Slappur!
Djöfull er maður nú orðinn slappur í þessu bloggi. Ekkert blogg um helgina þrátt fyrir frí. Það er reyndar búið að vera fullt að gera þrátt fyrir frí í skóla og vinnu. Á föstudag renndi ég til Eika Gests seinni partinn og svo var haldið upp á 25 ára afmæli Harðar og Heinrichs um kvöldið. Við Edda vorum boðin. Þar var tekið misvel á því og ég drakk nokkra niðursoðna bjóra og síðan tvo alvöru (lesist: ...úr flösku). Fór heim um eittleytið enda langur og erfiður dagur framundan á laugardeginum. Fór með Ingvari í smá bíltúr og síðan var sest niður yfir landsleikinn og nýja Champinn til kl. 18. Þá rauk ég heim og svo út að borða með mömmu gömlu og karlinum en hún átti sem sé sextugsafmæli á laugardaginn. Fórum á Einar Ben. og maturinn þar var hreint út sagt frábær og umhverfið einnig stórskemmtilegt. Þegar yfirþjónninn frétti að mamma ætti sextugsafmæli færði hann öllu borðinu, sex manns, ljúffenga skelfisksúpu í forrétt í boði hússins. Síðan var tekin klassísk kynjaskipting á aðalréttinn, karlarnir fengu sér nautalundir en konurnar lambahryggvöðva. Báðir réttirnir voru algert lostæti. Ís í eftirrétt og kvöldið var fullkomnað. Síðan var tekinn seinni hálfleikur í Champ hjá Ingvari um nóttina.
Á sunnudeginum var síðan fermd frænka hennar Eddu sem heitir Stefanía Höskuldsdóttir. Það var held ég flottasta fermingarveisla sem ég hef verið viðstaddur. Kökurnar voru frá einhverjum bakara í Kópavogi og voru þær bæði fallegar og ljúffengar. Síðan var að sjálfsögðu tekinn bolti um kvöldið og að lokum ljúfur svefn.
Önni......
fer með fleypur á síðu sinni þar sem hann talar um bandaríska kviðdómendur. Ekki nóg með að þeir megi víkjast undan kviðdómsskyldu einu sinni á ævinni án útskýringar heldur geta þeir fengið frí frá skyldunni ef þeir færa góð rök fyrir máli sínu, t.d. vegan fjárhagslegra skuldbindinga eða einhvers slíks. Hins vegar ber þeim skylda skv. lögum að gegna starfi kviðdómanda minnst einu sinni á ævinni ef ég man rétt. Það er því ekki rétt hjá Önna að maður verði að sitja í kviðdómi sama hvernig stendur á. Það er hins vegar greinilegt að Önundur hefur tapað greind sinni einhvers staðar á leiðinni í sinni óendanlegu baráttu gegn stríði í Írak. Það er alltaf þannig með fólk sem berst af innlifum fyrir einhverju (eða gegn því) að það tapar oft bæði raunveruleikaskyni sínu og vilja til að segja satt og rétt frá. Það er svo auðvelt að beygja aðeins sannleikann til að koma sannfæringu sinni áleiðis en það mega greindir menn eins og Önundur ekki gera. Þegar íraskir hermenn stilla saklausum borgurum upp fyrir framan hernaðarlega mikilvæg skotmörk hugsar Önundur: "Nei heyrðu mig nú. Það deyja kannski saklausir borgarar í þessu stríði ef við skjótum vondu karlana. Best að sleppa því bara alveg að drepa þá." Ég hugsa hins vegar: "Illum mönnum sem nota saklausa borgara, konur og börn sem hlífiskildi fyrir ólöglega vopnaframleiðslu og ólöglegt stjórnarfar, verður að koma frá áður en þeir fá tækifæri til að vinna þessum sömu saklausu borgurum enn meira mein." Hvað ætlar Önundur að gera þegar og ef Írakar gera árás á Bandaríkjamenn í kjölfarið á flóttamannastraumnum? Hvað vill Önundur gera við menn sem skjóta á 2-3000 konur og börn sem reyna að flýja frá víglínunni í Basra? Sleppa því að ráðast á þá því það eru kannski fleiri saklaus börn og konur í borginni? Ég er sjálfur andvígur því að leysa málin á þann máta sem Bandaríkjamenn og Bretar kusu, a.m.k. ef það er gert án samþykkis SÞ en að hlusta á og lesa skrif jafngreindra manna og Viðars og Önundar um þetta stríð er sorglegt. Þeir eru algerlega blindir í andstöðu sinni við stríðið - strákar, takiði hausinn upp úr sandinum. Reyndar held ég að hugsjónir Viðars litist svolítið af því að hann er í þeim skóla í BNA sem hefur líklega verið hvað virkastur í mótmælum gegn bandarískum stjórnvöldum í gegnum tíðina. Flest stúdentamótmæli gegn Víetnam-stríðinu voru skipulögð frá Berkeley ef ég man rétt. Leiðréttu mig annars gamli vinstri skröggur (lesist Viðar).
Meira af Viðari
Ljómandi fín mynd af Guðbjörgu mömmu hans Viðars í mogganum í dag þar sem hún tekur á móti styrk fyrir hans hönd úr einhverjum sjóði sem ég man ekki í svipinn hvað heitir. Viðar er svo mikið sjení að það er svindl.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli