12. mar. 2003

Vinna, vinna, vinna!!
Er að fara á vaktina á barna í kvöld og nótt, síðan á ég vakt á mánudaginn í næstu viku og svo er ég búinn með vaktirnar á barna þennan mánuðinn. Á þó að taka vaktir á geðdeildinni (skólinn) 21. mars og svo 1. apríl. Síðan er það bara massívur próflestur og svo kúrsus í heimilislæknisfræði sem endar með prófi og fylleríi þann 24. maí næstkomandi. Ætli maður reyni ekki að halda upp á afmælið sitt í kjölfarið og síðan er það bara sumarið með vinnu, vinnu, íbúð, vinnu, vinnu, vinnu, útilegu og svo smá vinnu líka sem tekur við. Kannski þetta verði bara fínt sumar.

Boltinn
Rassenal gerir frábæra tilraun til að skíta á sig í meistaradeildinni. Hafa nú spilað alla heimaleiki sína í riðlinum og gert jafntefli í þeim öllum. Eiga nú bara eftir að mæta Valencia á Spáni og svo detta þeir út svo framarlega sem Ajax tapar ekki fyrir Roma í Rómarborg. Mikið ætla ég að brosa næstkomandi miðvikudag. Á meðan eiga mínir menn bara eftir formsatriðin því þeir eru búnir að vinna riðilinn sinn nú þegar. Þeir mega tapa báðum leikjunum sem eftir eru 40-0 og samt vinna þeir riðilinn. Spurning um að leyfa gríslingunum að spila smá Evrópubolta.

Merkilegur þessi haus minn
Hann er búinn að vera leiðinlegur við mig síðustu daga/vikur. Ég er búinn að vera með krónískan höfuðverk síðustu vikur og hef ég sett það í samband við stressið í kringum íbúðarkaupin en nú er það yfirstaðið og höfuðverkurinn má alveg fara fyrir mér. Vertu sæll, gaman að kynnast þér .

Engin ummæli: