9. apr. 2003

Leiðtogar stjórnmálaaflanna...
...hittust í sjónvarpssal í gær og ræddu málin. Það var gaman að sjá hvað Ingibjörg Sólrún stóð sig illa. Það virtist sem allir hinir væru að gera grín að henni. Meira að segja Halldór utanviðsigráðherra tók hana á beinið. Davíð leiðrétti hana í hvert einasta skipti sem hún sagði múkk og hún gat ekki svarað fyrir sig greyið, glotti bara smeðjulega glottinu sínu og lofaði skattalækkun. Það gerði hún einmitt líka fyrir nokkrum árum í kosningabaráttu fyrir borgarstjórnarkosningarnar og í kjölfarið setti hún síðan holræsagjald á alla íbúa Reykjavíkur. Nú vill hún hækka skattleysismörkin en ekki lækka skattaprósentuna. Hún segir að þá fái allir sömu krónutöluna í skattaafslátt og segir að skattleysismörkin hækki um 10.000 í tveimur skrefum sem þýðir að skattaafslátturinn eykst um 3800kr á mánuði. Staðreyndin er hins vegar sú að þetta nýtist bara fólkinu með allra lægstu launin en ekki þeim sem hafa laun milli 100 og 200 þúsund. Þetta fólk er oft mjög illa statt fjárhagslega. Síðan vill hún hækka barnabætur svo einstæðar mæður hafi það betra. Ég spyr nú bara hvort ekki sé rétt að hækka meðlagsgreiðslur feðranna. Er ekki rétt að þessir menn beri ábyrgð á gjörðum sínum. Ég man ekki betur en meðlag á mánuði sé e-ð í kringum 15000 kr á mánuði. Ég hefði nú haldið að venjulegt barn kosti töluvert meira en 30000 kr. í rekstri á mánuði ef talið er með matur og húsnæði svo ekki sé nú talað um íþróttir og föt og annað skemmtilegt. Það á ekki að vera hlutverk ríkisins að bjarga einstæðum mæðrum heldur ættu feður þessara barna að blæða.
Annars var Steingrímur J. skemmtilegur eins og alltaf þó ég sé ekki einu sinni sammála því þegar hann geispar. Það er alltaf gaman að horfa á fluggreinda menn tala um pólítík og þá sérstaklega Davíð og Steingrím. Halldór er ágætur en Ingibjörg greyið veit nú lítið í sinn haus. Bullar bara tóma steypu og heldur því fram að hún ætli að taka Ísland af lista þeirra ríkja sem styðja stríðsrekstur í Írak. Ætli hún sé að kaupa sér atkvæði eða hefur hún íhugað þennan kost alvarlega? Ætli þetta sé ekki bara enn eitt kosningaloforðið sem hún ætlar að svíkja? Þau eru nú orðin töluvert mörg.

Engin ummæli: