30. apr. 2003

Afmælið mitt...
...var svo mikil snilld að ég hafði ekki orku í að skrifa neitt hér í gær. Edda kom mér verulega á óvart með alveg hreint stórkostlegri gjöf. Hún byrjaði á að hanna einhvern ratleik þannig að ég þurfti að finna gjöfina heima hjá henni og þegar ég loksins fann hana var spennan í hámarki. Ég varð ekki fyrir vonbrigðum því hún hafði gert sér lítið fyrir og keypt handa mér heimabíó og DVD-spilara sem jafnframt eru hljómflutningstæki og útvarp. Snilld. Frá mömmu, pabba, bræðrum, mágkonum og systkinabörnum fékk ég salatskál, skurðarbretti og loforð um gasgrill í sumar þegar ég flyt í Hólmgarðinn. Ætli það verði grillað fyrsta kvöldið þar? Ég held það. Síðan fékk ég DVD-mynd frá Möggu mágkonu og íþróttaföt frá tengdó. Síðan bíð ég spenntur eftir gjöfunum frá ykkur hinum :)

Stjórnmálin
Merkilegt að lesa það sem margir ungir vinstri menn skrifa á heimasíðurnar sínar. Þeir segja beinlínis hreint út að þeir sem eru með hæstu tekjurnar eigi að borga alla þjónustu samfélagsins fyrir þá sem hafa lægri tekjurnar. Þetta sjónarmið hef ég aldrei skilið. Ég er nú ekki alinn upp í miklum vellystingum á mínu heimili en það var þó eitt sem mér var kennt á mínum yngri árum og það var að borga fyrir það sem ég nota. Nú er ég ekki að segja að það sé endilega á færi þeirra allra fátækustu að borga fyrir alla þá þjónustu sem þeir sækja. Það kemur hins vegar mun fleirum til góða að lækka skattana og minnka umsvif ríkisins í alls kyns þjónustu. Það þýðir að flestir hafa meiri peninga á milli handanna og geta leyft sér meira. Menn gleyma því svolítið í allri þessari umræðu að þeir sem eiga meiri peninga borga að sjálfsögðu miklu meira í skatta en hinir fátæku því þeir stunda meiri neyslu. Þá á ég ekki við vímuefnaneyslu heldur versla þeir meiri munaðarvöru, gefa dýrari gjafir, kaupa sér vindil á gamlárskvöld, dýrara rauðvín í ríkinu og með því borga þeir að sjálfsögðu meiri neysluskatta. Athugið að ég sagði ekki hærri heldur meiri. Alveg eins borgar maður hlutfallslega meira af tekjum sínum í skatt eftir því sem tekjurnar hækka. Þetta er hægt að sýna fram á einfaldan hátt. Tökum fimm einstaklinga sem lifa í þjóðfélagi þar sem skattaprósentan er 38% og skattfrelsismörkin 75000kr.
1. 100.000 kr í mánaðarlaun, skattstofn er því 25.000 kr. og einstaklingurinn borgar 9.500 kr í skatt sem jafngildir 9,5% af heildartekjum
2. 200.000 kr í mánaðarlaun, skattstofn er því 125.000 kr og einstaklingurinn borgar 47.500 kr í skatt sem jafngildir 23,75% af heildartekjum
3. 300.000 kr í mánaðarlaun, skattstofn er því 225.000 kr og einstaklingurinn borgar 85.500 kr í skatt sem jafngildir 28,5% af heildartekjum
4. 500.000 kr í mánaðarlaun, skattstofn er því 425.000 kr og einstaklingurinn borgar 161.500 kr í skatt sem jafngildir 32,3% af heildartekjum
5. 1.000.000 kr í mánaðarlaun, skattstofn er því 925.000 kr og einstaklingurinn borgar 351.500 kr í skatt sem jafngildir 35,15% af heildartekjum

Stærðfræðingar mundu segja að þetta sé fall þar sem skattaprósentan nálgast 38% þegar launin nálgast hið óendanlega. Þið sjáið á þessu að búðarkonan sem vinnur á kassa í Hagkaup borgar rúmlega einn fjórða af því hlutfalli sem forstjórinn í netfyrirtækinu borgar. Gallinn við kerfið er að sjálfsögðu sá að kallinn með milljón á mánuði er uppi sem engin kelling lítur við í langan tíma og því rekur hann ekki 3-4 lausaleikskróa út um allan bæ og hann hefur því endalausan tíma til að velta sér upp úr því hvernig hann getur sloppið við að borga skatta sína til samfélagsins. Einstæða móðirin á kassanum í Hagkaup er hins vegar mjög þunglynd, með lágt sjálfsmat og sefur líklega hjá fyrsta aumingja sem lítur við henni, eignast annað barn með manni sem yfirgefur hana, verður í kjölfarið áfengissjúklingur o.s.frv. Þetta er miklu fremur vítahringur sem skapast af ömurlegum aðstæðum konunnar en ekki því að hún borgar hærri skatta. Ég held að lausnin sé að barnsfeður einstæðra mæðra taki á sig meiri ábyrgð og borgi meira en þessar skitnu 15.000 kr í meðlag. Og hananú. Q.e.d.

Engin ummæli: