Sælir kæru aðdáendur
Ég hef því miður ekki getað staðið undir væntingum ykkar um skrif á þennan vef sl. daga sökum gífurlegrar fíknar í tölvuleik sem heitir Rise of Nations. Ég hef nú tekið á því vandamáli með því að eyða leiknum út úr tölvunni og mun ekki spila hann framar eða a.m.k. ekki fyrr en ég hef lokið skuldbindingum mínum gagnvart HÍ og öðrum. Ég hef einnig eytt tölvuleikjunum CM4 og Colin McRae 2 út úr tölvunni og bý ný einungis við þann munað að geta spilað Tetris í einhverri millennium útgáfu.
Síðan síðast hef ég lokið vinnu minni á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og skólinn er hafinn að nýju. Ég hef ekki verið duglegur að fara þangað m.a. vegna veikinda en líka vegna þess að fyrirlestrarnir eru leiðinlegir, a.m.k. töluvert leiðinlegri en Rise of Nations. Nú hef ég hins vegar enga afsökun og mun mæta samviskusamlega í næstu viku jafnvel þótt ég hafi enga trú á fyrirlestrum sem kennsluformi.
Ég fór líka að heimsækja rauðhærða prímadonnu í vesturbæinn á sl. mánudag en það er hin stórmyndarlega Erla Hlín Guðmundsdóttir Jörgensen en það er dóttir Rögnu bekkjarsystur minnar og Gumma mannsins hennar fyrir ykkur sem eruð fáfróð um þessa hluti. Í stuttu máli er þarna um þvílíka prinsessu að ræða að annað eins hefur varla sést, rauðhærð og brosmild eins og mamman en svipurinn er að stórum hluta frá pabbanum þó Ragna eigi kannski nebbann. Vonum að það breytist :).
Til hamingju með prinsessuna Ragna og Gummi.
Leikurinn...
...á morgunn er stórt spurningarmerki og ég held að sigur okkar manna velti eingöngu á því hversu vel Eiður nær sér á strik. Ég vona að Ásgeir hafi vit á því að stilla Veigari Páli upp með Eiði frammi og síðan ætti miðjan að vera a.m.k. Þórður og Jóhannes bróðir hans. Í vörninni verður hrossið vonandi en það er ómögulegt að segja hver verður með honum. Vonandi ekki Lárus Orri sem hefur alltaf haft lag á að klúðra svona mikilvægum leikjum fyrir okkur.
En úr því ég er að tala um boltann þá held ég að ég verði aðeins að koma ensku að. Mínir menn byrjuðu ágætlega og kláruðu Bolton heima og Newcastle úti en síðan rétt mörðu þeir Úlfana og töpuðu loks fyrir Southampton þar sem þeir gátu ekki rassgat. Vonandi verður liðið skárra í næstu leikjum en það er svo sem ekkert nýtt að þeir byrji illa. Ég gæti vælt í allt haust yfir meiðslum eins og Arsenal-aðdáendur gerðu í vor en það er ekki háttur okkar United manna. Við bíðum bara vors og sjáum hvað setur.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli