20. mar. 2003

Bloggarar slakir!
Það er nú orðið ljóst að bloggeðli þessa hóps hefur hrakað rosalega síðustu daga og verður að segjast að m.a.s. Viðar hefur ekki staðið sig sem skildi. Skemmtilegt er líka að efst á síðu Þorgeirs er enn nokkurra daga gömul færsla um hvað Gunni er slappur í blogginu. Kaldhæðnislegt ekki satt í ljósi þess að Þorgeir hefur ekki verið með þeim duglegustu sjálfur. Mun ég hér með skora á alla þessa aumingja að blogga minnst 2x fram á mánudag ella verða þeir allir færðir niður um eitt sæti á bloggalistanum. Sjáum hvað setur.

Boltinn
Það var gaman að heyra grátinn í Arsenal-mönnum eftir leikinn í gær. Þeir voru ósáttir að fá ekki víti í lokin þegar Pires lét sig detta. Kannski var einhver pínulítil snerting en hún var svo sannarlega ekki nógu mikil til að hann dytti og ef hann hefði viljað hefði hann alveg getað haldið áfram án þess að láta þessa litlu snertingu trufla sig. Er það ekki einmitt það sem leikaraskapur gengur út á. Ef það er snerting sem hvorki hefur áhrif á jafnvægi leikmanna eða rænir þá tækifærinu til að halda áfram þá á ekki að dæma auka-/vítaspyrnu. Ef maður hefur þetta í huga var þetta klárlega leikaraskapur hjá Pires og ég held að allir geta verið sammála um það. Hann var ekki felldur heldur lét hann sig detta þegar leikmaður Valencia snerti hann lítillega. Því átti hann að sjálfsögðu að fá gult fyrir leikaraskap og síðan annað gult eða jafnvel beint rautt fyrir að standa upp og sparka í leikmann Valencia. Síðan átti leikmaður Valencia auðvitað líka að fá gult fyrir að kasta sér niður eftir svona aumingjalegt spark frá Pires þannig að ef maður lítur á þetta hlutlaust var dómarinn algerlega að skíta á sig í þessu máli. Ef við lítum hins vegar á árangur ensku liðanna í þessarri keppni þá er augljóst að United er eina liðið sem fer áfram í þessari keppni þrátt fyrir að vera raunverulega í alveg jafnerfiðum riðli, ef ekki erfiðari en bæði Arsenal og Newcastle. Arsenal var með Ajax sem eru nú reyndar sæmilega góðir en reynslulitlir, Roma sem hefur ekkert getað í vetur nema kannski nú síðustu vikurnar og síðan Valencia sem eru að sjálfsögðu mjög sterkir. Newcastle voru með Inter sem eru held ég í 2. sætinu á Ítalíu, Barcelona sem eru reyndar að skíta á sig heima en eru taplausir í Evrópukeppninni í ár (og raunar bara búnir að gera eitt jafntefli ef ég man rétt) og síðan Leverkusen sem geta ekki rassgat. United var með Juventus sem er efst í Serie A, Deportivo sem eru í þriðja sæti á Spáni og síðan Basel sem er líklega slakasta liðið af þessum öllum en þó spútniklið keppninnar í ár. Þegar öllu er á botninn hvolft var það bara lélegur varnarleikur sem Arsenal var að detta út úr keppninni á. Þeir voru að fá á sig tvö mörk í gær eftir lélegan varnarleik og eins misstu þeir 6 stig á heimavelli með því að gera 3 jafntefli í leikjum sem þeir áttu að vinna. Þetta lið er að hrynja og ég held að Newcastle taki ensku dolluna í vor. United verður í öðru sæti og síðan koma aumingjarnir í Arsenal með eina skitna bikardollu og þriðja sætið. Það er ekki nóg að eiga besta framherja í heimi ef Parlour og Wiltord eru í liðinu og Bergkamp þorir ekki að fljúga.

Innrásin í Írak...
...er því miður hafin. Ég held að við séum því miður að horfast í augu við nýtt varnarbandalag Bandaríkjanna, Bretlands og svo einhverra smáþjóða sem engu máli skipta eins og Íslands. Það er einlæg von mín og margra annarra að þetta taki af sem fyrst og Saddam verði flengdur og steiktur á teini fyrir marslok og síðan verði sett almennileg stjórn þarna. Þá geta kanarnir stjórnað olíuverðinu og bara allir sáttir. Annars sá ég svolítið merkilega umfjöllun í 60 Minutes nú í vikunni þar sem tekin voru viðtöl við unglinga í Bandaríkjunum sem gengu um göturnar og mótmæltu stríði. Enginn aðspurðra hafði hugmynd um hvað var í gangi. Einn gat nefnt Hussein eftir að hafa heyrt fornafnið Saddam en restin hélt að Osama bin Laden væri leiðtogi Íraks. Enginn vissi hvar Írak er og allir héldu að átökin væru þegar hafin og voru því með spjöld sem á stóð "Stop killing innocent women and children" og eitthvað því um líkt. Ætli mótmælendur hér á landi séu betur að sér? Það væri gaman að kanna það.

Engin ummæli: