17. mar. 2003

Hótel Hell
Þegar ég var átján vetra og fjórum mánuðum betur fór ég ásamt Arnari frænda, Sigga Anton og fleirum (m.a. Ýr sem mörgum árum seinna sá gullið í gegnum þykkan skráp Arnars og er kærastan hans í dag) til London í svokallaða Flakk-ferð. Flakkferðir voru skipulagðar af jafningjafræðslu Hins hússins og voru að sjálfsögðu “vímulausar”. Altént þá gistum við á hóteli sem í ferðinni var jafnan kallað Hótel Hell. Nú vill svo skemmtilega til að Önundur dvaldist á þessu hóteli sl. helgi en þetta er að sjálfsögðu það ömurlega Hotel Generator sem stendur steinsnar frá ógeðslegustu neðanjarðarlestarstöð Lundúna – King’s Cross. Þess má til gamans geta að það var einmitt í þessari ferð sem Páll Óskar lét þau fleygu orð falla að allir sem væru lamdir í London ættu það skilið. Palli var síðan eins og frægt er orðið, laminn af róna/dópista á King’s Cross stöðinni síðasta kvöldið okkar í London. Það kann nú að vera að til séu fleiri en eitt Hotel Generator eða þá að þetta sé sama hótelið en sé flutt. Þetta er þó skemmtileg tilviljun að tveir erkisnillingar eins og ég og Önni skulum enda á sama hótelinu í London með svo margra ára millibili.

Helgin…
…var asskoti viðburðarík. Á föstudaginn fór ég ásamt heilum her af leikskólapæjum á árshátíð Leikskóla Reykjavíkur. Var hún haldin með mikilli viðhöfn á Broadway sem hét nú einu sinni Hótel Ísland. Þarna var matur og skemmtiatriði og að því öllu loknu spiluðu Milljónamæringarnir ásamt Bjarna Ara og Ragga Bjarna fyrir dansi. Þetta var bara helvíti gaman – miklu skemmtilegra en ég þorði að vona. Síðan var stefnan sett á Herrakvöld Hannesarmanna á laugardaginn. Ég var merkilega lítið þunnur og til í tuskið en gerði þau mistök að ætla á fyrsta rauðvínsdjammið mitt. Eftir að hafa hesthúsað einni Koonunga Hill árgerð 2001 sagði maginn “stoppa hér” og ég fór heim með skottið á milli lappanna og sofnaði við sjónvarpið heima hjá Eddu – illt í maganum. Ég lofa að gera betur næst Hannesarbræður. Afleiðing skjótra endaloka laugardagsdjammsins voru að sjálfsögðu þau að ég var ekki vitund þunnur í gær og fór meira að segja í bæinn með Eddu. Hún keypti sér sófa í Tekk vöruhús sem hún ætlar að geyma í skúrnum hjá tengdó fram á sumar. Díllinn var sá að ég mundi kaupa rúm í sumar þegar ég á fullt af peningum. Kannski maður kíli bara á það. Hins vegar sést á þessu hversu hýddur ég er því ég ætlaði að standa á því fastar en nokkru öðru að fyrst yrði keypt rúm og síðan sófi. Nú erum við búin að kaupa tvo sófa en ekkert rúm. Ég er brjóstumkennanlegur. Ég ætla að stofna samtök sem heita WA (wipped anonymous).

Engin ummæli: