5. maí 2003

Meistarar, snillingar!
Mínir menn tóku titilinn létt í gær, þurftu ekki einu sinni að fara í takkaskóna því stórliðið Leeds vann "sanngjarnan" sigur á Arsenalmönnum í gær. Það hefur verið gaman að fylgjast með vælinu í Wenger í dag en það kemur mér svolítið á óvart að hann skuli ekki væla meira yfir því hvað Viduka var rangstæður í sigurmarkinu. Það breytti hins vegar mjög litlu því Arsenal dugði ekki jafntefli heldur og þeir voru svo sem ekkert að gera sig líklega til að skora sigurmarkið þarna í lokin. Mér fannst botninn detta alveg úr sóknarleiknum þeirra þegar Kanu kom inn á og þeir jöfnuðu. Staðreyndin er auðvitað sú að besta liðið vann þessa deild sem sést best á muninum á árangri þessara liða í Meistaradeildinni. Vissulega er frábærir einstaklingar í þessu Arsenalliði sem geta klárað leiki upp á sitt eins- eða tvídæmi. Það virðist hins vegar ekki hafa náðst nógu góð liðsheild í liðið og það er látið ganga á of fáum mönnum, það vantar alla breidd í það sem sést best á því að þegar tveir miðverðir eru úr leik þá verða þeir að setja hægri bakvörð sem ekkert hefur spilað að ráði í vetur, í miðvarðarstöðuna. Fyrir áramót voru Gary Neville, Wes Brown og Rio Ferdinand meiddir í vörninni hjá United og Beckham, Keane og Butt á miðjunni en samt var United að vinna leiki með Phil Neville á miðjunni, Solskjær á kantinum og smástrákinn John O'Shea í vörninni.
Talandi um John O'Shea. Af hverju var sá maður ekki valinn efnilegasti leikmaður deildarinnar. Jenas var góður, Rooney ágætur en Jón var stórkostlegur. Hann spilaði allar stöður í vörninni og var m.a.s. á miðjunni á móti Burnley í bikarnum og átti stórleik. Hann hefur brillerað á móti mörgum af stærstu liðum Evrópu - Juve, Depor, Real og fleirum. Þetta val var alger skandall.

Afmæli
Í gær átti Magga Pála Eddusystir og mágkona mín afmæli. Hún heldur með Arsenal og átti því ekki góðan afmælisdag. Hún er líka á fullu í samræmdum prófum og verður að einbeita sér að þeim þannig að ég bíð með það þangað til í sumar að stríða henni. Til hamingju með daginn í gær Magga Macho.

Engin ummæli: