Ferðasaga, brúðkaup og fleira skemmtilegt
Nú hef ég ekkert bloggað í rúman hálfan mánuð og þetta gengur ekki lengur. Það sem hefur drifið á daga mína síðan þá er töluvert. Í vikunni eftir síðustu færslu slóst í ég í för með foreldrum mínum, bræðrum og fjölskyldum þeirra í hestaferð um há- og láglendi Suðurlands. Var ek í för þeirri frá þriðjudagseftirmiðdegi og fram á föstudag þegar við héldum til Reykjavíkur á vit ævintýranna. Hestaferðin var yndisleg. Við gistum fyrstu nóttina í Smáratúni í Fljótshlíð sem er svolítið vestan við Hlíðarenda. Daginn eftir riðum við inn að Einhyrningi þar sem er gangamannakofi en fyrir ókunnuga er þetta á vestari bakka Markarfljóts aðeins innan við þar sem Húsadalsskálarnir eru á eystri bakkanum. (Vá þetta var flókið). Daginn eftir riðum við svo í grenjandi rigningu upp með og oft yfir Markarfljót og enduðum um kvöldið í Landmannahelli sem er rétt við Heklu og Dómadalsleið. Það var síðasta nóttin okkar Eddu í ferðinni því við höfðum afráðið að fara föstudaginn 25. júlí í bústað með félögum mínum úr Garðabænum. Þegar allt kom til alls treystum við okkur til að fara það kvöld og höfðum það notalegt í Hólmgarðinum um kvöldið en fórum síðan upp úr hádeginu í bústað sem Skutullinn hafði útvegað á Hvítárvöllum í Borgarfirði þar sem hann og bróðir hans stunda þá miður karlmannlegu iðju að sussa á fiska allan daginn. Við sem vitum hvað karlmennska snýst um kneyfuðum öl og grilluðum ket. Þorgeir og Önundur komu tómhentir heim og Hrefna eldaði handa þeim dýrindis grill. Þorgeir horfði reyndar á ketið grillast en allir viðstaddir vita að Hrefna átti heiðurinn. Síðan var brennt í bæinn á sunnudeginum eftir vel heppnaða ferð. Vikan fór síðan að mestu í vinnu og veikindi því aldrei þessu vant tókst mér að verða veikur á fimmtudaginn. Ég er nú ekki enn búinn að jafna mig en hafði þó heilsu til vinnu á föstudag og hélt síðan mikla teiti um kvöldið þar sem Garðbæingum var boðið að skoða hýbýli okkar Eddu. Eitthvað var mætingin dræm en þar var góðmennt að vanda. Síðan var brúðkaup hjá Möggu og Christian á laugardagskvöldið sem tókst með ágætum og fá þau þúsund hamingjuóskir frá okkur Eddu. Á sunnudaginn löbbuðum við síðan úr Hólmgarðinum í Eskihlíðina til að sækja bílinn og svo var farið í að mála Nesbala 2 þar sem bróðir hennar Eddu hefur nýverið fest sér forláta raðhús. Síðan var tengdó boðið í pasta í gær og í dag á ég síðan vaktina í Keflavík en hún hefur verið fremur róleg framan af. Líklega glæðist þó eitthvað með kvöldinu þegar liðið fer að skríða heim úr útilegunni.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli