Helgin!
Vá hvað þetta var yndislega erfið og löng helgi. Byrjaði á því að sofa í 4 klst aðfaranótt föstudags og síðan var verklegt próf í taugalæknisfræði massað með stæl. Mér hefur sjaldan gengið jafnvel í verklegu/munnlegu prófi og því var ég mjög glaður en þreyttur á föstudaginn. Ég var meira að segja svo þreyttur að ég treysti mér ekki í bæði grill og vísindaferð og ákvað því að láta grillið duga. Sveik þar með félaga mína í læknisfræðinni sem ég hafði planað að hitta um kvöldið. Fór bara tiltölulega snemma að sofa enda stóð til að vinna daginn eftir. Mætti síðan kl. 0900 á laugardaginn í vinnuna á barnadeildinni og eyddi næstu 24klst þar á fremur rólegri vakt. Fékk m.a.s. að sofa töluvert um nóttina. Síðan var sunnudagurinn tekinn í að skoða sófa og borðstofuborð í IKEA. Þaðan fórum við í heimsókn til Helgu og Sverris, sátum þar í 2 tíma og spjölluðum um heima og geima en þó aðallega yfirvofandi frumburð þeirra hjóna sem er áætlað að skríði í heiminn næstkomandi föstudag. Óska þeim skötuhjúum auðvitað góðs gengis og vona að barnið fái greind móður sinnar þegar kemur að íþróttum því Sverrir er haldinn þeim algenga og hvimleiða kvilla að halda með Liverpool. Að heimsókninni lokinni var brunað í kjúlla hjá mömmu og síðan var tekið á því í boltanum þar sem mæting var slæm (7,5 manns).
Geðdeildin
Í morgunn var síðan kominn nýr dagur og ný deild til að takast á við. Næstu fimm vikurnar verð ég á geðdeild 22A á Landspítalanum og síðan taka við þrjár vikur sem deilast á göngudeildir geðdeildar, BUGL og vímuefnadeildir. Síðan er bara komið vor með 25 ára afmæli og gleði. Sumarið kemur síðan með nýrri íbúð, vinnu og almennri gleði. Þrátt fyrir drunga geðsjúkdómanna leggjast næstu mánuðir alveg hrikalega vel í mig. Fullt af spennandi nýjum verkefnum og líklega verður það erfiðasta að kenna Eddu að halda með almennilegum liðum t.d. Víkingi í stað Vals, MUFC í stað Rassenal og svo mætti lengi telja. Hvernig er hægt að halda með Rassenal - þeir eru ýmist ljótir, lélegir eða franskir.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli