Jæja!
Kominn flöskudagur og maður verður að fara að skipuleggja helgina. Ætli maður taki ekki bara rólegt kvöld í kvöld en svo verður rosalegur dagur á morgunn. MUFC gegn Liverpool á Old Trafford í fyrramálið og svo klipping þegar seinni hálfleikur er hálfnaður. Síðan er það skírn hjá Sverri og Helgu kl. 15:00. Það verður spennandi að sjá hvaða nafn stúlkan fær en ég er nokkuð viss um hvað það verður. Að lokinni skírninni verður maður svo að gíra sig upp í átök því annað kvöld á Ástin æfingarleik við FC Diðrik sem er gamall fjandi Ástarinnar. Mun leikurinn fara fram á gervigrasinu í Laugardal og verður Ástin nú að sýna hvað koma skal í sumar. Koma svo drengir!!
Önni...
...svarar gagnrýni minni frábærlega og auðvitað hefur hann að mörgu leyti rétt fyrir sér. Einhvern veginn á ég samt erfitt með að mótmæla þessu stríði hástöfum því sannfæring mín er sú að það sé fólkinu í Írak hollast að koma Saddam frá völdum og vonandi verður það raunin. Ég held að það sé mjög nauðsynlegt að koma SÞ inn í þetta strax eftir stríðið og réttast væri að Bandaríkjamenn og Bretar bökkuðu strax að stríði loknu þaðan út. Síðan mundu SÞ sjá um friðargæslu á meðan lýðræðislega kjörinni stjórn yrði komið á. Auðvitað geri ég mér grein fyrir að fréttaflutningur af þessu stríði er bandamönnum hliðhollur - sagan er nú einu sinni skrifuð af þeim sem vinna. Þannig held ég að við hefðum fengið að heyra mun meira af grimmdarverkum Rómverja ef þeir hefðu ekki verið svona djöfull sigursælir. Vertu samt ekki , Önni minn, einn af þeim sem trúa bara þeim fáu fréttum sem eru hliðhollar Írökum og öllum þeim fáránlegu kenningum sem koma fram um tilgang stríðsins. Við vitum öll að þetta snýst um olíu og það að Bush litli er að hreinsa til draslið úr kústaskápnum sem pabbi hans fyllti af vandamálum, lokaði og læsti eftir vopnahléið í kjölfar Persaflóastríðsins. Ekki trúa því að Bandamenn sprengi viljandi markaði í Bagdad, þar sem saklausir borgarar eru samankomnir, til að draga úr baráttuvilja írakskra hermanna. Persónulega finnst mér líklegast að einhver flaug bandamanna hafi bilað og geigað eða hreinlega að einhver lesblindur gutti frá Ohio hafi verið látinn slá inn hnitin fyrir skotmarkið. Mér finnst líka mun líklegra að ef þessi markaður var sprengdur viljandi þá hafi það verið Írakar sjálfir frekar en Bandamenn. Ég er hins vegar alveg sammála því að við erum að búa okkur til fleiri Osama bin Ladena en útrýma og því er algerlega fáránlegt að kalla þetta stríð gegn hryðjuverkum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli