Til hamingju…
…Sverrir og Helga með frumburðinn. Sveppi og Helga eignuðust víst algjöra prinsessu í morgunn og fá fullt af hamingjuóskum frá Ljós-Gíslanum og spúsu hans. Vonum bara að hún fái útlitið frá móður sinni en afganginn má hún svo sem fá frá hvoru þeirra sem er. Afmælisdagurinn 19. mars er alls ekki svo slæmur því ef ég man rétt þá á Ingibjörg systir hans pabba einmitt afmæli á þessum degi. Svo á Helga líka sjálf afmæli á morgun og amma á síðan afmæli hinn daginn þannig að það eru tómir stórsnillingar sem eiga afmæli þessa daganna. Síðan má auðvitað ekki gleyma betri helmingnum af settinu sem verður sextug 29. mars næstkomandi og tæpum mánuði seinna verð ég síðan sjálfur aldarfjórðungaður. Kannski maður haldi bara upp á herlegheitin.
Boltinn
Mínir menn kláruðu þennan riðil fremur dapurlega en það jákvæða er reynslan sem þessir guttar fengu. Þessi Darren Fletcher ætlar svo sannarlega að standa undir væntingum og skv. netmiðlum var hann frábær í leiknum í gær. Þeir fá líka fína dóma í vörninni – Lee Roche og Mark Lynch en það var leiðinlegt fyrir þann síðarnefnda að gera sjálfsmark í fyrsta leik sínum fyrir liðið í Evrópukeppninni. Síðan komu Danny Webber og Kieran Richardson inn á í lokin og áttu víst lipra spretti. United virðist því loksins vera að koma með aðra holskeflu af snillingum inn á sjónarsviðið en það má ekki gleyma því að Bojan Djordic og Daniel Nardiello voru ekki með í gær en þykja líklega tvö mestu efnin í varaliðinu ásamt Mads Timm sem hefur ekkert fengið að spreyta sig með aðalliðinu. Vonandi fær maður að sjá hann fljótlega.
Írak
Ég veit nú ekki hvort ég á að hætta mér út í þá umræðu sem hefur tvístrað landinu í tvær fylkingar sl. vikur. Ég get nú byrjað á því að segja ykkur að mér finnst alger ósvífni hjá Kananum að gera innrás án samþykktar SÞ en það er hins vegar ljóst að þessi stofnum hefur algerlega tapað áttum sl. ár. Hún hefur beitt þeirri læknisfræðilegu kúnst að “obsa” allt fram í rauðan dauðan. Að obsa er dregið af orðinu observation sem þýðir raunverulega að bíða bara átekta og athuga hvort allt verði ekki í lagi. Þetta virkar vel í læknisfræði en ekki alþjóðlegri pólítík. Þeir taka aldrei neinar ákvarðanir heldur slá öllu á frest og skíta síðan í buxurnar af bræði þegar einhver dirfist að framkvæma eitthvað. Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar að stærstu mistökin varðandi Persaflóastríðið hafi verið þau að klára ekki bara dæmið. Það átti aldrei að leyfa manninum að gefast upp – bara klára dæmið, koma honum frá og leyfa síðan þjóðinni að velja sér nýjan leiðtoga. Ég er enn þeirrar skoðunar að heimurinn verði betri án Saddams í honum en ég er hins vegar ekki tilbúinn að styðja aðgerðir sem ganga gegn samþykktum alþjóðasamfélagsins jafnvel þótt það sé fyrst og fremst rauðir Rússar og aumingja Frakkar sem standa í vegi fyrir þessum aðgerðum ásamt Þjóðverjum sem hafa nú alltaf verið á móti öllu þar sem þeir eru ekki sjálfir í aðalhlutverki. Ég vona bara að Bush hafi vit á því að klára þetta eins og í Afganistan og láta síðan völdin í hendur fólksins en ekki einhverra einræðisherra eins og forvera hans var venja. Sjáum hvað setur.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli