15. maí 2003

Fyndnar fréttir
Ég hélt ég mundi deyja úr hlátri yfir hádegisfréttunum í Ríkisútvarpinu í gær þegar sagðar voru fréttir af þeim flugfélögum sem væru hæfust í að koma farangri til skila. Eins og dyggir lesendur eflaust muna lenti ég í miklum hremmingum með farangurinn minn á leið til og frá Búdapest í haust og mér var því skemmt þegar flugfélögin tvö sem ég átti svo skemmtilegar minningar um voru bæði á topp tíu yfir skilvísustu flugfélögin. Ég get nú alveg sagt ykkur það að þau eru ekki á topp tíu listanum hjá mér. Því miður varð mér aldrei úr verki að skrifa harðorða grein í Moggann um þetta mál en það hefði sjálfsagt orðið til lítils annars en að ég hefði fengið viðurnefnið Gilli flugdólgur.

Geðlæknisfræði…
…hefur verið lögð að velli en mér gekk hreint ágætlega í prófinu í morgun þrátt fyrir að hafa næstum dáið úr leiðindum við að lesa fyrir þetta próf. Það eru engin takmörk fyrir því hvað hægt er að kalla þunglyndi mörgum nöfnum og hvað það eru til margar álíka gagnslausar aðferðir til að lækna það. Það merkilegasta við geðlæknisfræðina er þó það að þrátt fyrir 150 ára rannsóknir á lyfjum og sálfræðilegum meðferðum telur hinn almenni borgari sem hlotið hefur einhvers konar sálfræðiþjónustu í USA, AA-kerfið enn árangursríkustu leiðina til að ná sér út úr hversdagslegu þunglyndi skv. einhverri neytendakönnum fyrir nokkrum árum. Þetta er kannski ofureinföldun hjá mér en það er það verður mönnum ljósara með hverjum deginum hversu mikla möguleika tólf spora kerfi AA hefur og hefur það verið notað meðal annars af spilafíklum, aðstandendum alkóhólista, átfíklum, fólki með átraskanir, skapofsamönnum, kynlífsfíklum og fleirum. Þetta virðist alltaf skila árangri. Lyfin okkar eru seinvirk og yfirleitt með aukaverkanir sem trufla meðferðarheldni verulega. AA, OA, GA, Al-Anon og fleiri samtök eru því líklega framtíðin. Kannski fáum við Depressed Anonymous (DA), Anxios Anonynous (ANXAN), Schizophrenic Anonymous (SCAN) o.fl. samtök í framtíðinni – hver veit?

HAHAHAHA
Óli grís er búinn að kvænast Dorrit. Ætli hann hafi fengið demantshring á puttann sinn? Ætli þau hafi keypt hringana hjá Dorrit? Eru það ekki eins konar innherjaviðskipti?

Engin ummæli: