Próflestur
Fer í heimilislæknisfræðipróf á morgunn. Er latur að lesa en er samt tæplega hálfnaður með efnið. Maður tekur á þessu í kvöld. Yfirleitt er þetta nú fremur auðvelt próf sem veltur á því að leysa vandamál sem lögð eru fyrir okkur. Síðan er það bara grill og gleði með Birgittu á morgun.
Viðar
Hefur heiðrað landið með nærveru sinni. Kom til landsins í gær og ætlar strax að taka á því í drykkjunni með því að kneyfa öl yfir Evrópusjóninni (Eurovision) annað kvöld. Inga Huld er lent temmilega snemma til að prenta sín alræmdu einkunnablöð og getur sleppt sér yfir búningunum og sviðsframkomunni hjá T.A.T.U. Velkomin heim skötuhjú.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli