Púff
Mikið rosalega voru strákarnir okkar í fótboltalandsliðinu heppnir á laugardaginn þegar þeir unnu Færeyjar. Þetta lið er náttúrlega algerlega hrunið og það þarf að fá einhvern karlmann til að reisa það úr öskustónni. Það þýðir ekkert að taka blíðu föðurlegu ímyndina á þessa gutta eins og Atli gerði. Það þarf svona "ég sef hjá konunni þinni - aftur" gæja eins og Gauja Þórðar eða Willum Þór til að bíta í nokkur eyru og sparka nokkrum takkaskóm. Annars held ég að þetta íslenska landslið geti orðið mjög gott. Við eigum rosalega efnilega einstaklinga og síðan fullt af ungum strákum sem eru að brillera með sínum liðum eins og t.d. Arnar Þór og Eiður Smári en menn gleyma því stundum að þessir menn eru bara 25 ára. Ég spái því að Ísland nái á HM innan 10 ára.
Liverpool
Nonni bróðir var eitthvað að barma sér yfir útreiðinni sem bítlínurnar frá Liverpool fá á þessari síðu. Ég hef bara eitt að segja um það: Sannleikanum verður hver sárreiðastur.
Helgin var rosaleg
Föstudagur
Hún hófst með erfiðum vinnudegi á föstudag en síðan var brunað í bæinn þar sem beið mín þetta líka svakalega re-union útskriftarárgangsins 1998 úr MR. Við byrjuðum hjá Einari og Jönu sem eru höfðingjar heim að sækja eins og áður. Við drukkum hressilega í Grænuhlíðinni áður en stefnan var sett á lögreglusalinn í Brautarholti þar sem við hittum fyrir gamla árgangsfélaga. Það er skemmst frá því að segja að úr varð hörkustuð og ég hef nú varla skemmt mér svona vel síðan ég var í MR. Við dröttuðumst svo heim eitthvað um kl. 3.
Laugardagur
Við vorum síðan vakin kl. 9 á laugardagsmorgunn til að fara austur í Grafning þar sem pabbi var í "sleppitúr". Við vorum komin að Villingavatni í Grafningi um kl. 12 og þá var riðið alla leið austur í Laugarás. Við Edda settumst í söðulinn skamma stund en sökum rassæris og "þreytu" frá kvöldinu áður, sátum við aðeins í tæpa tvo tíma á baki en sáum síðan um bílana það sem eftir var dags. Um kvöldið var síðan boðið til grillveislu þar sem grillað var svínakjöt og með því borið fram rauðvín, kartöflusalat og hrásalat. Á eftir fékk ég mér síðan Cohiba vindil frá Havana en varð eitthvað illt af honum (eins og reyndar alltaf þegar ég fæ mér vindil) og fór því snemma í háttinn eftir að hafa látið öskrin vaða yfir klósettið.
Sunnudagur
Sunnudagurinn byrjaði um hálftíu. Þá dreif ég mig í sturtu og í sparifötin og síðan rakleiðis í fermingu "fósturbróður" míns úr sveitinni. Gylfi var loksins fermdur en drengurinn sá hefur verið stærri en ég síðan hann var tólf ára. Hann er sem sé uppeldissonur Sigurðar bónda í Steinsholti sem fóstraði mig ein 10 sumur. Fermingin var snilld en þar var borið fram alls kyns brauð með pesto og ostum auk þess sem það var traditional kransakaka og nokkrar hnallþórur. Skemmtileg ferming hjá skemmtilegum strák. Eftir ferminguna var síðan farið á móts við hestafólkið og um kvöldið átum við ljúffengar lambalundir með bökuðum kartöflum og fersku salati. Ég er enn hálfsaddur því ég át á mig gat. Eftir mat var síðan brunað í bæinn því ég átti að vinna morguninn eftir í Kefló.
Mánudagur
Erfið vakt en skemmtileg. Er nú á leiðinni heim í háttinn.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli