30. jún. 2003

Fyrsta færslan á nýrri og glæsilegri tölvu
Nú hefur Nonni bróðir fært mér glæsilega tölvu frá landi tækifæranna. Um er að ræða stórglæsilega Toshiba tölvu sem er 2,2 GHz, 512 Mb innra minni, 60 Gb harðan disk, DVD, CD, brennara og ég veit ekki hvað og hvað. Tölvan hefur verið prufukeyrð í dag og til dæmis er hún um það bil 2 mínútur að setja heilan 60 mínútna disk á tölvutækt form en gamla tölvan hefði gert það á svona 60 mínútum eða svo. Síðan er hún svo fallega blá á litinn. Davíð verður ánægður með það.

Helgin...
...var rosaleg en þá var farið í ferð með Herraklúbbnum Hannesi en atburðir ferðarinnar eru að sjálfsögðu algert trúnaðarmál. Það eina sem ég get sagt er að ég held að ferðin hafi þjappað félagsmönnum vel saman. Helgin var alla vega bæði eftirminnileg og skemmtileg.

Engin ummæli: