28. apr. 2003

Ég á afmæli í dag,
ég á afmæli í dag,
ég á afmæli sjálfur,
ég á afmæli í dag!


Besta afmælisgjöfin til þessa...
...kom víst einum degi of snemma en það var sigur minna manna á munngæluskinkunum í gær. Þvíumlíkur snillingur sem hann Scholes er. Ruud var ágætur líka en hefði átt að skora svona 10 mörk í leiknum. Kasey Keller var rosalegur í markinu hjá Tottenham og var langbesti maður vallarins. Ég var ánægður með innkomu Quinton Fortune en hann ku vera uppáhaldsleikmaður Magnúsar Gísla a.k.a. Andy Cole Íslands. Magnús hefur löngum haft dálæti á þeim þremenningum Andy Cole, Dwight "Smiley" Yorke og Quinton Fortune. Til hamingju með þinn mann Maggi minn.

Greyið
Hef ákveðið að velja alltaf grey vikunnar á þessari síðu. Það hefur verið ákveðið af stjórn síðunnar að næstu 1000 vikur muni skiptast á að vera grey vikunnar þau Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (manneskjan hlýtur að vera rangt feðruð) og Össur Skarphéðinsson. Þennan "heiður" fá þau fyrir að vera hentistefnupólítíkusar sbr. þá staðreynd að aðalkosningamál þeirra er allt í einu orðið að fá kellingu í Stjórnarráðið í stað Evrópusambandsaðildar. Það segir kannski svolítið mikið um karakter Ingibjargar að fólk vill fremur selja sig inn í Evrópusambandið en fá hana sem forsætisráðherra. Hvernig er öðruvísi hægt að útskýra fylgistap þeirra síðustu vikur?

Engin ummæli: