7. maí 2003

Kosningar
Aldrei hef ég verið jafn efins um hvað ég á að gera við atkvæðaseðilinn minn á kosningadag. Reyndar verð ég að viðurkenna að kostirnir eru aðeins þrír: 1) að skila auðu af þeirri einföldu ástæðu að enginn flokkanna hefur nógu frjálslynda stefnu fyrir minn smekk, 2) að kjósa Sjálfstæðisflokkinn vegna þess að þeir eru eini flokkurinn á Íslandi sem er nálægt miðjunni vinstra megin frá, 3) að kjósa Dóra "skemmtilega" svo hann komist á þing en ekki hin vængbrotna Ingibjörg Sólrún. Annars lét ég það nú eftir mér í próflestrinum í gær að horfa á Davíð spurðan spjörunum úr af starfsmönnum RÚV. Hann stóð sig mjög vel og var skemmtilegur en ég hafði heyrt utan af mér að Ingibjörg greyið hefði verið fremur vængbrotin á mánudaginn.
Annars finnst mér magnað að lesa greinar Dags B. Eggertssonar um Ingibjörgu síðustu daga í Morgunblaðinu. Þessar greinar hafa birst á besta stað í blaðinu og því varla hægt fyrir vinstri menn að kvarta um að blaðið sé enn að aðstoða Sjálfstæðisflokkinn. Þarna fer Dagur lofsamlegum orðum um pólítíska móður sína sem hann er víst tilbúinn að fyrirgefa eins og saklaust barn fyrirgefur geðsjúkri móður. Hann virðist hafa gleymt þeim orðum sínum sl. vor að Ingibjörg Sólrún væri bara ekki þannig persóna að hún gengi á bak orða sinna við kjósendur og færi í framboð til Alþingiskosninga. Það er greinilegt að sannfæring Dags er til sölu eins og sannfæring annarra vinstri manna og komma hefur verið í gegnum tíðina. Sagan hefur kennt okkur að harðir vinstri menn eru margir hverjir tilbúnir að ljúga, blekkja, limlesta og jafnvel drepa til að koma sínum skoðunum á framfæri. Þeir vita nefnilega betur en almenningur hvað er best fyrir hann. Það er þó ekki svo að skilja að mér sé persónulega illa við Dag B. Eggertsson enda þekki ég hann sæmilega í gegnum læknisfræðina og á því sviði er hann bæði fær og atorkusamur. Skoðanir hans eru bara ekki þær sömu og mínar né heldur pólítísk gildi.
Að lokum langar mig til að minnast á það að ég tók hið fræga próf afstada.net og kom eins og mig grunaði út með:
Sjálfstæðisflokkur 79%,
Framsóknarflokkur 57%,
Frjálslyndir 36%,
Samsoðningur 36%,
Vinstri grænir 14%.
Það kemur mér nú mest á óvart hvað ég er lítið sammála Sjálfstæðismönnum en það er líklega vegna þess að ég er töluvert hægrisinnaðri en stefna flokksins. Tók þessa könnun reyndar fyrir nokkrum vikum en síðan hefur afstaða mín breyst í nokkrum málum sem þarna koma upp.

Boltinn
Arsenal tapar í kvöld, um það er ég sannfærður. Ruud setur síðan þrennu á laugardaginn og verður markakóngur og jafnar met Dennis Law um mörk á einni leiktíð fyrir félagið. Ruud er að sjálfsögðu markahæstur í deildinni og lítil hætta á að Henry skori af bekknum hjá Arsenal í kvöld. Beattie gæti orðið skeinuhættur en ég held samt að hann nái ekki Ruud. Síðan eru það auðvitað töluverð vonbrigði að lið Juventus skuli hafa staðið sig svona vel á móti Real á Spáni í gær. Síðan er bara að sjá hvernig Milano-liðin taka á því í kvöld. Ég verð reyndar að lesa en kannski maður fylgist með þessu með hálfum öðrum þriðjung úr auga (reiknið þið nú).

Engin ummæli: