ég spái því að United sigri, Arsenal verði stigi á eftir en Chelsea og Newcastle verða í 3-4 sæti u.þ.b. tíu stigum á eftir toppliðunum. Henry verður markahæstur ásamt Crespo en Nistelrooy verður annar. Hann verður hins vegar markahæstur í Meistaradeildinni eins og í fyrra.

21. ágú. 2003

Var búinn að skrifa langt blogg en það eyddist. Nú nenni ég ekki meir og er farinn að sofa.

18. ágú. 2003

Helgin...
...var fín. Byrjaði með tiltölulega rólegri vakt á föstudaginn en síðan kom ég heim á laugardaginn og horfði á mína menn taka Bolton í litla kennslustund í því hvernig maður á að kaupa unga leikmenn. Nánar að því á eftir. Síðan var tekinn "smá" göngutúr. Við Edda lögðum efst í Stórholtinu þar sem móðursystir hennar á heima og löbbuðum alla leið niður í miðbæ. Þar skoðuðum við meðal annars háskólasalinn í gamla Top Shop húsinu þar sem vinnufélagi Eddu var að syngja í hljómsveit og Króatinn var að segja hvernig vetnisrafall virkaði. Labbaði síðan nokkra hringi í miðbænum og lenti á endanum inni í fornbókabúðinni Gvendi dúllara og keypti mér tvær vel með farnar Laxness-bækur í safnið. Það var endurminningabókin Í túninu heima og ritgerðasafnið Upphaf mannúðarstefnu. Var reyndar svolítið svekktur því mig minnti að ég ætti Kristnihaldið en þegar heim kom sá ég að svo var ekki. Það var nefnilega nánast ósnert eintak af henni þarna sem hefði verið 1200 kallsins virði. Bendi þeim sem hafa áhuga á slíkum bókmenntum að maður getur fengið mjög vel með farin eintök á þriðjungi af því sem þau kosta ný.
En hvað um það. Við héldum síðan heim á leið því til stóð að Þór og Íris og Króatinn kæmu í grill. Við grilluðum snilldarlega borgara að hætti hússins og drukkum svolítið með því. Síðan fór Ingvar í bæinn samferða Þór og Írisi sem voru á heimleið en við Edda töltum á leiguna og leigðum þá úrvalsræmu Gangs of New York. Eitthvað rámar mig í að annað hvort Þorgeir eða Önni hafi verið að kvarta undan byssuleysi í bardögunum en það kemur einmitt fram í myndinni að klíkurnar gerðu með sér samkomulag um að nota slík vopn ekki. Lewis og DiCaprio voru góðir og Diaz var skárri en vanalega. Gef myndinni 3 bolta (sjá að neðan).
Á sunnudaginn var ég síðan rifinn upp kl. 9 til að fara með pabba í bíltúr austur fyrir fjall að sækja hesta og heimsækja vinafólk okkar. Það var ekki það ég vildi ekki fara heldur er ég ekki sérstaklega sprækur morguninn eftir hálfa rauðvín. Ferðin var hin ágætasta og við vorum komin í bæinn í tæka tíð til að sjá Chelsea taka Liverpool á Anfield sem var gaman. Síðan vorum við boðin í mat hjá settinu í gærkvöldi þar sem grillaður var dýrindis svínahnakki. Edda fékk makeover í kaupæti og bara allir sáttir.

Einkunnagjöf
Er að spá í að taka upp mína útgáfu af einkunnagjöf hér á síðunni þar sem gefnar verða einkunnir fyrir allan djöfulinn. Mun kerfið virka þannig að gefnir verða 0-5 boltar fyrir frammistöðu. Kerfið verður kannski þróað frekar síðar.

Manchester United vs. Bolton
Mínir menn voru nú ekki mjög sannfærandi í þessum leik og það verður ekki sagt að 4-0 sigur hafi verið sanngjörn úrslit. 2-0 hefði kannski verið nær lagi. Það var hins vegar undrabarnið Ronaldo sem var fegurð dagsins því leikur United lifnaði allur við þegar hann kom inn á og þó það sé kannski fullmikið sagt að hann hafi átt þátt í mörkunum þá var það nú samt þannig að hann opnaði leikinn fyrir United og skapaði plássið sem þurfti til að skora mörk. Ég held hann verði stjarna en ég sakna samt Verons. Hann er snillingur. Mínir menn fá 3 bolta fyrir góðan endasprett. Ef ekki hefði verið þessi endasprettur og leikurinn hefði endað 1-0 þá hefði ég gefið þeim einn bolta.
NIÐURSTAÐA: 3 boltar.

11. ágú. 2003

Jæja!!!
Þá er byrjuð ný vika. Ég á bara þrjár vikur eftir í vinnunni og get ekki beðið eftir að skólinn byrji. Ég er búinn að vinna svolítið stíft síðustu vikurnar og ég er orðinn frekar þreyttur á þessu en maður verður víst að venja sig við þetta því svona tarnir eru það sem koma skal hjá manni.

Samfélagsskjöldurinn
Ánægður með mína menn í gær. Fannst þeir spila vel og voru betra liðið á vellinum. Dómarinn var úti að steikja í gær. Fyrst sleppti hann Ashley Cole með viðvörun fyrir að sparka í Ole Gunnar Solskjær þegar hann hefði átt að gefa honum beint rautt eða að minnsta kosti annað gult spjald. Síðan hætti hann að vera skv. sjálfum sér þegar hann gaf Scholes gult fyrir svipað brot. Síðan fór Phil Neville í þessa ljótu tæklingu sem verðskuldaði nú alveg gult á góðum degi en dómarinn ákvað að sleppa honum við það. Jeffers var hins vegar ekki sáttur og sparkaði í bæði hausinn og lappirnar á Phil og fékk fyrir vikið rauða spjaldið. Örstuttu seinna tók Djemba svolítið vilt skot og það vildi þannig til að skotfóturinn fór í lærið á Sol Campbell. OK kannski var Djemba ekkert að reyna að sleppa við Campbell og það hefði alveg mátt veifa gula spjaldinu á hann en Campbell sparkaði í rassinn á Djemba í staðinn og átti að sjálfsögðu líka að fá rautt. Það er því kannski hægt að segja að þetta hafi jafnast út. Scholes og Neville hefðu getað fengið rautt en Campbell og Cole áttu tvímælalaust að fá rautt. Það hefði verið magnað að sjá 5 rauð í Samfélagsskyldinum sem á nú að heita vináttuleikur.
Annars var ég ánægður með Scholes sem mér fannst besti maður vallarins en það er ekki hægt að horfa fram hjá frammistöðu varnarinnar hjá United sem var frábær í leiknum sem og Keane sem var aftur kominn í gamla formið sitt og pakkaði saman Vieira á miðjunni. Howard varði síðan vel í vítaspyrnukeppninni og stimplaði sig vel inn í liðið.

6. ágú. 2003

Sorg!
Fíflið hann Ferguson hefur ákveðið að selja Seba Veron. Hversu mikið fífl getur maðurinn verið. Hann er búinn að selja besta miðjumanninn sinn nokkrum dögum áður en hann spilar fyrsta leikinn á tímabilinu. Það er eiginlega orðið of seint að kaupa nýjan leikmann. Ég hafði enga trú á því að hann seldi Veron úr því að við fengum ekki Ronaldinho en sumir eru greinilega búnir að missa það. Ég vona bara að þeir gangi frá einhverjum alvöru kaupum á næstu vikunni því annars fer titillinn fyrir lítið held ég. Þá er kannski eina vonin okkar að þessi Darren Fletcher brilleri og verði einhver stjarna. Ég mun gráta mig í svefn í kvöld.

4. ágú. 2003

Ferðasaga, brúðkaup og fleira skemmtilegt
Nú hef ég ekkert bloggað í rúman hálfan mánuð og þetta gengur ekki lengur. Það sem hefur drifið á daga mína síðan þá er töluvert. Í vikunni eftir síðustu færslu slóst í ég í för með foreldrum mínum, bræðrum og fjölskyldum þeirra í hestaferð um há- og láglendi Suðurlands. Var ek í för þeirri frá þriðjudagseftirmiðdegi og fram á föstudag þegar við héldum til Reykjavíkur á vit ævintýranna. Hestaferðin var yndisleg. Við gistum fyrstu nóttina í Smáratúni í Fljótshlíð sem er svolítið vestan við Hlíðarenda. Daginn eftir riðum við inn að Einhyrningi þar sem er gangamannakofi en fyrir ókunnuga er þetta á vestari bakka Markarfljóts aðeins innan við þar sem Húsadalsskálarnir eru á eystri bakkanum. (Vá þetta var flókið). Daginn eftir riðum við svo í grenjandi rigningu upp með og oft yfir Markarfljót og enduðum um kvöldið í Landmannahelli sem er rétt við Heklu og Dómadalsleið. Það var síðasta nóttin okkar Eddu í ferðinni því við höfðum afráðið að fara föstudaginn 25. júlí í bústað með félögum mínum úr Garðabænum. Þegar allt kom til alls treystum við okkur til að fara það kvöld og höfðum það notalegt í Hólmgarðinum um kvöldið en fórum síðan upp úr hádeginu í bústað sem Skutullinn hafði útvegað á Hvítárvöllum í Borgarfirði þar sem hann og bróðir hans stunda þá miður karlmannlegu iðju að sussa á fiska allan daginn. Við sem vitum hvað karlmennska snýst um kneyfuðum öl og grilluðum ket. Þorgeir og Önundur komu tómhentir heim og Hrefna eldaði handa þeim dýrindis grill. Þorgeir horfði reyndar á ketið grillast en allir viðstaddir vita að Hrefna átti heiðurinn. Síðan var brennt í bæinn á sunnudeginum eftir vel heppnaða ferð. Vikan fór síðan að mestu í vinnu og veikindi því aldrei þessu vant tókst mér að verða veikur á fimmtudaginn. Ég er nú ekki enn búinn að jafna mig en hafði þó heilsu til vinnu á föstudag og hélt síðan mikla teiti um kvöldið þar sem Garðbæingum var boðið að skoða hýbýli okkar Eddu. Eitthvað var mætingin dræm en þar var góðmennt að vanda. Síðan var brúðkaup hjá Möggu og Christian á laugardagskvöldið sem tókst með ágætum og fá þau þúsund hamingjuóskir frá okkur Eddu. Á sunnudaginn löbbuðum við síðan úr Hólmgarðinum í Eskihlíðina til að sækja bílinn og svo var farið í að mála Nesbala 2 þar sem bróðir hennar Eddu hefur nýverið fest sér forláta raðhús. Síðan var tengdó boðið í pasta í gær og í dag á ég síðan vaktina í Keflavík en hún hefur verið fremur róleg framan af. Líklega glæðist þó eitthvað með kvöldinu þegar liðið fer að skríða heim úr útilegunni.

18. júl. 2003

Jæja!
Nú hef ég ekki bloggað í hartnær 20 daga og þessari eilífu þögn verður að ljúka... en ekki núna. Get þó sagt tryggum sörferum að ég hef lokið við innréttingar í Hólmgarðinum og ráðgeri að flytja inn með spúsu minni í dag. Því er öllum sem ég þekki frjálst að hringja eða koma í heimsókn næstu vikurnar að því gefnu að það sé á skynsamlegum tíma sólarhringsins. Ætli maður taki það ekki rólega næstu dagana. Klári að koma sér fyrir og kaupa mat í búið. Sjáum svo til hvernig gengur hjá okkur í sambúðinni. Ég held að það eigi eftir að ganga glimrandi vel.

30. jún. 2003

Fyrsta færslan á nýrri og glæsilegri tölvu
Nú hefur Nonni bróðir fært mér glæsilega tölvu frá landi tækifæranna. Um er að ræða stórglæsilega Toshiba tölvu sem er 2,2 GHz, 512 Mb innra minni, 60 Gb harðan disk, DVD, CD, brennara og ég veit ekki hvað og hvað. Tölvan hefur verið prufukeyrð í dag og til dæmis er hún um það bil 2 mínútur að setja heilan 60 mínútna disk á tölvutækt form en gamla tölvan hefði gert það á svona 60 mínútum eða svo. Síðan er hún svo fallega blá á litinn. Davíð verður ánægður með það.

Helgin...
...var rosaleg en þá var farið í ferð með Herraklúbbnum Hannesi en atburðir ferðarinnar eru að sjálfsögðu algert trúnaðarmál. Það eina sem ég get sagt er að ég held að ferðin hafi þjappað félagsmönnum vel saman. Helgin var alla vega bæði eftirminnileg og skemmtileg.

25. jún. 2003

Heiðar tjóðraður
Æsir hefðu líklega kosið að Fríða væri ásynja þegar tjóðra átti Fenrisúlf því henni hefur tekist það sem austurískum meyjum tókst ekki þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir, þ.e. að fá Heiðar á skeljarnar. Fríða er kostakona og sennilega allt of góð fyrir Heiðar kallinn (og þó, hann er nú ágætur). Ég óska þeim að sjálfsögðu til hamingju og vona að þeim vegni vel í Nottingham næsta vetur. Nú er maður næstum kominn með skothelda afsökun til að fara á leik í Englandi á næstunni :)

Uppfærslur
Þau leiðu mistök urðu við uppfærsluna að öðlingurinn Gunnar Thoroddsen missti linkinn sinn. Úr því hefur verið bætt auk þess sem nokkrir skemmtilegir linkar hafa bæst við. Nú er bara að finna út hvernig maður minnkar letrið á póstunum og minnkar breiddina á spássíunni þarna =>

24. jún. 2003

Jæja!
Loksins tókst mér með hjálp góðra manna að laga aðeins síðuna en hún hefur tekið töluverðum breytingum eins og þið sjáið og þarf svolítið viðhald í viðbót en það mun verða gert næstu daga. Læt betur í mér heyra á næstunni.

21. jún. 2003

Blogger drusla!!!

16. jún. 2003

Áfram Ísland!!
Eftir fremur dapurlegan leik á móti Færeyjum tóku strákarnir okkar sig saman í andlitinu og lögðu Litháa sannfærandi í síðustu viku. Eiður var snillingur í leiknum og hélt síðan upp á glæsilega framgöngu sína á Hverfisbarnum á laugardaginn þar sem hann hösslaði konuna sína. Hermann gerði líka heiðarlega tilraun til að myrða markvörð Litháa en sem betur fer tókst honum að forða sér og boltinn endaði í netinu.

Helgin...
...var rosaleg. Hún byrjaði með erilsamri vakt á föstudag og síðan var tekið á því í Sporthúsinu með Golla. Við tókum fjóra skvass leiki og í stuttu máli þá hefðu samanlögð stig mín úr þeim öllum ekki dugað til að sigra tvo leiki: 15:7, 15:10, 15:2 og 15:5. Þess ber að geta að Ingólfur er bæði í betra formi en ég og fyrrverandi landsliðsmaður í spaðaíþrótt en það var samt súrt að tapa fyrir honum. Síðan var tekið á því í tveimur útskriftarveislum á laugardagskvöldið. Fyrst var sótt heim Vala vinkona hennar Eddu sem var að ljúka námi sem leikskólakennari og síðan var Heiðar hinn Austurríski (varist að rugla saman við Heiðu hina svissnesku) að ljúka námi í stjórnmálafræði og hyggst kynna sér stjórnmál í Nottingham næsta vetur. Hefur hann fengið viðurnefnið Hötturinn ellegar Dýrið af augljósum ástæðum. Til hamingju með áfangann krakkar!!!

Halda skaltu hvíldardaginn heilagan
Það gerði ég á háa loftinu hjá settinu þar sem ég fór hamförum í að ryðja út rusli og drasli. Á endanum var farið með fullan sendibíl af drasli í gám. Nú sést í gólfið sumsstaðar á loftinu.

10. jún. 2003

Púff
Mikið rosalega voru strákarnir okkar í fótboltalandsliðinu heppnir á laugardaginn þegar þeir unnu Færeyjar. Þetta lið er náttúrlega algerlega hrunið og það þarf að fá einhvern karlmann til að reisa það úr öskustónni. Það þýðir ekkert að taka blíðu föðurlegu ímyndina á þessa gutta eins og Atli gerði. Það þarf svona "ég sef hjá konunni þinni - aftur" gæja eins og Gauja Þórðar eða Willum Þór til að bíta í nokkur eyru og sparka nokkrum takkaskóm. Annars held ég að þetta íslenska landslið geti orðið mjög gott. Við eigum rosalega efnilega einstaklinga og síðan fullt af ungum strákum sem eru að brillera með sínum liðum eins og t.d. Arnar Þór og Eiður Smári en menn gleyma því stundum að þessir menn eru bara 25 ára. Ég spái því að Ísland nái á HM innan 10 ára.

Liverpool
Nonni bróðir var eitthvað að barma sér yfir útreiðinni sem bítlínurnar frá Liverpool fá á þessari síðu. Ég hef bara eitt að segja um það: Sannleikanum verður hver sárreiðastur.

Helgin var rosaleg
Föstudagur
Hún hófst með erfiðum vinnudegi á föstudag en síðan var brunað í bæinn þar sem beið mín þetta líka svakalega re-union útskriftarárgangsins 1998 úr MR. Við byrjuðum hjá Einari og Jönu sem eru höfðingjar heim að sækja eins og áður. Við drukkum hressilega í Grænuhlíðinni áður en stefnan var sett á lögreglusalinn í Brautarholti þar sem við hittum fyrir gamla árgangsfélaga. Það er skemmst frá því að segja að úr varð hörkustuð og ég hef nú varla skemmt mér svona vel síðan ég var í MR. Við dröttuðumst svo heim eitthvað um kl. 3.
Laugardagur
Við vorum síðan vakin kl. 9 á laugardagsmorgunn til að fara austur í Grafning þar sem pabbi var í "sleppitúr". Við vorum komin að Villingavatni í Grafningi um kl. 12 og þá var riðið alla leið austur í Laugarás. Við Edda settumst í söðulinn skamma stund en sökum rassæris og "þreytu" frá kvöldinu áður, sátum við aðeins í tæpa tvo tíma á baki en sáum síðan um bílana það sem eftir var dags. Um kvöldið var síðan boðið til grillveislu þar sem grillað var svínakjöt og með því borið fram rauðvín, kartöflusalat og hrásalat. Á eftir fékk ég mér síðan Cohiba vindil frá Havana en varð eitthvað illt af honum (eins og reyndar alltaf þegar ég fæ mér vindil) og fór því snemma í háttinn eftir að hafa látið öskrin vaða yfir klósettið.
Sunnudagur
Sunnudagurinn byrjaði um hálftíu. Þá dreif ég mig í sturtu og í sparifötin og síðan rakleiðis í fermingu "fósturbróður" míns úr sveitinni. Gylfi var loksins fermdur en drengurinn sá hefur verið stærri en ég síðan hann var tólf ára. Hann er sem sé uppeldissonur Sigurðar bónda í Steinsholti sem fóstraði mig ein 10 sumur. Fermingin var snilld en þar var borið fram alls kyns brauð með pesto og ostum auk þess sem það var traditional kransakaka og nokkrar hnallþórur. Skemmtileg ferming hjá skemmtilegum strák. Eftir ferminguna var síðan farið á móts við hestafólkið og um kvöldið átum við ljúffengar lambalundir með bökuðum kartöflum og fersku salati. Ég er enn hálfsaddur því ég át á mig gat. Eftir mat var síðan brunað í bæinn því ég átti að vinna morguninn eftir í Kefló.
Mánudagur
Erfið vakt en skemmtileg. Er nú á leiðinni heim í háttinn.

31. maí 2003

Jæja!
Er ekki kominn tími á Gillann að blogga pínulítið. Það hefur mikið verið að gerast sl. daga. Byrjaði að vinna á fullu sl. mánudag á heilsgæslunni í Keflavík og tók mína fyrstu vakt hér á aðfaranótt miðvikudags. Nú er ég á annarri vaktinni og það lítur út fyrir að maður fái svolítinn frið í kvöld. Aðeins von á einum sjúklingi það ég veit. Ætli maður tjilli ekki bara og fari snemma að sofa. Ég verð að vera upplagður á morgunn þegar ég fer í Bláa lónið með Eddu og systur hennar Möggu ásamt frændsystkinum þeirra tveimur. Annars verð ég að segja að það kom mér á óvart hvað Grindavík er vinalegur bær, miklu stærri en ég átti von á og mikið af fallegum húsum. Svo er aksturinn hérna suður eftir miklu auðveldari en ég átti von á. Maður er innan við 40 mínútur að keyra þetta ef ekki er mikil umferð og löggan lætur mann í friði.

Boltinn
Íslenska landsliðið í handbolta stóð sig vel í gær þegar það valtaði yfir Dani í Austurbergi. Sá reyndar ekki nema síðasta korterið en þá voru strákarnir búnir að klára þetta. Síðan var mæting hér kl. 10 í morgunn og vaktin stendur til kl. 10 í fyrramálið. Ætli maður verði ekki að vona að það verði rólegt í kvöld.
Á miðvikudaginn töpuðum við síðan fyrir Ástinni og verður það að segjast að ég er orðinn leiður á því að keppa í fótbolta. Ég hef ekkert gaman að því að keppa lengur en þeim mun meira gaman af því að spila. Kannski er þetta til komið vegna þess að mér finnst leiðinlegt að tapa en skemmtilegt að vinna. Ég hef bara ekki skapgerðina í þetta. Ekki bætti úr skák að ég var búinn að vera allan daginn á slysadeildinni að láta athuga hvort það væri í lagi með hausinn á mér. Í ljós kom að ég er með eitthvað sem heitir occipital neuralgiu. Það er bólga í skyntaug aftan á hausnum á mér sem þýðir að ég er búinn að vera með hausverk í 3 mánuði og hann er ekkert á förum næstu vikurnar. Albert Páll taugalæknir sem skoðaði mig kippti í einhverja spotta og ég var kominn í deyfingu fyrir fjögur á föstudag þar sem sprautað var í kringum taugina á hnakkanum - djöfull var það sárt. Nú er ég ekki mikið skárri en þó þannig að ég finn ekkert fyrir þessu nema ég hnerri, hósti, rembist eða hlæi. Góðar stundir

23. maí 2003

Próflestur
Fer í heimilislæknisfræðipróf á morgunn. Er latur að lesa en er samt tæplega hálfnaður með efnið. Maður tekur á þessu í kvöld. Yfirleitt er þetta nú fremur auðvelt próf sem veltur á því að leysa vandamál sem lögð eru fyrir okkur. Síðan er það bara grill og gleði með Birgittu á morgun.

Viðar
Hefur heiðrað landið með nærveru sinni. Kom til landsins í gær og ætlar strax að taka á því í drykkjunni með því að kneyfa öl yfir Evrópusjóninni (Eurovision) annað kvöld. Inga Huld er lent temmilega snemma til að prenta sín alræmdu einkunnablöð og getur sleppt sér yfir búningunum og sviðsframkomunni hjá T.A.T.U. Velkomin heim skötuhjú.

22. maí 2003

Loksins kem ég aftur
Hef ekkert getað bloggað síðan fyrir síðustu helgi vegna anna. Er búinn að vinna þrjá eftirmiðdaga í Keflavík og líkar bara fínt. Maður er svolítið óöruggur til að byrja með en síðan kemur þetta þegar maður fer að sjá hlutina í þriðja og fjórða skipti. Ætli maður reyni ekki að miðla einhverjum fréttum hér í sumar, t.d. af gangi flutninga og gangi FC-Forseta í Utandeildinni.

Leikurinn
Fyrsti leikurinn okkar í Utandeildinni endaði ekki glæsilega því við gerðum okkur lítið fyrir og töpuðum 10-0. Ekki bætti úr skák að þjálfari okkar og máttarstólpinn í vörninni verður líklega frá út tímabilið þannig að ekki skánar vörnin til muna. Reyndar kom Ómar inn á fyrir hann og skilaði sínu hlutverki vel. Ívar stóð sig þrátt fyrir allt ágætlega í markinu og mörkin verða miklu frekar skrifuð á vörnina en hann. Auk þess megum við sem spilum framar á vellinum taka okkur saman í andlitinu og reyna að bæta okkar ráð fyrir næsta leik sem verður á móti góðvinum mínum í Ástinni. Það var gaman að sjá Ástina loksins spila eins og menn en það var reyndar ekki fyrr en þeir voru orðnir einum fleiri sem hlutirnir fóru að gerast hjá þeim á sunnudaginn. Þeir voru verulega óheppnir að tapa leiknum því þeir lágu hreinlega í færum eftir að leikmaður BR var rekinn út af. BR stal síðan sigrinum á síðustu sekúndunni þegar Ástin hafði sett allt kapp í sóknarleikinn. Slæmu fréttirnar fyrir Ástarmenn eru þær að tveir bestu menn þeirra í leiknum, þeir Jón Ingi og Mási, voru að spila sinn eina leik í sumar því báðir hafa þeir nú horfið til annarra verkefna. Hins vegar fá þeir Adda í staðinn en hann hefur verið einn besti leikmaður Ástarinnar frá því að Herði tókst að kenna honum að gefa boltann. Forsetinn mun hitta Ástina næstkomandi miðvikudag og þá verður sko tekið á því.

Ríkisstjórnin
Djöfull er ég ánægður með þess ríkisstjórn. Davíð verður áfram í ár og síðan tekur Dóri fúli við og það er bara fínt mál. Þorgerður Katrín kemur sterk inn og það er fínt að fá Sigríði Önnu Þórðardóttir líka til að sýna fólki að konur geta vel náð langt í Sjálfstæðisflokknum. Þetta eru tvær frambærilegar konur. Síðan var leiðindakerlingunni Sólveigu Pétursdóttur skipt út af og hún sett á bekkinn. Bjössi Bjarna er kominn aftur og það er ágætt að fá mann eins og hann í Dómsmálaráðuneytið og ég vona bara að hann leggi niður kirkjumálaráðuneytið og skilji að ríki og kirkju. Geir er traustur í ríkiskassann og Árni getur haldið áfram að skíta á sig í togararallinu. Ég er líka ánægður með að Árni Magnússon skuli fá ráðherrastól. Það er kominn tími á ungt fólk í ráðuneytin.

15. maí 2003

Fyndnar fréttir
Ég hélt ég mundi deyja úr hlátri yfir hádegisfréttunum í Ríkisútvarpinu í gær þegar sagðar voru fréttir af þeim flugfélögum sem væru hæfust í að koma farangri til skila. Eins og dyggir lesendur eflaust muna lenti ég í miklum hremmingum með farangurinn minn á leið til og frá Búdapest í haust og mér var því skemmt þegar flugfélögin tvö sem ég átti svo skemmtilegar minningar um voru bæði á topp tíu yfir skilvísustu flugfélögin. Ég get nú alveg sagt ykkur það að þau eru ekki á topp tíu listanum hjá mér. Því miður varð mér aldrei úr verki að skrifa harðorða grein í Moggann um þetta mál en það hefði sjálfsagt orðið til lítils annars en að ég hefði fengið viðurnefnið Gilli flugdólgur.

Geðlæknisfræði…
…hefur verið lögð að velli en mér gekk hreint ágætlega í prófinu í morgun þrátt fyrir að hafa næstum dáið úr leiðindum við að lesa fyrir þetta próf. Það eru engin takmörk fyrir því hvað hægt er að kalla þunglyndi mörgum nöfnum og hvað það eru til margar álíka gagnslausar aðferðir til að lækna það. Það merkilegasta við geðlæknisfræðina er þó það að þrátt fyrir 150 ára rannsóknir á lyfjum og sálfræðilegum meðferðum telur hinn almenni borgari sem hlotið hefur einhvers konar sálfræðiþjónustu í USA, AA-kerfið enn árangursríkustu leiðina til að ná sér út úr hversdagslegu þunglyndi skv. einhverri neytendakönnum fyrir nokkrum árum. Þetta er kannski ofureinföldun hjá mér en það er það verður mönnum ljósara með hverjum deginum hversu mikla möguleika tólf spora kerfi AA hefur og hefur það verið notað meðal annars af spilafíklum, aðstandendum alkóhólista, átfíklum, fólki með átraskanir, skapofsamönnum, kynlífsfíklum og fleirum. Þetta virðist alltaf skila árangri. Lyfin okkar eru seinvirk og yfirleitt með aukaverkanir sem trufla meðferðarheldni verulega. AA, OA, GA, Al-Anon og fleiri samtök eru því líklega framtíðin. Kannski fáum við Depressed Anonymous (DA), Anxios Anonynous (ANXAN), Schizophrenic Anonymous (SCAN) o.fl. samtök í framtíðinni – hver veit?

HAHAHAHA
Óli grís er búinn að kvænast Dorrit. Ætli hann hafi fengið demantshring á puttann sinn? Ætli þau hafi keypt hringana hjá Dorrit? Eru það ekki eins konar innherjaviðskipti?

14. maí 2003

Bara stutt í dag
Er að fara í geðlæknisfræði á morgunn og eftir því sem ég les meira þeim mun geðveikari verð ég. Ætli ég verði ekki kominn með schizotypal persónuleikaröskun á morgun eða eitthvað.

Prinsessa fædd
Gleymdi auðvitað að setja hér inn hamingjuóskir til Rögnu og Gumma með litlu prinsessuna sem fæddist að mig minnir sl. laugardag. Til hamingju með frumburðinn. Það er víst lítil hætta á öðru en að hún verði myndarlegur snillingur miðað við foreldrana.

12. maí 2003

Taugalæknisfræðin...
...var kláruð í morgun. Þetta gekk bærilega en ég held ég verði nú enginn taugabrilli í framtíðinni. Barnalæknisfræðin hefur enn forystu í baráttunni um hylli mína.
Vilji kjósenda
Það virðist vera að þegar fólk bíður sig fram fyrir Samfylkinguna fái það ókeypis námskeið í að túlka úrslit kosninga sér í hag. Þannig túlka þeir þá staðreynd að þingmönnum Samfylkingarinnar fjölgaði um 3 sé augljóst merki um vilja kjósenda að skipta um ríkisstjórn. Við hin sem kunnum stærðfræði vitum að u.þ.b. 5% fleiri kusu Samfylkinguna nú en síðast. Skv. vinstri mönnum eru það hins vegar þessi 5% sem túlka augljósan vilja kjósenda. Hmmm. Fólk sem veit raunverulega hvað lýðræði er skilur að sjálfsögðu að fylgi flokkanna gefur bestu vísbendinguna um vilja kjósenda og á laugardaginn var það augljóst að meirihluti kjósenda styður ríkisstjórnarflokkanna. (ef ég væri vinstrimaður hefði ég sagt ríkisstjórnina en ég veit auðvitað að margir kjósendur D og B vilja ekki áframhaldandi samstarf). Þessir vinstri menn geta talað svo fallega um margt og dregið svo skemmtilegar ályktanir að þeir eru stundum alveg stórskemmtilegir og stundum jafnvel hlægilegir.

Ég ætla að sjálfsögðu ekki að neita því að ég er verulega svekktur yfir gengi Sjálfstæðisflokksins því þótt ég sé nú ekki alfarið sammála stefnu hans í mörgum málum er hann raunverulega eini valkosturinn fyrir hægri búra eins og mig. Lokaniðurstaðan er hins vegar sú að Samfylkingunni mistókst í tveimur af þremur áætlunarverkum sínum. Í fyrsta lagi tókst þeim ekki að fella ríkisstjórnina og í öðru lagi tókst þeim ekki að koma gullkálfinum sínum frá Ráðhúsinu á Austurvöll þrátt fyrir að þetta séu nú ekki nema örfáir metrar. Þeim tókst hins vegar að gera Samfylkinguna að því afli í íslensku stjórnmálum sem þá dreymdi um og fyrir það ber að óska þeim til hamingju. Það kostaði hins vegar það að gullkálfurinn þeirra heltist úr lestinni á miðri leið og verður einhvers staðar út á túni að jafna sig næstu þrjú árin. Kannski hún geti nýtt tækifærið, farið í Háskóla Íslands og hjálpað Röskvu að vinna aftur meirihluta sinn í Stúdentaráði.

Það sem mér fannst ánægjulegast er að sjá allt þetta unga fólk sem nær inn á þing. Þrír fyrir Frjálslynda, Ágúst, Katrín, Bryndís Hlö og fleiri fyrir Samfylkinguna, Siggi Kári, Biggi Ármanns, Bjarni Ben og Guðlaugur Þór fyrir Sjálfstæðismenn og Dagný, Árni og þessi pjakkur þarna fyrir austan fyrir Framsókn. Það er hins vegar skemmtileg pæling sem Spurningasveppurinn kom með varðandi frétt Moggans um lækkandi meðalaldur þingmanna. Þrátt fyrir að meðalaldurinn á Alþingi hafi nú lækkað um fimm ár þá hafa auðvitað liðið fjögur ár síðan gömlu þingmennirnir voru kosnir og því hefur meðalaldur kosinna manna ekki lækkað nema um eitt ár. Það er þó vissulega þróun í rétt átt.

Boltinn
Mínir menn krýndir á sunnudag og ég var glaður. Það var líka vegna þess að kettlingarnir frá Bítlaborginni komust ekki í Meistaradeildina enda á svona skítalið ekki heima þar. Sorry, Golli, Kobbi, Þór, Eiki, Óttar og Nonni en það er bara staðreynd. Þeir eru ekki nógu góðir til að spila í Evrópu. Rúðan tók svo að sjálfsögðu markakóngstitilinn eftir að Henry skoraði bara eitt af tíu mörkum Arsenal í síðustu 2 leikjum. Hey, hann er alla vega góður í að leggja upp. Annars verð ég nú að viðurkenna að mér líður eins og þjófi yfir þessu því Henry er búinn að vera svo miklu betri en Nistelrooy í vetur enda sést það á því að hann er næstmarkahæstur og með langflestar stoðsendingar í deildinni. Maðurinn er snillingur og það verður gaman að sjá hann við hliðina á Ruud hjá United næsta vetur.

11. maí 2003

Dapurlegur dagur
Dagsins í gær verður minnst í mínum huga sem dagsins sem Íslendingar kusu næstum yfir sig skattpíningardrottninguna Skalla-Sollu. Sem betur fer sáu Sunnlendingar að þetta gengi ekki og felldu Ingibjörgu á síðustu utankjörfundaratkvæðunum. Þetta þýðir að Framsóknarmenn halda sínum 12 þingmönnum, Sjálfstæðisflokkurinn fær 22 og er í sögulegu lágmarki, Samfylking fær 20 þingmenn og sannar að enn eru 30% þjóðarinnar með greindarvísitölu á við ísskáp, Frjálslyndir fá 4 sem er fínt en Vinstri grænir (a.k.a. gamlir kommar) fá 5 þingmenn. Þrátt fyrir gífurlegan meðbyr og frábærar viðtökur fengu nýtt afl og T-listi Kristjáns Pálssonar enga þingmenn. Það var nú eiginlega bara tvennt sem gladdi mitt auma hjarta í nótt og morgun en það var að Ingibjörg skyldi ekki ná kjöri en það þýðir að pólítískur ferill hennar er í 3 ára biðstöðu. Hitt er það að svo margt ungt fólk náði kjöri fyrir Framsókn, Samfylkingu og Sjálfstæðisflokk. Í þeim hópi er ég að sjálfsögðu ánægðastur með fjölskylduvininn Birgi Ármannsson í syðra Reykjavíkurkjördæminu. Ég er ekki í nokkrum vafa um það að Birgir á eftir að ná langt í pólítík. En það er ljóst að allir geta vel við sína niðurstöðu unað nema Sjálfstæðismenn og Vinstri grænir. Til hamingju skattgreiðendur - ykkur mistókst að hækka skattana undir forystu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur.

9. maí 2003

Frjáls
Síðasti dagurinn minn á geðdeildinni er senn á enda og ég get ekki beðið. Þetta eru búnar að vera langar og á köflum leiðinlegar vikur. Verð nú samt að viðurkenna að sumt af þessu á eftir að nýtast mér vel í sumar þegar ég tekst á við Keflvíkinga. Þetta er ekkert skot á Keflavík því þetta er nú svona víðast hvar á landinu - mikil geðlæknisfræði í heilsugæslunni. Svo er það bara 6 daga próflestur og 2 próf en síðan verður tekið á því á heimilislæknakúrsinum. sem verður vikuna 19.-24. maí.

8. maí 2003

Afsökunarbeiðni
Viðar er beðinn afsökunar á að vera settur í hóp aumingjabloggara hér að neðan. Hann hefur bloggað a.m.k. síðustu tvo daga.
Pirraður
Mikið rosalega er ég orðinn pirraður á fólki sem aldrei þreytist á að senda mér keðjubréf og auglýsingapósta. Mér finnst ótrúlegt hvað fólk leggst lágt í að troða einhverjum keðjubréfsauglýsingum upp á vini sína og vandamenn með tölvupósti. Það eru engin takmörk fyrir vitleysunni sem maður fær senda. Þeir sem þetta lesa mega taka það til sín að ég vil bara alls ekki fá tölvupóst um fársjúkt barn í Langtíburtistan sem fær eitt grjón fyrir hvert forward á einhverjum helvítis tölvupósti. Auðvitað gerir þetta fólk svona heimskupör til að friða samvisku sína af því að það nennir eða getur ekki tekið almennilega til hendinni í góðgerðarstarfi. En ég er bara með smá fréttir fyrir ykkur. Þetta virkar ekki. Þið eruð ekkert að hjálpa hungurmorða börnum með því að senda email. Þið megið því alveg sleppa því að senda mér svona bréf en brandarar og annað skemmtiefni er vel þegið.

Kosningabaráttan
Það bilaði eitthvað loftræstingin hjá Sollu Bollu og það virðist sem allur vindur sé úr henni. Fregnir herma að gífurlega tæknilegt holræsakerfi í götunni hennar hafi hreinlega yfirbugað Skatta-Sollu og dregið úr henni allt loft. Það varð til þess að Ingibjörg virðist búin að glata trausti þeirra þriggja komma sem enn trúðu nokkru af því sem hún sagði. Nú kjósa bara bókstafstrúarmenn sem eru til í að gera hvað sem er til að losna við Dabba kóng - meira að segja kjósa einhvern mesta lygara íslenskrar sjórnmálasögu. Ég mæli með umfjöllun á www.andriki.is hún er skemmtileg, hnitmiðuð en umfram allt ómálefnaleg. Það er fyndið.

Aumingjabloggarar
Viðar, Þorgeir, Hjölli, Haukur Þór, Gunni, Baddý, Sjonni og Inga Huld! Eru þau dauð? Þorgeir heldur að ég eigi afmæli samfleytt í tíu daga og hinir eru varla búnir að blogga síðan sumarið leit dagsins ljós. Hvers eiga einmana menn eins og ég að gjalda. Ég lifi fyrir bloggið ykkar fólk. Keep feeding me.

7. maí 2003

Kosningar
Aldrei hef ég verið jafn efins um hvað ég á að gera við atkvæðaseðilinn minn á kosningadag. Reyndar verð ég að viðurkenna að kostirnir eru aðeins þrír: 1) að skila auðu af þeirri einföldu ástæðu að enginn flokkanna hefur nógu frjálslynda stefnu fyrir minn smekk, 2) að kjósa Sjálfstæðisflokkinn vegna þess að þeir eru eini flokkurinn á Íslandi sem er nálægt miðjunni vinstra megin frá, 3) að kjósa Dóra "skemmtilega" svo hann komist á þing en ekki hin vængbrotna Ingibjörg Sólrún. Annars lét ég það nú eftir mér í próflestrinum í gær að horfa á Davíð spurðan spjörunum úr af starfsmönnum RÚV. Hann stóð sig mjög vel og var skemmtilegur en ég hafði heyrt utan af mér að Ingibjörg greyið hefði verið fremur vængbrotin á mánudaginn.
Annars finnst mér magnað að lesa greinar Dags B. Eggertssonar um Ingibjörgu síðustu daga í Morgunblaðinu. Þessar greinar hafa birst á besta stað í blaðinu og því varla hægt fyrir vinstri menn að kvarta um að blaðið sé enn að aðstoða Sjálfstæðisflokkinn. Þarna fer Dagur lofsamlegum orðum um pólítíska móður sína sem hann er víst tilbúinn að fyrirgefa eins og saklaust barn fyrirgefur geðsjúkri móður. Hann virðist hafa gleymt þeim orðum sínum sl. vor að Ingibjörg Sólrún væri bara ekki þannig persóna að hún gengi á bak orða sinna við kjósendur og færi í framboð til Alþingiskosninga. Það er greinilegt að sannfæring Dags er til sölu eins og sannfæring annarra vinstri manna og komma hefur verið í gegnum tíðina. Sagan hefur kennt okkur að harðir vinstri menn eru margir hverjir tilbúnir að ljúga, blekkja, limlesta og jafnvel drepa til að koma sínum skoðunum á framfæri. Þeir vita nefnilega betur en almenningur hvað er best fyrir hann. Það er þó ekki svo að skilja að mér sé persónulega illa við Dag B. Eggertsson enda þekki ég hann sæmilega í gegnum læknisfræðina og á því sviði er hann bæði fær og atorkusamur. Skoðanir hans eru bara ekki þær sömu og mínar né heldur pólítísk gildi.
Að lokum langar mig til að minnast á það að ég tók hið fræga próf afstada.net og kom eins og mig grunaði út með:
Sjálfstæðisflokkur 79%,
Framsóknarflokkur 57%,
Frjálslyndir 36%,
Samsoðningur 36%,
Vinstri grænir 14%.
Það kemur mér nú mest á óvart hvað ég er lítið sammála Sjálfstæðismönnum en það er líklega vegna þess að ég er töluvert hægrisinnaðri en stefna flokksins. Tók þessa könnun reyndar fyrir nokkrum vikum en síðan hefur afstaða mín breyst í nokkrum málum sem þarna koma upp.

Boltinn
Arsenal tapar í kvöld, um það er ég sannfærður. Ruud setur síðan þrennu á laugardaginn og verður markakóngur og jafnar met Dennis Law um mörk á einni leiktíð fyrir félagið. Ruud er að sjálfsögðu markahæstur í deildinni og lítil hætta á að Henry skori af bekknum hjá Arsenal í kvöld. Beattie gæti orðið skeinuhættur en ég held samt að hann nái ekki Ruud. Síðan eru það auðvitað töluverð vonbrigði að lið Juventus skuli hafa staðið sig svona vel á móti Real á Spáni í gær. Síðan er bara að sjá hvernig Milano-liðin taka á því í kvöld. Ég verð reyndar að lesa en kannski maður fylgist með þessu með hálfum öðrum þriðjung úr auga (reiknið þið nú).

5. maí 2003

Meistarar, snillingar!
Mínir menn tóku titilinn létt í gær, þurftu ekki einu sinni að fara í takkaskóna því stórliðið Leeds vann "sanngjarnan" sigur á Arsenalmönnum í gær. Það hefur verið gaman að fylgjast með vælinu í Wenger í dag en það kemur mér svolítið á óvart að hann skuli ekki væla meira yfir því hvað Viduka var rangstæður í sigurmarkinu. Það breytti hins vegar mjög litlu því Arsenal dugði ekki jafntefli heldur og þeir voru svo sem ekkert að gera sig líklega til að skora sigurmarkið þarna í lokin. Mér fannst botninn detta alveg úr sóknarleiknum þeirra þegar Kanu kom inn á og þeir jöfnuðu. Staðreyndin er auðvitað sú að besta liðið vann þessa deild sem sést best á muninum á árangri þessara liða í Meistaradeildinni. Vissulega er frábærir einstaklingar í þessu Arsenalliði sem geta klárað leiki upp á sitt eins- eða tvídæmi. Það virðist hins vegar ekki hafa náðst nógu góð liðsheild í liðið og það er látið ganga á of fáum mönnum, það vantar alla breidd í það sem sést best á því að þegar tveir miðverðir eru úr leik þá verða þeir að setja hægri bakvörð sem ekkert hefur spilað að ráði í vetur, í miðvarðarstöðuna. Fyrir áramót voru Gary Neville, Wes Brown og Rio Ferdinand meiddir í vörninni hjá United og Beckham, Keane og Butt á miðjunni en samt var United að vinna leiki með Phil Neville á miðjunni, Solskjær á kantinum og smástrákinn John O'Shea í vörninni.
Talandi um John O'Shea. Af hverju var sá maður ekki valinn efnilegasti leikmaður deildarinnar. Jenas var góður, Rooney ágætur en Jón var stórkostlegur. Hann spilaði allar stöður í vörninni og var m.a.s. á miðjunni á móti Burnley í bikarnum og átti stórleik. Hann hefur brillerað á móti mörgum af stærstu liðum Evrópu - Juve, Depor, Real og fleirum. Þetta val var alger skandall.

Afmæli
Í gær átti Magga Pála Eddusystir og mágkona mín afmæli. Hún heldur með Arsenal og átti því ekki góðan afmælisdag. Hún er líka á fullu í samræmdum prófum og verður að einbeita sér að þeim þannig að ég bíð með það þangað til í sumar að stríða henni. Til hamingju með daginn í gær Magga Macho.

4. maí 2003

Afmæli!
Eiki átti afmæli á föstudaginn og fær eina hamingjuósk frá Ljós-Gíslanum. Hann hefur því aftur tekið hið hefðbundna ársforskot sem hann hefur haft á mig lengst af ævinni.

Vaktin
Er nú á vakt á barnadeildinni sem hefur verið fremur annasöm. Hef lítið getað sofið í nótt fyrir heimsóknum en þó náð að festa blund í ca. 2,5 tíma. Síðan er bara heim kl. 9:30 í háttinn og svo lestur eftir hádegið.

Skrifa meira á morgun

30. apr. 2003

Afmælið mitt...
...var svo mikil snilld að ég hafði ekki orku í að skrifa neitt hér í gær. Edda kom mér verulega á óvart með alveg hreint stórkostlegri gjöf. Hún byrjaði á að hanna einhvern ratleik þannig að ég þurfti að finna gjöfina heima hjá henni og þegar ég loksins fann hana var spennan í hámarki. Ég varð ekki fyrir vonbrigðum því hún hafði gert sér lítið fyrir og keypt handa mér heimabíó og DVD-spilara sem jafnframt eru hljómflutningstæki og útvarp. Snilld. Frá mömmu, pabba, bræðrum, mágkonum og systkinabörnum fékk ég salatskál, skurðarbretti og loforð um gasgrill í sumar þegar ég flyt í Hólmgarðinn. Ætli það verði grillað fyrsta kvöldið þar? Ég held það. Síðan fékk ég DVD-mynd frá Möggu mágkonu og íþróttaföt frá tengdó. Síðan bíð ég spenntur eftir gjöfunum frá ykkur hinum :)

Stjórnmálin
Merkilegt að lesa það sem margir ungir vinstri menn skrifa á heimasíðurnar sínar. Þeir segja beinlínis hreint út að þeir sem eru með hæstu tekjurnar eigi að borga alla þjónustu samfélagsins fyrir þá sem hafa lægri tekjurnar. Þetta sjónarmið hef ég aldrei skilið. Ég er nú ekki alinn upp í miklum vellystingum á mínu heimili en það var þó eitt sem mér var kennt á mínum yngri árum og það var að borga fyrir það sem ég nota. Nú er ég ekki að segja að það sé endilega á færi þeirra allra fátækustu að borga fyrir alla þá þjónustu sem þeir sækja. Það kemur hins vegar mun fleirum til góða að lækka skattana og minnka umsvif ríkisins í alls kyns þjónustu. Það þýðir að flestir hafa meiri peninga á milli handanna og geta leyft sér meira. Menn gleyma því svolítið í allri þessari umræðu að þeir sem eiga meiri peninga borga að sjálfsögðu miklu meira í skatta en hinir fátæku því þeir stunda meiri neyslu. Þá á ég ekki við vímuefnaneyslu heldur versla þeir meiri munaðarvöru, gefa dýrari gjafir, kaupa sér vindil á gamlárskvöld, dýrara rauðvín í ríkinu og með því borga þeir að sjálfsögðu meiri neysluskatta. Athugið að ég sagði ekki hærri heldur meiri. Alveg eins borgar maður hlutfallslega meira af tekjum sínum í skatt eftir því sem tekjurnar hækka. Þetta er hægt að sýna fram á einfaldan hátt. Tökum fimm einstaklinga sem lifa í þjóðfélagi þar sem skattaprósentan er 38% og skattfrelsismörkin 75000kr.
1. 100.000 kr í mánaðarlaun, skattstofn er því 25.000 kr. og einstaklingurinn borgar 9.500 kr í skatt sem jafngildir 9,5% af heildartekjum
2. 200.000 kr í mánaðarlaun, skattstofn er því 125.000 kr og einstaklingurinn borgar 47.500 kr í skatt sem jafngildir 23,75% af heildartekjum
3. 300.000 kr í mánaðarlaun, skattstofn er því 225.000 kr og einstaklingurinn borgar 85.500 kr í skatt sem jafngildir 28,5% af heildartekjum
4. 500.000 kr í mánaðarlaun, skattstofn er því 425.000 kr og einstaklingurinn borgar 161.500 kr í skatt sem jafngildir 32,3% af heildartekjum
5. 1.000.000 kr í mánaðarlaun, skattstofn er því 925.000 kr og einstaklingurinn borgar 351.500 kr í skatt sem jafngildir 35,15% af heildartekjum

Stærðfræðingar mundu segja að þetta sé fall þar sem skattaprósentan nálgast 38% þegar launin nálgast hið óendanlega. Þið sjáið á þessu að búðarkonan sem vinnur á kassa í Hagkaup borgar rúmlega einn fjórða af því hlutfalli sem forstjórinn í netfyrirtækinu borgar. Gallinn við kerfið er að sjálfsögðu sá að kallinn með milljón á mánuði er uppi sem engin kelling lítur við í langan tíma og því rekur hann ekki 3-4 lausaleikskróa út um allan bæ og hann hefur því endalausan tíma til að velta sér upp úr því hvernig hann getur sloppið við að borga skatta sína til samfélagsins. Einstæða móðirin á kassanum í Hagkaup er hins vegar mjög þunglynd, með lágt sjálfsmat og sefur líklega hjá fyrsta aumingja sem lítur við henni, eignast annað barn með manni sem yfirgefur hana, verður í kjölfarið áfengissjúklingur o.s.frv. Þetta er miklu fremur vítahringur sem skapast af ömurlegum aðstæðum konunnar en ekki því að hún borgar hærri skatta. Ég held að lausnin sé að barnsfeður einstæðra mæðra taki á sig meiri ábyrgð og borgi meira en þessar skitnu 15.000 kr í meðlag. Og hananú. Q.e.d.

28. apr. 2003

Snilld
Saddam á(tti) líka afmæli í dag. Til hamingju með daginn Saddam. Hvernig ætli menn haldi upp á afmælið sitt í helvíti?
Ég á afmæli í dag,
ég á afmæli í dag,
ég á afmæli sjálfur,
ég á afmæli í dag!


Besta afmælisgjöfin til þessa...
...kom víst einum degi of snemma en það var sigur minna manna á munngæluskinkunum í gær. Þvíumlíkur snillingur sem hann Scholes er. Ruud var ágætur líka en hefði átt að skora svona 10 mörk í leiknum. Kasey Keller var rosalegur í markinu hjá Tottenham og var langbesti maður vallarins. Ég var ánægður með innkomu Quinton Fortune en hann ku vera uppáhaldsleikmaður Magnúsar Gísla a.k.a. Andy Cole Íslands. Magnús hefur löngum haft dálæti á þeim þremenningum Andy Cole, Dwight "Smiley" Yorke og Quinton Fortune. Til hamingju með þinn mann Maggi minn.

Greyið
Hef ákveðið að velja alltaf grey vikunnar á þessari síðu. Það hefur verið ákveðið af stjórn síðunnar að næstu 1000 vikur muni skiptast á að vera grey vikunnar þau Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (manneskjan hlýtur að vera rangt feðruð) og Össur Skarphéðinsson. Þennan "heiður" fá þau fyrir að vera hentistefnupólítíkusar sbr. þá staðreynd að aðalkosningamál þeirra er allt í einu orðið að fá kellingu í Stjórnarráðið í stað Evrópusambandsaðildar. Það segir kannski svolítið mikið um karakter Ingibjargar að fólk vill fremur selja sig inn í Evrópusambandið en fá hana sem forsætisráðherra. Hvernig er öðruvísi hægt að útskýra fylgistap þeirra síðustu vikur?

27. apr. 2003

Bloggfallið mikla…
…hefur tekið enda. Það hlaust af þvi að ég hef ekki haft netsamband heima hjá mér sl. hálfan mánuð vegna tölvuvandamála. Króatinn var fenginn í að kippa þessu vandamáli í liðinn og það tók hann innan við klst. Snillingur.

Boltinn
Mikið rosalega var gaman að horfa á Rassenal klúðra titilinum í morgunn. Ekki var verra að sjá Guðna Bergs gerna Henry gjörsamlega. Henry hljóp eins og hauslaus hæna um allan völl en Guðni beið bara eftir honum í teignum og hirti af honum boltann alltaf nema tvisvar og þá lagði hann einmitt upp mörkin. Rassenal-menn hríðféllu síðan í leiknum eins og gamlar kellingar í hálku. Cygan, Lauren og Ljungberg fóru allir að gráta og það þurfti að setja alvöru karlmenn inn á. Þetta lítur orðið mjög vel út. Enginn Cygan, enginn Campell, enginn Vieira, enginn Lauren, enginn Ljungberg. Þetta er bara búið. Við erum meistarar United menn. Ef við vinnum munngæluskinkurnar (Tottenham) á morgun á erum við í hrikalega góðum málum.

Utandeildin
Nú vill svo skemmtilega til að Ástin og FC Forseti drógust saman í riðil í sumar. Ætli maður verði ekki tekinn í gegn í þeim leik. Annars spilaði ég fyrsta leiklinginn minn fyrir Forsetann sl. fimmtudag og setti fyrra mark Forseta í 2:2 jafntefli. Leikurinn var síðan stöðvaður eftir um það bil 30 mínútur vegna einhvers misskilnings með útleigu á gervigrasi FH-manna. Liðið bar þess augljós merki að þeir hafa lítið sem ekkert æft úti í vor en það er greinilega fullt af bolta í þessu liði. Síðan er bara að að sjá hvernig okkur gengur gegn Ástmönnum.

Afmælisbarn gærdagsins
Nonni bróðir varð 35 ára í gær 26. apríl. Síðan verður maður náttúrlega að óska Gunnari á Hlíðarenda með aldarfjórðungsafmælið sl. mánudag. Síðan er það bara ég sjálfur á næsta mánudag. Maður er að verða gamall.

12. apr. 2003

Fallegur dagur...
...á St. James' Park. Scholes að gera góða hluti og Forlan átti víst stóran þátt í seinni mörkunum tveimur. Djöfull er ég ánægður með þetta. Mínir menn loksins að vakna.

11. apr. 2003

Afmælisbörn gærdagsins
Gleymdi að sjálfsögðu að óska Gustinum til hamingju með daginn í gær hér á síðunni. Sendi honum þó sms seinnipartinn og vona að það hafi borist honum. Þegar ég hugsa út í það þá gleymdi ég líka að óska Andreasi bróðursyni mínum til hamingju með daginn þann 7. apríl sem var á mánudaginn auk þess sem Halldór frændi Benjamín átti afmæli á laugardaginn og fékk enga kveðju. Afsakið drengir.

Stríðið í Írak
Loksins, loksins er þessi maður kominn frá völdum. Reyndar sýnist mér bandaríski herinn vera að missa stjórnina á götum Bagdad og vonandi verður því kippt í liðinn fljótlega. Síðan líst mér ekkert á þessar kúrdísku hersveitir í Kirkuk. Ef Kúrdarnir stofna eigið lýðveldi þarna norður frá þá fer allt í bál og brand þarna. Tyrkirnir verða vitlausir og ráðast inn í Írak og þá fara Arabaríkin að skipast í fylkingar og drepa hvora aðra. Það getur bara endað með ósköpum. Vonandi tekst að koma bara á lýðræði og almennilegri stjórn þarna sem öll þjóðarbrotin geta sætt sig við. Ég verð samt að segja að fréttamyndirnar frá Írak,sem sýndar voru í gær þar sem írakskir borgarar fögnuðu komu bandaríska innrásarliðsins til Bagdad, hafa sannfært mig um að stríðið var réttmætt. Sjálfur hefði ég kosið að SÞ samþykktu innrásina en úr því sem komið var held ég það hafi verið rétt ákvörðun hjá USA og UK að ráðast þarna inn.

Boltinn
Mætti á æfingu í gær hjá Ástinni og það var furðurólegt. Ég var ekkert tæklaður í tætlur eða neitt svoleiðis. Reyndar var ég með Hödda í liði og við náðum ágætlega saman enda loksins farið að spila tveggja snertinga bolti sem þýddi að menn bjuggust við að fá boltann og hlupu sig því fría. Eini gallinn við þetta er sá að sem framherji verður maður að klára í annarri snertingu og það getur verið vont í þröngum færum. Það var síðan fyrir mína eigin klaufsku að ég meiddist í þegar 45 mín voru búnar af æfingunni og tók ekki sjensinn á því að halda áfram. Ég fékk sem sé hnykk á hægra hnéð sem hefur verið mér óþægur ljár í þúfu sl. ár en sem betur fer finn ég lítið fyrir þessu í dag - sennilega vegna þess að ég hafði vit á því að hætta strax og tók eina Íbúfen þegar heim kom. Reyndar er það ekki vegna hnésins heldur helvítis beinhimnubólgunnar sem hefur verið að angra mig síðustu vikur en er nú að lagast eftir að ég tók nokkurra daga kúr af bólgueyðandi en það hjálpar náttúrlega líka með hnéð. Sagði einhver tvær flugur í einu höggi?
Hey, gott próf!
Sá þetta á síðunni hennar INGU :)

According to the "Which Big Lebowski character are you?" quiz:




Why don't you check it out? Or we cut of your Johnson!



Það er samt mun kúlara að vera Jeff Lebowski eins og Inga :)

10. apr. 2003

Helvítis hálsbólga!
Er komin með einhverja helvítis pest sem virðist vera löngu gengin yfir í minni fjölskyldu. Á að vinna á laugardaginn og verð því helst að vera orðinn góður þegar að því kemur. Í kvöld er stefnan sett á lærdóm og á morgunn er síðan síðasti dagurinn minn á almennri geðdeild. Annað kvöld er síðan stefnan sett á leikritið með fullri reisn. Kannski verður þetta bara fín helgi.

9. apr. 2003

Leiðtogar stjórnmálaaflanna...
...hittust í sjónvarpssal í gær og ræddu málin. Það var gaman að sjá hvað Ingibjörg Sólrún stóð sig illa. Það virtist sem allir hinir væru að gera grín að henni. Meira að segja Halldór utanviðsigráðherra tók hana á beinið. Davíð leiðrétti hana í hvert einasta skipti sem hún sagði múkk og hún gat ekki svarað fyrir sig greyið, glotti bara smeðjulega glottinu sínu og lofaði skattalækkun. Það gerði hún einmitt líka fyrir nokkrum árum í kosningabaráttu fyrir borgarstjórnarkosningarnar og í kjölfarið setti hún síðan holræsagjald á alla íbúa Reykjavíkur. Nú vill hún hækka skattleysismörkin en ekki lækka skattaprósentuna. Hún segir að þá fái allir sömu krónutöluna í skattaafslátt og segir að skattleysismörkin hækki um 10.000 í tveimur skrefum sem þýðir að skattaafslátturinn eykst um 3800kr á mánuði. Staðreyndin er hins vegar sú að þetta nýtist bara fólkinu með allra lægstu launin en ekki þeim sem hafa laun milli 100 og 200 þúsund. Þetta fólk er oft mjög illa statt fjárhagslega. Síðan vill hún hækka barnabætur svo einstæðar mæður hafi það betra. Ég spyr nú bara hvort ekki sé rétt að hækka meðlagsgreiðslur feðranna. Er ekki rétt að þessir menn beri ábyrgð á gjörðum sínum. Ég man ekki betur en meðlag á mánuði sé e-ð í kringum 15000 kr á mánuði. Ég hefði nú haldið að venjulegt barn kosti töluvert meira en 30000 kr. í rekstri á mánuði ef talið er með matur og húsnæði svo ekki sé nú talað um íþróttir og föt og annað skemmtilegt. Það á ekki að vera hlutverk ríkisins að bjarga einstæðum mæðrum heldur ættu feður þessara barna að blæða.
Annars var Steingrímur J. skemmtilegur eins og alltaf þó ég sé ekki einu sinni sammála því þegar hann geispar. Það er alltaf gaman að horfa á fluggreinda menn tala um pólítík og þá sérstaklega Davíð og Steingrím. Halldór er ágætur en Ingibjörg greyið veit nú lítið í sinn haus. Bullar bara tóma steypu og heldur því fram að hún ætli að taka Ísland af lista þeirra ríkja sem styðja stríðsrekstur í Írak. Ætli hún sé að kaupa sér atkvæði eða hefur hún íhugað þennan kost alvarlega? Ætli þetta sé ekki bara enn eitt kosningaloforðið sem hún ætlar að svíkja? Þau eru nú orðin töluvert mörg.
Þorgeir...
...er alltaf jafnfljótur að draga ályktanir. Þrátt fyrir að hann hafi haft réttar forsendur til að senda mér tölvupóst og hafi augljóslega reynt það þá hefur hann ekki skilað sér til mín. Þorgeir dregur þá undarlegu ályktun að það sé mér að kenna en ég get ekki séð að það sé mitt hlutverk að koma tölvupóstinum hans til skila. Annars er boxarinn svo forn í hugsun að það er kannski best fyrir hann að rækta bréfdúfur og koma skilaboðum sínum áleiðis þannig. Ég skal loka Stúdent inni Þorgeir minn.

Skemmilegar fréttamyndir
Í morgun gaf að líta þúsundir Bagdad-búa fagna komu bandarískra hermanna, m.a. með því að vanhelga myndir af Saddam Hussein. Það væri gaman að sjá hvað Holræsadrottningin segir við þeim.
Switzerland
Switzerland -
A neutral power for as long as most can remember,
it has avoided war for several centuries.
However, it is still considered highly advanced
and a global power.


Positives:

Judicial.

Neutrality.

World-Renouned.

Powerful without Force.

Makes Excellent Watches, Etc.


Negatives:

Target of Ridicule.

Constant Struggle to Avoid Conflict.

Target of Criminal Bank Accounts.



Which Country of the World are You?
brought to you by Quizilla

8. apr. 2003

Ástin...
...hefur reiðst mér fyrir yfirlýsingar í kjölfar leiksins á laugardaginn. Ekki var það ætlun mín að svekkja menn heldur miklu frekar að færa rök fyrir ákvörðun minni að hætta. Vona svo sannarlega að þetta verði ekki til þess að sletta upp á annars ágætan kunningsskap minn við marga leikmenn Ástarinnar sem eru flestir drengir góðir. Það má til dæmis sjá að margir af mínum bestu félögum verða áfram í Ástinni, t.a.m. Ingvar, Þór, Árni, Þorgeir, Höddi, Örvar, Maggi, Golli o.s.frv. Málið er bara það að ég hef aldrei verið sáttur við leikstíl eða uppstillingu liðsins sem mér finnst engan veginn endurspegla getu manna í liðinu og þá sérstaklega minnar eigin. Það er fáránlegt að láta framherja, sem kominn er af léttasta skeiði, er ekkert mjög leikinn að sóla menn og er aðeins rúmur meter á hæð, spila einan í fremstu víglínu. M.a.s. Houllier sem er lélegasti framkvæmdastjóri ensku úrvalsdeildarinnar dettur ekki í hug að stilla einum besta litla framherja heims einum í fremstu víglínu. Staðreyndin er sú að litlir framherjar þrífast yfirleitt á samspili, snerpu (relatívrí fremur en raunverulegri), stungusendingum og potum. Þeir þrífast á því að einhver annar búi til pláss fyrir þá. Í ljósi þess að leikaðferðin 4-5-1 hefur riðið húsum Ástarinnar sl. 2-3 ár sé ég því ekki að Ástin hafi nokkur not fyrir framherja eins og mig í sumar og ákvað því að leita á önnur mið.

Síðasta vikan...
...á almennri geðdeild er nú næstum hálfnuð og ég verð næstu 4 vikurnar á þremur jaðardeildum geðdeildar. Byrja á BUGLinu í næstu viku en það er Barna- og UnglingaGeðdeild Landspítalans. Síðan verður tekin vika á göngudeildum geðdeildar og loks verða það vímuefnadeildirnar í byrjun maí. Síðan eru próf í geð- og taugalæknisfræði 15. og 12. maí og svo vikukúrs í heimilislæknisfræði sem lýkur með prófi þann 24. maí. Síðan er bara Keflavík.
Keflavík...
...varð fyrir valinu á ráðningafundinum í gær og mun ég ásamt 7 bekkjarsystkinum mínum ráðast gegn pöpulnum suður með sjó frá og með mánaðarmótunum júní/júlí. Guð hjálpi suðurnesjamönnum. Erfiður fundur vegna svikráða spítalans og mikil óvissa fyrir stóran hluta fjórða árs nema og nokkra fimmta árs nema sem höfðu hug á að vinna á spítulunum en gátu ekki tekið stöður þar sem ákveðið var að bjóða þær ekki út. Næstu vikur munu þýða mikla óvissu fyrir þessa krakka

MUFC vs. RM
Mínir menn munu flengja Real í kveld og hlakka ég til að sjá Raul, Zidane, Figo og Ronaldo gráta í kór. Síðan verður gaman að sjá seinni leikinn eftir tvær vikur.

Lyftingar!!
Við Ingvar keyptum okkur kort í líkamsrækt í gær og ætlum að taka svakalega á því næstu 5 mánuði. Síðan verður maður bara að sjá til hvort maður lætur slag standa í haust og kaupir sér áframhaldandi áskrift að heilbrigði. Annars held ég að þetta verði mjög stíft planað sumar með mikilli vinnu, miklum fótbolta og síðan töluverðum skyldum gagnvart ættingjum og vinum. Kannski verð ég bara dauðuppgefinn í haust. Sjáum til.

7. apr. 2003

Helgin búin...
...og lífið gengur áfram sinn vanagang. Á föstudaginn hittumst við nokkrir strákar úr bekknum og fengum okkur mismikið af öli en líklega vorum við Árni og Andri hvað duglegastir. Við Árni þraukuðum til kl. 5 um morgunninn en það þýddi líka fremur dapran laugardag. Vaknaði með harmkvælum kl. 11 til að sjá MUFC taka Liverpool í rassgatið en síðan þurfti ég að renna í klippingu kl. 12.30 og missti því af síðari hálfleik. Það var svo sem allt í lagi. Maður nennir nú varla að horfa á United spila við botnliðin - þetta er svo létt. Eftir leikin lá leiðin síðan í skírnarveislu hjá Sverri og Helgu en þar fékk litla prinsessan nafnið Júlía Rósa og virtist henni líka það ágætlega, alla vega mótmælti hún ekki mikið. Júlía Rósa Sverrisdóttir er stúlkan því kölluð og ber það nafn með sóma.

Leikurinn afdrifaríki
Á laugardagskvöldið var ég síðan þátttakandi í einhverjum dapurlegasta knattspyrnuleik sem sögur fara af. Ástin hefur verið dugleg að spila æfingaleiki upp á síðkastið og hafa þeir yfirleitt verið spilaðir af mönnum sem ekki eru endilega mjög duglegir að mæta á æfingar (þ.m.t. mér sjálfum). Þarna öttum við sem sé kappi við stórliðið FC Diðrik sem getur ekki rassgat en samt tókst okkur ellefu sem mættum að skíttapa 4-0. Það hefði svo sem verið í lagi ef við hefðum hreinlega ekki átt það skilið. Við kláruðum ekki færin, gátum ekki gefið boltann, gátum ekki farið út af ef við vorum þreyttir, áttum ekki á hættu að vera skipt út af ef við vorum lélegir og svo mætti lengi telja. Ég var langt í frá skásti leikmaður Ástarinnar í leiknum, átti hreinlega lélegan leik en þó einn og einn sprett inn á milli sem skiluðu einhverju. Í stuttu máli var þetta dropinn sem fyllti mælinn hjá mér gagnvart Ástinni og hef ég því ákveðið að ganga til liðs við FC Forseta á Álftanesi. Það er nú frekar gert til að prófa eitthvað nýtt fremur en að það lið sé eitthvað hundrað sinnum betra. Óska ég Ástarmönnum velfarnaðar og vona að þeim gangi sem allra best í sumar. Það er nú einu sinni uppáhaldsliðið mitt og verður það enn um sinn. Ég hef bara ekki áhuga á að spila með þeim.

Kort...
...verður verslað í Þrekhúsinu/Sporthúsinu í kveld og farið að taka á því í gyminu. Við Ingvar ætlum að versla kort ásamt Ingólfi frænda frá Danmörku. Stefnan er sett á 130 kg í bekknum fyrir sumarið. Alltaf að stefna á tindinn.

Þorgeir...
...gerir sig breiðan og telur mig svara pósti slælega. Grundvallaratriði sem menn sem vilja láta svara pósti sínum ættu að hafa að leiðarljósi er það að vera vissir um að pósturinn manns berist þeim sem svars er krafist af. Ekki hefur mér borist einn einasti póstur frá Þorgeiri og er honum uppálagt að athuga vel hvert hann sendir slíkan póst. Bíttu annars í þig, Geiradrottinn. Skemmtilegt að Þorgeir skuli kalla stubbinn Geira. Það er alla vega það eina sem hann drottnar yfir eftir því sem ég veit. Öðru ræður Hrefna á því heimili. :)

4. apr. 2003

Jæja!
Kominn flöskudagur og maður verður að fara að skipuleggja helgina. Ætli maður taki ekki bara rólegt kvöld í kvöld en svo verður rosalegur dagur á morgunn. MUFC gegn Liverpool á Old Trafford í fyrramálið og svo klipping þegar seinni hálfleikur er hálfnaður. Síðan er það skírn hjá Sverri og Helgu kl. 15:00. Það verður spennandi að sjá hvaða nafn stúlkan fær en ég er nokkuð viss um hvað það verður. Að lokinni skírninni verður maður svo að gíra sig upp í átök því annað kvöld á Ástin æfingarleik við FC Diðrik sem er gamall fjandi Ástarinnar. Mun leikurinn fara fram á gervigrasinu í Laugardal og verður Ástin nú að sýna hvað koma skal í sumar. Koma svo drengir!!

Önni...
...svarar gagnrýni minni frábærlega og auðvitað hefur hann að mörgu leyti rétt fyrir sér. Einhvern veginn á ég samt erfitt með að mótmæla þessu stríði hástöfum því sannfæring mín er sú að það sé fólkinu í Írak hollast að koma Saddam frá völdum og vonandi verður það raunin. Ég held að það sé mjög nauðsynlegt að koma SÞ inn í þetta strax eftir stríðið og réttast væri að Bandaríkjamenn og Bretar bökkuðu strax að stríði loknu þaðan út. Síðan mundu SÞ sjá um friðargæslu á meðan lýðræðislega kjörinni stjórn yrði komið á. Auðvitað geri ég mér grein fyrir að fréttaflutningur af þessu stríði er bandamönnum hliðhollur - sagan er nú einu sinni skrifuð af þeim sem vinna. Þannig held ég að við hefðum fengið að heyra mun meira af grimmdarverkum Rómverja ef þeir hefðu ekki verið svona djöfull sigursælir. Vertu samt ekki , Önni minn, einn af þeim sem trúa bara þeim fáu fréttum sem eru hliðhollar Írökum og öllum þeim fáránlegu kenningum sem koma fram um tilgang stríðsins. Við vitum öll að þetta snýst um olíu og það að Bush litli er að hreinsa til draslið úr kústaskápnum sem pabbi hans fyllti af vandamálum, lokaði og læsti eftir vopnahléið í kjölfar Persaflóastríðsins. Ekki trúa því að Bandamenn sprengi viljandi markaði í Bagdad, þar sem saklausir borgarar eru samankomnir, til að draga úr baráttuvilja írakskra hermanna. Persónulega finnst mér líklegast að einhver flaug bandamanna hafi bilað og geigað eða hreinlega að einhver lesblindur gutti frá Ohio hafi verið látinn slá inn hnitin fyrir skotmarkið. Mér finnst líka mun líklegra að ef þessi markaður var sprengdur viljandi þá hafi það verið Írakar sjálfir frekar en Bandamenn. Ég er hins vegar alveg sammála því að við erum að búa okkur til fleiri Osama bin Ladena en útrýma og því er algerlega fáránlegt að kalla þetta stríð gegn hryðjuverkum.

1. apr. 2003

Boltinn
Íslenska landsliðið var heldur betur kaflaskipt um helgina. Hræðilegur fyrri hálfleikur með ömurlegum varnarleik ef frá er skilinn Guðni klettur. Fyrstu 30 mínúturnar í seinni hálfleik áttum við síðan völlinn og Skotarnir komust varla yfir miðju. Markið sem Eiður skoraði var náttúrlega glæsilegt og ekki var sendingin frá Jóhannesi síðri. Síðan átti Joey líka sendinguna þegar Eiður skallaði boltann frá markinu stutt seinna. Síðan var Lárus Orri alveg hrikalega sofandi í seinna marki Skotanna og eftir það var ekki sjón að sjá greyin í íslenska liðinu. Niðurstaða: Jóhannes og Rúnar eiga að stjórna miðjunni og Arnar Grétars sem aldrei hefur getað neitt í landsleikjum má hlýja bekknum. Lárus Orri á að spila fyrir kvennalandsliðið en ég er samt ekki viss um að hann væri nógu góður í það. Þessar stelpur eru orðnar svo góðar að líklega yrði hann bara aumingi þar líka.
Slappur!
Djöfull er maður nú orðinn slappur í þessu bloggi. Ekkert blogg um helgina þrátt fyrir frí. Það er reyndar búið að vera fullt að gera þrátt fyrir frí í skóla og vinnu. Á föstudag renndi ég til Eika Gests seinni partinn og svo var haldið upp á 25 ára afmæli Harðar og Heinrichs um kvöldið. Við Edda vorum boðin. Þar var tekið misvel á því og ég drakk nokkra niðursoðna bjóra og síðan tvo alvöru (lesist: ...úr flösku). Fór heim um eittleytið enda langur og erfiður dagur framundan á laugardeginum. Fór með Ingvari í smá bíltúr og síðan var sest niður yfir landsleikinn og nýja Champinn til kl. 18. Þá rauk ég heim og svo út að borða með mömmu gömlu og karlinum en hún átti sem sé sextugsafmæli á laugardaginn. Fórum á Einar Ben. og maturinn þar var hreint út sagt frábær og umhverfið einnig stórskemmtilegt. Þegar yfirþjónninn frétti að mamma ætti sextugsafmæli færði hann öllu borðinu, sex manns, ljúffenga skelfisksúpu í forrétt í boði hússins. Síðan var tekin klassísk kynjaskipting á aðalréttinn, karlarnir fengu sér nautalundir en konurnar lambahryggvöðva. Báðir réttirnir voru algert lostæti. Ís í eftirrétt og kvöldið var fullkomnað. Síðan var tekinn seinni hálfleikur í Champ hjá Ingvari um nóttina.
Á sunnudeginum var síðan fermd frænka hennar Eddu sem heitir Stefanía Höskuldsdóttir. Það var held ég flottasta fermingarveisla sem ég hef verið viðstaddur. Kökurnar voru frá einhverjum bakara í Kópavogi og voru þær bæði fallegar og ljúffengar. Síðan var að sjálfsögðu tekinn bolti um kvöldið og að lokum ljúfur svefn.

Önni......
fer með fleypur á síðu sinni þar sem hann talar um bandaríska kviðdómendur. Ekki nóg með að þeir megi víkjast undan kviðdómsskyldu einu sinni á ævinni án útskýringar heldur geta þeir fengið frí frá skyldunni ef þeir færa góð rök fyrir máli sínu, t.d. vegan fjárhagslegra skuldbindinga eða einhvers slíks. Hins vegar ber þeim skylda skv. lögum að gegna starfi kviðdómanda minnst einu sinni á ævinni ef ég man rétt. Það er því ekki rétt hjá Önna að maður verði að sitja í kviðdómi sama hvernig stendur á. Það er hins vegar greinilegt að Önundur hefur tapað greind sinni einhvers staðar á leiðinni í sinni óendanlegu baráttu gegn stríði í Írak. Það er alltaf þannig með fólk sem berst af innlifum fyrir einhverju (eða gegn því) að það tapar oft bæði raunveruleikaskyni sínu og vilja til að segja satt og rétt frá. Það er svo auðvelt að beygja aðeins sannleikann til að koma sannfæringu sinni áleiðis en það mega greindir menn eins og Önundur ekki gera. Þegar íraskir hermenn stilla saklausum borgurum upp fyrir framan hernaðarlega mikilvæg skotmörk hugsar Önundur: "Nei heyrðu mig nú. Það deyja kannski saklausir borgarar í þessu stríði ef við skjótum vondu karlana. Best að sleppa því bara alveg að drepa þá." Ég hugsa hins vegar: "Illum mönnum sem nota saklausa borgara, konur og börn sem hlífiskildi fyrir ólöglega vopnaframleiðslu og ólöglegt stjórnarfar, verður að koma frá áður en þeir fá tækifæri til að vinna þessum sömu saklausu borgurum enn meira mein." Hvað ætlar Önundur að gera þegar og ef Írakar gera árás á Bandaríkjamenn í kjölfarið á flóttamannastraumnum? Hvað vill Önundur gera við menn sem skjóta á 2-3000 konur og börn sem reyna að flýja frá víglínunni í Basra? Sleppa því að ráðast á þá því það eru kannski fleiri saklaus börn og konur í borginni? Ég er sjálfur andvígur því að leysa málin á þann máta sem Bandaríkjamenn og Bretar kusu, a.m.k. ef það er gert án samþykkis SÞ en að hlusta á og lesa skrif jafngreindra manna og Viðars og Önundar um þetta stríð er sorglegt. Þeir eru algerlega blindir í andstöðu sinni við stríðið - strákar, takiði hausinn upp úr sandinum. Reyndar held ég að hugsjónir Viðars litist svolítið af því að hann er í þeim skóla í BNA sem hefur líklega verið hvað virkastur í mótmælum gegn bandarískum stjórnvöldum í gegnum tíðina. Flest stúdentamótmæli gegn Víetnam-stríðinu voru skipulögð frá Berkeley ef ég man rétt. Leiðréttu mig annars gamli vinstri skröggur (lesist Viðar).

Meira af Viðari
Ljómandi fín mynd af Guðbjörgu mömmu hans Viðars í mogganum í dag þar sem hún tekur á móti styrk fyrir hans hönd úr einhverjum sjóði sem ég man ekki í svipinn hvað heitir. Viðar er svo mikið sjení að það er svindl.

27. mar. 2003

Boltinn
Læknanemaboltinn var í kvöld. Hann er langerfiðasti boltinn í vikunni því læknanemar þola ekki að tapa. Rosaleg barátta og jafnvel slagsmál. Yfirleitt slasast einhver og stundum hafa menn verið frá lengi. Nú síðast sleit Týri á 6. ári einhver ökklaliðbönd. Svo er bara að fylgjast með því hvort þetta verður áfram næsta vetur þegar helmingurinn rúmlega verður útskrifaður (lesist útskúfaður).

Gamla hestamannasonaþríeykið
Spjallaði við Eika og Hjalta á MSN í kvöld. Stefnir í að þetta sumar verði rosalegt. Fullt skipulagt. Reunion, grill hjá okkur, flutningar, útilegur, hestaferð og ég veit ekki hvað og hvað. Ætli ég hafi tíma til að vinna?

Undirskrift í gær
Í gær munduðum við Edda pennann og skrifuðum undir kaupsamning að íbúðinni í Hólmgarði og hún situr því uppi með mig greyið. Fáum líklega afhent helgina fyrir frestinn sem rennur út þriðjudaginn 15. júlí. Þá verður sett á fullt að mála og laga svo við getum flutt inn laugardaginn þar á eftir. Erum strax orðin alveg yfirgengilega spennt.

24. mar. 2003

Föstudagurinn langi...
...kemur greinilega snemma í ár á Hlíðarenda. Það ætti kannski einhver að benda Gunna litla á hvenær páskarnir eru í ár.

Eru Íslendingar fífl eður ei - þar liggur efinn
Annars finnst mér frábært að Íslendingar skuli vera að haga skoðunum sínum á stjórnvöldum út frá því hvaða skoðun þau hafa á stríðsrekstri hinum megin á hnettinum. Kannski fólk ætti að líta á stjórnun ríkisstjórna Davíðs Oddssonar sl. 12 ár og síðan vinstri stjórnarinnar þar á undan. Æ, hvað það er hræðilegt fyrir Denna litla. Síðan er hann orðinn einhver spesjalisti hjá rauðu rollunni á sunnudögum af því að einhverjum súkkulaðibrúnum lækni datt í hug að skrifa um hann lygasögu. Merkilegt að fólk skuli trúa orði af því sem stendur í þessari bók miðað við það að hann mundi greyið ekki stundinni lengur það sem hann sagði sem forsætisráðherra sbr. "mig brestur minni" rulluna hans. Eru Íslendingar fífl eða?
Lítil saga!
Einu sinni var maður sem hét Hsub Egroeg. Hann átti heima í alveg risalega stóru húsi og hafði rosalega mikið af starfsfólki sem talaði eiginlega bara kínversku og spænsku. Hann átti nágranna sem var stórskrýtinn kall og hér Niessuh Maddas. Niessuh átti heima í fátæklegum hundakofa langt í burtu frá Hsub en einu sinni fyrir langa löngu hafði hann dissað pabba Hsub og því ætlaði Hsub að sýna honum í tvo heimanna. Hsub var líka sannfærður um að Niessuh ætlaði að skjóta hann en gat bara ekki fundið byssuna hans með löglegum leiðum. Hann afréð því að brjóstast inn til Niessuh en þegar hann gerði það dró sá síðarnefndi upp byssu og skaut í áttina að Hsub til að reka hann í burtu. Þá sagði Hsub: “sjáiði bara, ég vissi að hann ætlaði að drepa mig og gulu, brúnu, grænu og bláu starfsmennina mína”. Góð saga Gísli!!

Prinsipiessa Sverrisdóttir
Við Edda fórum að heimsækja Helgu, Sverri en þó fyrst og fremst litluna þeirra á sunnudaginn. Hún er í stuttu máli voða lítil og sæt. Það er í raun ótrúlegt því hún er líka alveg rosalega lík Sverri og ég hélt það gæti ekki farið saman. Hátíðnihljóðin í Eddu héldu síðan fyrir mér vöku í nótt og því brá ég á það ráð að horfa á Hina Vammlausu sem sýnd var fyrir Óskarinn á Stöð2 í gærkvöld. Hún er alltaf jafnmikil snilld. Síðan sofnaði ég nú áður en Óskarinn byrjaði.

Boltinn
Rúðan snillaðist um helgina og setti þrennu. Sérstaklega var annað markið hans snilld – skorað eftir 50m einleik upp völlinn fram hjá a.m.k. 5 varnarmönnum Fulham. Arsenal þurfti síðan endilega að vinna Everton með einhverri hundagrís í gær en það getur ekki verið að þeir verði svona heppnir út tímabilið. Bíðum bara og sjáum.
United þurfti síðan auðvitað að fá Real Madrid í Evrópukeppninni og verður gaman að sjá hvernig þeim tekst upp með þá. Kannski þeir vinni þá loksins í ár – hver veit?

20. mar. 2003

Bloggarar slakir!
Það er nú orðið ljóst að bloggeðli þessa hóps hefur hrakað rosalega síðustu daga og verður að segjast að m.a.s. Viðar hefur ekki staðið sig sem skildi. Skemmtilegt er líka að efst á síðu Þorgeirs er enn nokkurra daga gömul færsla um hvað Gunni er slappur í blogginu. Kaldhæðnislegt ekki satt í ljósi þess að Þorgeir hefur ekki verið með þeim duglegustu sjálfur. Mun ég hér með skora á alla þessa aumingja að blogga minnst 2x fram á mánudag ella verða þeir allir færðir niður um eitt sæti á bloggalistanum. Sjáum hvað setur.

Boltinn
Það var gaman að heyra grátinn í Arsenal-mönnum eftir leikinn í gær. Þeir voru ósáttir að fá ekki víti í lokin þegar Pires lét sig detta. Kannski var einhver pínulítil snerting en hún var svo sannarlega ekki nógu mikil til að hann dytti og ef hann hefði viljað hefði hann alveg getað haldið áfram án þess að láta þessa litlu snertingu trufla sig. Er það ekki einmitt það sem leikaraskapur gengur út á. Ef það er snerting sem hvorki hefur áhrif á jafnvægi leikmanna eða rænir þá tækifærinu til að halda áfram þá á ekki að dæma auka-/vítaspyrnu. Ef maður hefur þetta í huga var þetta klárlega leikaraskapur hjá Pires og ég held að allir geta verið sammála um það. Hann var ekki felldur heldur lét hann sig detta þegar leikmaður Valencia snerti hann lítillega. Því átti hann að sjálfsögðu að fá gult fyrir leikaraskap og síðan annað gult eða jafnvel beint rautt fyrir að standa upp og sparka í leikmann Valencia. Síðan átti leikmaður Valencia auðvitað líka að fá gult fyrir að kasta sér niður eftir svona aumingjalegt spark frá Pires þannig að ef maður lítur á þetta hlutlaust var dómarinn algerlega að skíta á sig í þessu máli. Ef við lítum hins vegar á árangur ensku liðanna í þessarri keppni þá er augljóst að United er eina liðið sem fer áfram í þessari keppni þrátt fyrir að vera raunverulega í alveg jafnerfiðum riðli, ef ekki erfiðari en bæði Arsenal og Newcastle. Arsenal var með Ajax sem eru nú reyndar sæmilega góðir en reynslulitlir, Roma sem hefur ekkert getað í vetur nema kannski nú síðustu vikurnar og síðan Valencia sem eru að sjálfsögðu mjög sterkir. Newcastle voru með Inter sem eru held ég í 2. sætinu á Ítalíu, Barcelona sem eru reyndar að skíta á sig heima en eru taplausir í Evrópukeppninni í ár (og raunar bara búnir að gera eitt jafntefli ef ég man rétt) og síðan Leverkusen sem geta ekki rassgat. United var með Juventus sem er efst í Serie A, Deportivo sem eru í þriðja sæti á Spáni og síðan Basel sem er líklega slakasta liðið af þessum öllum en þó spútniklið keppninnar í ár. Þegar öllu er á botninn hvolft var það bara lélegur varnarleikur sem Arsenal var að detta út úr keppninni á. Þeir voru að fá á sig tvö mörk í gær eftir lélegan varnarleik og eins misstu þeir 6 stig á heimavelli með því að gera 3 jafntefli í leikjum sem þeir áttu að vinna. Þetta lið er að hrynja og ég held að Newcastle taki ensku dolluna í vor. United verður í öðru sæti og síðan koma aumingjarnir í Arsenal með eina skitna bikardollu og þriðja sætið. Það er ekki nóg að eiga besta framherja í heimi ef Parlour og Wiltord eru í liðinu og Bergkamp þorir ekki að fljúga.

Innrásin í Írak...
...er því miður hafin. Ég held að við séum því miður að horfast í augu við nýtt varnarbandalag Bandaríkjanna, Bretlands og svo einhverra smáþjóða sem engu máli skipta eins og Íslands. Það er einlæg von mín og margra annarra að þetta taki af sem fyrst og Saddam verði flengdur og steiktur á teini fyrir marslok og síðan verði sett almennileg stjórn þarna. Þá geta kanarnir stjórnað olíuverðinu og bara allir sáttir. Annars sá ég svolítið merkilega umfjöllun í 60 Minutes nú í vikunni þar sem tekin voru viðtöl við unglinga í Bandaríkjunum sem gengu um göturnar og mótmæltu stríði. Enginn aðspurðra hafði hugmynd um hvað var í gangi. Einn gat nefnt Hussein eftir að hafa heyrt fornafnið Saddam en restin hélt að Osama bin Laden væri leiðtogi Íraks. Enginn vissi hvar Írak er og allir héldu að átökin væru þegar hafin og voru því með spjöld sem á stóð "Stop killing innocent women and children" og eitthvað því um líkt. Ætli mótmælendur hér á landi séu betur að sér? Það væri gaman að kanna það.

19. mar. 2003

Til hamingju…
…Sverrir og Helga með frumburðinn. Sveppi og Helga eignuðust víst algjöra prinsessu í morgunn og fá fullt af hamingjuóskum frá Ljós-Gíslanum og spúsu hans. Vonum bara að hún fái útlitið frá móður sinni en afganginn má hún svo sem fá frá hvoru þeirra sem er. Afmælisdagurinn 19. mars er alls ekki svo slæmur því ef ég man rétt þá á Ingibjörg systir hans pabba einmitt afmæli á þessum degi. Svo á Helga líka sjálf afmæli á morgun og amma á síðan afmæli hinn daginn þannig að það eru tómir stórsnillingar sem eiga afmæli þessa daganna. Síðan má auðvitað ekki gleyma betri helmingnum af settinu sem verður sextug 29. mars næstkomandi og tæpum mánuði seinna verð ég síðan sjálfur aldarfjórðungaður. Kannski maður haldi bara upp á herlegheitin.

Boltinn
Mínir menn kláruðu þennan riðil fremur dapurlega en það jákvæða er reynslan sem þessir guttar fengu. Þessi Darren Fletcher ætlar svo sannarlega að standa undir væntingum og skv. netmiðlum var hann frábær í leiknum í gær. Þeir fá líka fína dóma í vörninni – Lee Roche og Mark Lynch en það var leiðinlegt fyrir þann síðarnefnda að gera sjálfsmark í fyrsta leik sínum fyrir liðið í Evrópukeppninni. Síðan komu Danny Webber og Kieran Richardson inn á í lokin og áttu víst lipra spretti. United virðist því loksins vera að koma með aðra holskeflu af snillingum inn á sjónarsviðið en það má ekki gleyma því að Bojan Djordic og Daniel Nardiello voru ekki með í gær en þykja líklega tvö mestu efnin í varaliðinu ásamt Mads Timm sem hefur ekkert fengið að spreyta sig með aðalliðinu. Vonandi fær maður að sjá hann fljótlega.

Írak
Ég veit nú ekki hvort ég á að hætta mér út í þá umræðu sem hefur tvístrað landinu í tvær fylkingar sl. vikur. Ég get nú byrjað á því að segja ykkur að mér finnst alger ósvífni hjá Kananum að gera innrás án samþykktar SÞ en það er hins vegar ljóst að þessi stofnum hefur algerlega tapað áttum sl. ár. Hún hefur beitt þeirri læknisfræðilegu kúnst að “obsa” allt fram í rauðan dauðan. Að obsa er dregið af orðinu observation sem þýðir raunverulega að bíða bara átekta og athuga hvort allt verði ekki í lagi. Þetta virkar vel í læknisfræði en ekki alþjóðlegri pólítík. Þeir taka aldrei neinar ákvarðanir heldur slá öllu á frest og skíta síðan í buxurnar af bræði þegar einhver dirfist að framkvæma eitthvað. Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar að stærstu mistökin varðandi Persaflóastríðið hafi verið þau að klára ekki bara dæmið. Það átti aldrei að leyfa manninum að gefast upp – bara klára dæmið, koma honum frá og leyfa síðan þjóðinni að velja sér nýjan leiðtoga. Ég er enn þeirrar skoðunar að heimurinn verði betri án Saddams í honum en ég er hins vegar ekki tilbúinn að styðja aðgerðir sem ganga gegn samþykktum alþjóðasamfélagsins jafnvel þótt það sé fyrst og fremst rauðir Rússar og aumingja Frakkar sem standa í vegi fyrir þessum aðgerðum ásamt Þjóðverjum sem hafa nú alltaf verið á móti öllu þar sem þeir eru ekki sjálfir í aðalhlutverki. Ég vona bara að Bush hafi vit á því að klára þetta eins og í Afganistan og láta síðan völdin í hendur fólksins en ekki einhverra einræðisherra eins og forvera hans var venja. Sjáum hvað setur.

17. mar. 2003

Hótel Hell
Þegar ég var átján vetra og fjórum mánuðum betur fór ég ásamt Arnari frænda, Sigga Anton og fleirum (m.a. Ýr sem mörgum árum seinna sá gullið í gegnum þykkan skráp Arnars og er kærastan hans í dag) til London í svokallaða Flakk-ferð. Flakkferðir voru skipulagðar af jafningjafræðslu Hins hússins og voru að sjálfsögðu “vímulausar”. Altént þá gistum við á hóteli sem í ferðinni var jafnan kallað Hótel Hell. Nú vill svo skemmtilega til að Önundur dvaldist á þessu hóteli sl. helgi en þetta er að sjálfsögðu það ömurlega Hotel Generator sem stendur steinsnar frá ógeðslegustu neðanjarðarlestarstöð Lundúna – King’s Cross. Þess má til gamans geta að það var einmitt í þessari ferð sem Páll Óskar lét þau fleygu orð falla að allir sem væru lamdir í London ættu það skilið. Palli var síðan eins og frægt er orðið, laminn af róna/dópista á King’s Cross stöðinni síðasta kvöldið okkar í London. Það kann nú að vera að til séu fleiri en eitt Hotel Generator eða þá að þetta sé sama hótelið en sé flutt. Þetta er þó skemmtileg tilviljun að tveir erkisnillingar eins og ég og Önni skulum enda á sama hótelinu í London með svo margra ára millibili.

Helgin…
…var asskoti viðburðarík. Á föstudaginn fór ég ásamt heilum her af leikskólapæjum á árshátíð Leikskóla Reykjavíkur. Var hún haldin með mikilli viðhöfn á Broadway sem hét nú einu sinni Hótel Ísland. Þarna var matur og skemmtiatriði og að því öllu loknu spiluðu Milljónamæringarnir ásamt Bjarna Ara og Ragga Bjarna fyrir dansi. Þetta var bara helvíti gaman – miklu skemmtilegra en ég þorði að vona. Síðan var stefnan sett á Herrakvöld Hannesarmanna á laugardaginn. Ég var merkilega lítið þunnur og til í tuskið en gerði þau mistök að ætla á fyrsta rauðvínsdjammið mitt. Eftir að hafa hesthúsað einni Koonunga Hill árgerð 2001 sagði maginn “stoppa hér” og ég fór heim með skottið á milli lappanna og sofnaði við sjónvarpið heima hjá Eddu – illt í maganum. Ég lofa að gera betur næst Hannesarbræður. Afleiðing skjótra endaloka laugardagsdjammsins voru að sjálfsögðu þau að ég var ekki vitund þunnur í gær og fór meira að segja í bæinn með Eddu. Hún keypti sér sófa í Tekk vöruhús sem hún ætlar að geyma í skúrnum hjá tengdó fram á sumar. Díllinn var sá að ég mundi kaupa rúm í sumar þegar ég á fullt af peningum. Kannski maður kíli bara á það. Hins vegar sést á þessu hversu hýddur ég er því ég ætlaði að standa á því fastar en nokkru öðru að fyrst yrði keypt rúm og síðan sófi. Nú erum við búin að kaupa tvo sófa en ekkert rúm. Ég er brjóstumkennanlegur. Ég ætla að stofna samtök sem heita WA (wipped anonymous).

14. mar. 2003

Nýr hlekkur
Haukur Örn Birgisson er mikil frelsishetja og snillingur. Hann heldur meðal annars með réttu liði. Vegna baráttu hans gegn ríkisbákninu fær hann að sjálfsögðu titilinn Braveheart.
Vegna fjölmargra áskorana hef ég líka ákveðið að útskýra viðurnefni manna hér til hliðar.
Fyrstan skal nefna Ingvar Jón Hlynsson sem löngum hefur getað villt á sér heimildir vegna suðræns útlits. Man nú ekki hver fann upp á þessu viðurnefni en það festist í sessi eftir að reynt var að svindla Ingvari inn á hótel KEA á Akureyri undir því yfirskini að hann væri króatískur handknattleiksmaður sem Alfreð hefði reddað til Íslands. Síðan hefur Ingvar verið kallaður Króatinn og íbúð hans að sjálfsögðu Króatía. Til hamingju með Evrópumeistaratitilinn í handbolta Ingvar.
Næstur í röðinni er stórsnillingurinn Viðar Pálsson sem var alltaf kallaður Bjúgan í Garðabænum, líklega vegna þess hve boginn hann er. Viðar er búsettur í Berkeley í USA og því kemur forskeytið.
Þá er röðin komin að Gunnari Thoroddsen, mínum elsta og besta vini og það eru tvær ástæður fyrir því að hann er ekki efstur á lista hér. Hann bloggar aldrei og hefur aldrei hjálpað mér að setja linka á síðuna mína. Gunnar er nefndur Dreifarinn af augljósum ástæðum, hann býr á Álftanesinu og hyggst búa í Keflavík í framtíðinni. Það sem menn gera ekki fyrir drátt :).
Næstur er hinn íturvaxni Þór Gunnlaugsson sem hefur margt ölið sopið. Á einu slíku fylleríi tókst honum að láta baða sig með duftslökkvitæki og var eins og snjókall á eftir. Því hefur hann verið nefndur Snæfinnur.
Svo kemur röðin að Baddý Annelsdóttur (hún heitir Bjarney) sem er spúsa Dreifarans. Hún er úr Keflavík og því nefnd Keflavík.
Sjálfstæðisfálkinn er Haukur Þór Hauksson Haffabróðir. Haukur er mikill sjálfstæðismaður og Haukur er annað nafn á fálka. Því kom ekkert annað til greina en Sjálfstæðisfálkinn.
Hjörleifur Pálsson er mikill stórsnillingur ekki síst fyrir þær sakir að vera bróðir Bjúgunnar og því fær hann nafnið Bjúgubróðir.
Næst er síðan eiginkona Viðars Inga Huld Tryggvadóttir sem er af Seltjarnarnesinu og er mikil pía þannig að hún fékk nafnið Nespían.
Síðan er röðin komin að Þorgeiri Ragnarssyni sem á eiginkonuna Hrefnu Sigurjónsdóttir. Þegar Þorgeir var að reyna við Hrefnu voru það kallaðar hrefnuveiðar í vinahópnum. Skutullinn er auðvitað tákn hvalveiðimanna en Hrefna er auðvitað langt frá því að vera hvalur.
Ljóskan er Sigurjón Örn Sigurjónsson sem þrátt fyrir gífurlega greind hefur oft á tíðum látið út úr sér ljóskulegan orðaflaum. Skemmst er að minnast þess þegar hann viðurkenndi fyrir alheiminum að hann fattaði ekki brandarann með Britney's Guide to Semi-Conductor Physics og var það kveikjan að hlekknafninu.
Sverrir Guðmundsson er með fróðari mönnum og oft gaman að lesa skrif hans. Nafnið hefur oft leitt af sér viðurnefnið Sveppurinn og Sverrir þessi var mikill spurningabani í Gettu betur á árum áður. Því nefnist hann Spurningasveppurinn.
Næstur er Önundur Páll Ragnarsson sem ku vera bróðir Þorgeirs. Það er allt flókið sem Önni lætur frá sér en flest er það fyndið. Auk þess leggur hann stund á nám í skúrksfræðum (lögfræði) og því nefndur Lagaflækir.
Síðan er komið að Hjalta Kristjánssyni, æskuvini mínum sem líklega fæstir sem heimsækja þessa síðu kannast við. Hann er snillingur í boltanum en auk þess hrókur alls fagnaðar hvert sem hann kemur alveg eins og trúðar eru gjarnan. Því er hann nefndur Boltatrúðurinn.
Er þá yfirferðinni lokið - verði ykkur að góðu.
Boltinn
Hvað er gerast. Geta menn ekki drullast til að vinna Basel. Fletcher og Richardson voru í byrjunarliðinu og skv. Soccernet kremuðu þeir í sig eins og ungabörn (sem þeir og eru). En þetta skiptir auðvitað engu máli því við erum búnir að vinna riðilinn.

Ástin…
…spilaði gegn Áreitni í kvöld og má vægast sagt segja að mætingin hafi verið dapurleg – enginn Viktor, enginn Jón, enginn Árni, enginn Oddur, enginn Helgi, enginn Sverrir í markinu og svo mætti lengi telja. Það kom því ekki á óvart að Ástin reið ekki feitum hesti frá þessum leik. Það mætti eiginlega segja að við höfum verið eins og Jói maur að nauðga flóðhesti. Við byggðum spilið okkar á því að stoppa sóknir andstæðinganna við vítateigslínu því miðjan var alveg steingeld. Örvar og Þór voru góðir auk þess sem bakverðirnir skiluðu sínu ágætlega en það var sorglegt að sjá hvað kom lítið út úr köntunum okkar. Við vorum heppnir að komast yfir eftir að Þór fékk að skalla hornspyrnu undirritaðs óáreittur í netið. Glæsilegt mark hjá Þór. Staðan var því 1-0 í hálfleik en fljótlega í seinni hálfleik tókst leikmönnum Áreitni að jafna metin með ágætu marki. Skömmu síðar komumst við aftur yfir eftir glæsilega stungusendingu Þorgeirs á “stjörnustrikerinn” sem komst fram hjá markverðinum og skilaði boltanum í autt markið. Strax á eftir kom slök fyrirgjöf fyrir markið sem Hörður greip en missti í lappirnar á varnarmanni og inn. Það var síðan 5 mín fyrir leikslok að leikmenn Áreitni komust einir inn fyrir og tryggðu sér sigur eftir nær linnulausa sókn allan seinni hálfleik. Sanngjarn sigur. Ég held raunar að það sé alls ekkert sniðugt fyrir Ástina að vera að spila á þessu stigi málsins og við ættum frekar að einbeita okkur að því að æfa sendingar og spilamennsku. Það var hrikalegt að sjá hvað það var lítil hreyfing á liðinu (undirritaður meðtalinn) og þá sjaldan að miðjan bauð sig voru menn að kjassa við boltann með nokkrum cha-cha-cha sporum áður en þeir reyndu að losa sig við boltann. Auðvitað fengu þeir engan tíma fyrir slík dansspor og boltinn nær undantekningalaust hirtur af þeim. Maður leiksins var tvímælalaust Örvar en Maggi var ágætur í holunni og Þór í vörninni. Nýju mennirnir stóðu sig ágætlega en það er augljóst að þeir verða að kynnast mannskapnum betur. Ég held að ég fari að kíkja á FC Forseta til að kanna málin þar. Ástin er samt að koma sterk inn en það er líka ágætt að breyta til ef hún lifir ekki af vorið. Sjáum til.

12. mar. 2003

Vinna, vinna, vinna!!
Er að fara á vaktina á barna í kvöld og nótt, síðan á ég vakt á mánudaginn í næstu viku og svo er ég búinn með vaktirnar á barna þennan mánuðinn. Á þó að taka vaktir á geðdeildinni (skólinn) 21. mars og svo 1. apríl. Síðan er það bara massívur próflestur og svo kúrsus í heimilislæknisfræði sem endar með prófi og fylleríi þann 24. maí næstkomandi. Ætli maður reyni ekki að halda upp á afmælið sitt í kjölfarið og síðan er það bara sumarið með vinnu, vinnu, íbúð, vinnu, vinnu, vinnu, útilegu og svo smá vinnu líka sem tekur við. Kannski þetta verði bara fínt sumar.

Boltinn
Rassenal gerir frábæra tilraun til að skíta á sig í meistaradeildinni. Hafa nú spilað alla heimaleiki sína í riðlinum og gert jafntefli í þeim öllum. Eiga nú bara eftir að mæta Valencia á Spáni og svo detta þeir út svo framarlega sem Ajax tapar ekki fyrir Roma í Rómarborg. Mikið ætla ég að brosa næstkomandi miðvikudag. Á meðan eiga mínir menn bara eftir formsatriðin því þeir eru búnir að vinna riðilinn sinn nú þegar. Þeir mega tapa báðum leikjunum sem eftir eru 40-0 og samt vinna þeir riðilinn. Spurning um að leyfa gríslingunum að spila smá Evrópubolta.

Merkilegur þessi haus minn
Hann er búinn að vera leiðinlegur við mig síðustu daga/vikur. Ég er búinn að vera með krónískan höfuðverk síðustu vikur og hef ég sett það í samband við stressið í kringum íbúðarkaupin en nú er það yfirstaðið og höfuðverkurinn má alveg fara fyrir mér. Vertu sæll, gaman að kynnast þér .

10. mar. 2003

Helgin!
Vá hvað þetta var yndislega erfið og löng helgi. Byrjaði á því að sofa í 4 klst aðfaranótt föstudags og síðan var verklegt próf í taugalæknisfræði massað með stæl. Mér hefur sjaldan gengið jafnvel í verklegu/munnlegu prófi og því var ég mjög glaður en þreyttur á föstudaginn. Ég var meira að segja svo þreyttur að ég treysti mér ekki í bæði grill og vísindaferð og ákvað því að láta grillið duga. Sveik þar með félaga mína í læknisfræðinni sem ég hafði planað að hitta um kvöldið. Fór bara tiltölulega snemma að sofa enda stóð til að vinna daginn eftir. Mætti síðan kl. 0900 á laugardaginn í vinnuna á barnadeildinni og eyddi næstu 24klst þar á fremur rólegri vakt. Fékk m.a.s. að sofa töluvert um nóttina. Síðan var sunnudagurinn tekinn í að skoða sófa og borðstofuborð í IKEA. Þaðan fórum við í heimsókn til Helgu og Sverris, sátum þar í 2 tíma og spjölluðum um heima og geima en þó aðallega yfirvofandi frumburð þeirra hjóna sem er áætlað að skríði í heiminn næstkomandi föstudag. Óska þeim skötuhjúum auðvitað góðs gengis og vona að barnið fái greind móður sinnar þegar kemur að íþróttum því Sverrir er haldinn þeim algenga og hvimleiða kvilla að halda með Liverpool. Að heimsókninni lokinni var brunað í kjúlla hjá mömmu og síðan var tekið á því í boltanum þar sem mæting var slæm (7,5 manns).

Geðdeildin
Í morgunn var síðan kominn nýr dagur og ný deild til að takast á við. Næstu fimm vikurnar verð ég á geðdeild 22A á Landspítalanum og síðan taka við þrjár vikur sem deilast á göngudeildir geðdeildar, BUGL og vímuefnadeildir. Síðan er bara komið vor með 25 ára afmæli og gleði. Sumarið kemur síðan með nýrri íbúð, vinnu og almennri gleði. Þrátt fyrir drunga geðsjúkdómanna leggjast næstu mánuðir alveg hrikalega vel í mig. Fullt af spennandi nýjum verkefnum og líklega verður það erfiðasta að kenna Eddu að halda með almennilegum liðum t.d. Víkingi í stað Vals, MUFC í stað Rassenal og svo mætti lengi telja. Hvernig er hægt að halda með Rassenal - þeir eru ýmist ljótir, lélegir eða franskir.

7. mar. 2003

Vísindaferð fram undan
Er að drepa tímann fram að vísindaferð í Stoðtækni á eftir. Síðan verður tölt í grill heima í tilefni af íbúðakaupum. Síðan er það auðvitað vinnan eins og venjulega á morgun. Ætli maður verði ekki í goody fíling á sunnudaginn í boltanum. Læt þetta duga í bili. Læt kannski heyra meira í mér í kvöld.
Boltinn
Mínir menn rétt að druslast til að vinna Leeds í gær. Silvestre með sigurmarkið – mér þætti gaman að sjá hvernig hann datt um boltann. Annars held ég að það þurfi eitthvað meiri

Ástin
Fyrsta Ástaræfing vetrarins á gervigrasi lofaði góðu. Mæting upp á 15 manns og nokkrir nýjir og sumir þeirra góðir. Einnig sáust gamlir taktar hjá einhverjum. Þetta eykur verulega á líkurnar á að ég haldi tryggð við Ástina í sumar en þótt ótrúlegt megi virðast hefur þessum litla, feita sóknarmanni verið boðið að ganga til liðs við annað utandeildarlið. Ekki er það þó vegna ótrúlegra hæfileika heldur meira vegna vinskapar frá fornu fari.

Fór í bæinn í dag…
…og keypti mér kók, kúlur, íbúð og tyggjó. Kókið rann ljúft niður með kúlunum og andremmunni var eytt með tyggjóinu. Íbúðinni verður hins vegar erfiðara að sporðrenna en hún ku vera staðsett að Hólmgarði 50 í Reykjavík. Áhugasömum er bent á götukort símaskrárinnar. (getur þetta verið rétt?). Íbúðin kostaði litlar 10,7 milljónir króna sem Davíð kallinn lánaði mér úr mútusjóðnum og svo lagði Edda aðeins í púkkið líka. Hún er reyndar ekki nema 57,5 fm (þ.e. íbúðin sjálf) en afskaplega vel skipulögð og lítið sem ekkert þarf að gera áður en flutt er inn. Þetta er sam sé tveggja hæða fjölbýlishús með 10 íbúðum, frábærri sameign þar sem meðal annars er leikherbergi fyrir börn, slatti af sameiginlegum geymslum og rúsínan í pylsuendanum er síðan saunan í kjallaranum. Húsið þarf mjög lítið viðhald næstu árin sem er gott. Ekki má heldur gleyma svölunum sem eru afar grill- og sólbaðsvænar. Þar hafið þið það.

6. mar. 2003

Meiðyrðamálið
Ég hef verið að spekúlera. Jón Ásgeir getur ekki farið í meiðyrðamál við Davíð því hann er hreinlega að greina frá staðreyndum. Hreinn Loftsson hefur viðurkennt að hafa haft orð á þessu á umræddum fundi í Rassenal-borg og því hefur Davíð engu logið á Jón Ásgeir. Hann hefur ekki einu sinni fært í stílinn. Mér fannst svolítið til í því sem Eggert Skúlason sagði í sjónvarpinu í gær að ef maður ætlaði að múta einhverjum sem maður vissi ekki hvernig tæki því þá mundi maður einmitt setja tillöguna fram í hálfkæringi. Ef einstaklingurinn brigðist ókvæða við mundi maður auðvitað bakka og slá öllu upp í létt grín en ef hann tæki vel í það væri maður að rokka bústinn nashyrning. Það er því algert aukaatriði að Hreinn skuli hafa slegið þessu fram í hálfkæringi. Hann bauðst sem lögfræðingur Baugs til að múta Davíð. Hann situr hins vegar í súpunni sjálfur því Jón Ásgeir er sennilega ekki sekur um neitt annað í þessu máli en að hafa afskaplega skrýtinn og í versta falli hættulegan húmor. Það sannast náttúrlega bara á hárgreiðslunni. Um heiðvirði þeirra Baugsfeðga ætla ég að láta íslenska dómstóla dæma - þeir munu sennilega fá gullið tækifæri til þess fljótlega.

Boltinn
Mínir menn rétt mörðu Leeds í kveld og því er enn von í deildinni. Held samt að Rassenal taki þetta. Við hirðum Evrópugullið í staðinn.

2. mar. 2003

Boltinn
Djöfull voru mínir menn slappir í dag. Maður gæti næstum grátið. Það hlýtur að vera súrasta tilfinning í heimi að tapa fyrir Carragher og Henchoz. En nóg um það, þeir mega hirða þessa kókdollu. Nú verða mínir menn bara að hirða Evrópudjásnin – það er ekkert annað sem heitir.

Háskóladeildin
Skrifa þetta með glóandi gull um hálsinn eftir krufninguna sem ég lofaði hér fyrir helgi. Greyin í lögfræðinni lutu í gras og grétu – alvöru tárum. Við byrjuðum reyndar frekar illa og undirritaður gerði sig eins og vanalega sekan um slæm varnarmistök sem kostuðu mark í fyrri hálfleik. Ég var að sjálfsögðu fljótlega tekin út af og varamaður minn var ekki lengi að stimpla sig inn í leikinn með skoti sem small í stönginni á Lagamarkinu. Stuttu seinna ákvað síðan markvörður lögfræðinga að kýla aukaspyrnu okkar í hausinn á einum leikmanni læknadeildar og þaðan fór boltinn í netið. Þannig var staðan í hálfleik en um miðjan seinni hálfleik átti sér stað einhver mesta snilld sem ég hef séð á knattspyrnuvelli. Helgi sem margir þekkja sem hinn nýja stjörnustriker Ástarinnar, var í óvanalegri stöðu úti á vinstri kanti nokkuð fyrir aftan miðju. Hann sér hlaupið hjá hægri kantmanninum (þeim hinum sama og hafði átt skot í stöngina í fyrri hálfleik) og ákveður að negla boltanum yfir á hægri kantinn. Boltinn lenti einu sinni á vítateigshorninu og síðan tók Viktor boltann á lofti og smurði honum undir samskeytin fjær. Algerlega óverjandi fyrir markvörðinn og glæsilegasta mark sem ég hef séð. Síðan héldum við bara út og unnum titilinn annað árið í röð. Við erum náttúrlega bestir.

Afmælisbarn dagsins…
…er víst IH og fær hún eitt netknús frá Íslandi. Viðar vertu nú góður við Ingu Huld í tilefni dagsins.

1. mar. 2003

Afmælisbörn dagsins...
...eru tvö. Golli Ozon er 26 ára gamall og er auk þess að flytja inn í risastóra íbúð með kellingunni sinni í dag. Til hamingju með daginn Golli. Loksins er Áslaug orðin nógu ringluð til að sjá ekki í gegnum þig.
Síðan er það boltatrúðurinn Hjalti Kristjánsson Bliki sem er 25 ára í dag og fær hann þúsund hamingjuóskir í tilefni dagsins - 40 fyrir hvert ár. Ég hitti Hjalta reyndar síðast í tvítugsafmælinu mínu þannig að það eru að verða 5 ár síðan í vor.
Til hamingju með daginn drengir.