18. ágú. 2003

Helgin...
...var fín. Byrjaði með tiltölulega rólegri vakt á föstudaginn en síðan kom ég heim á laugardaginn og horfði á mína menn taka Bolton í litla kennslustund í því hvernig maður á að kaupa unga leikmenn. Nánar að því á eftir. Síðan var tekinn "smá" göngutúr. Við Edda lögðum efst í Stórholtinu þar sem móðursystir hennar á heima og löbbuðum alla leið niður í miðbæ. Þar skoðuðum við meðal annars háskólasalinn í gamla Top Shop húsinu þar sem vinnufélagi Eddu var að syngja í hljómsveit og Króatinn var að segja hvernig vetnisrafall virkaði. Labbaði síðan nokkra hringi í miðbænum og lenti á endanum inni í fornbókabúðinni Gvendi dúllara og keypti mér tvær vel með farnar Laxness-bækur í safnið. Það var endurminningabókin Í túninu heima og ritgerðasafnið Upphaf mannúðarstefnu. Var reyndar svolítið svekktur því mig minnti að ég ætti Kristnihaldið en þegar heim kom sá ég að svo var ekki. Það var nefnilega nánast ósnert eintak af henni þarna sem hefði verið 1200 kallsins virði. Bendi þeim sem hafa áhuga á slíkum bókmenntum að maður getur fengið mjög vel með farin eintök á þriðjungi af því sem þau kosta ný.
En hvað um það. Við héldum síðan heim á leið því til stóð að Þór og Íris og Króatinn kæmu í grill. Við grilluðum snilldarlega borgara að hætti hússins og drukkum svolítið með því. Síðan fór Ingvar í bæinn samferða Þór og Írisi sem voru á heimleið en við Edda töltum á leiguna og leigðum þá úrvalsræmu Gangs of New York. Eitthvað rámar mig í að annað hvort Þorgeir eða Önni hafi verið að kvarta undan byssuleysi í bardögunum en það kemur einmitt fram í myndinni að klíkurnar gerðu með sér samkomulag um að nota slík vopn ekki. Lewis og DiCaprio voru góðir og Diaz var skárri en vanalega. Gef myndinni 3 bolta (sjá að neðan).
Á sunnudaginn var ég síðan rifinn upp kl. 9 til að fara með pabba í bíltúr austur fyrir fjall að sækja hesta og heimsækja vinafólk okkar. Það var ekki það ég vildi ekki fara heldur er ég ekki sérstaklega sprækur morguninn eftir hálfa rauðvín. Ferðin var hin ágætasta og við vorum komin í bæinn í tæka tíð til að sjá Chelsea taka Liverpool á Anfield sem var gaman. Síðan vorum við boðin í mat hjá settinu í gærkvöldi þar sem grillaður var dýrindis svínahnakki. Edda fékk makeover í kaupæti og bara allir sáttir.

Einkunnagjöf
Er að spá í að taka upp mína útgáfu af einkunnagjöf hér á síðunni þar sem gefnar verða einkunnir fyrir allan djöfulinn. Mun kerfið virka þannig að gefnir verða 0-5 boltar fyrir frammistöðu. Kerfið verður kannski þróað frekar síðar.

Manchester United vs. Bolton
Mínir menn voru nú ekki mjög sannfærandi í þessum leik og það verður ekki sagt að 4-0 sigur hafi verið sanngjörn úrslit. 2-0 hefði kannski verið nær lagi. Það var hins vegar undrabarnið Ronaldo sem var fegurð dagsins því leikur United lifnaði allur við þegar hann kom inn á og þó það sé kannski fullmikið sagt að hann hafi átt þátt í mörkunum þá var það nú samt þannig að hann opnaði leikinn fyrir United og skapaði plássið sem þurfti til að skora mörk. Ég held hann verði stjarna en ég sakna samt Verons. Hann er snillingur. Mínir menn fá 3 bolta fyrir góðan endasprett. Ef ekki hefði verið þessi endasprettur og leikurinn hefði endað 1-0 þá hefði ég gefið þeim einn bolta.
NIÐURSTAÐA: 3 boltar.

Engin ummæli: