27. nóv. 2002

Boltinn
Ruud var snilldarlegur í leiknum í gær eins og reyndar allt United-liðið. Samleikurinn var frábær, baráttan einstök og mörkin glæsileg. Bestu mennirnir voru að mínu mati Ruud, Solskjær, Fortune (sem var frábær á miðjunni), Brown og Barthez. Mark nr. 2 var náttúrlega eitthvað sem maður á seint eftir að gleyma – ekki nóg með að Ruud fíflaði varnarmenn Basel heldur var þessi afgreiðsla með ólíkindum. Það hefði verið erfitt að klára úr þessu færi ef enginn hefði staðið í markinu en honum tókst að klára þetta þrátt fyrir að Zubi stæði á línunni. Ótrúlegur leikmaður.
Síðan gerðu Juventus og Deportivo jafntefli á Spáni 2:2 og því er United eitt á toppi riðilsins. Birindelli skoraði fyrra mark gömlu frúarinnar með glæsilegu skoti af 30m færi upp í markvinkilinn fjær. Eitt glæsilegasta mark Meistaradeildarinnar í ár.
Schevchenko gekk síðan frá Real á meðan Dortmund kláraði Lokomotiv í Moskvu í hinum riðlinum. Í kvöld verða síðan kettlingarnir úr Lundúnum í sjónvarpinu.

Fréttablaðið
Bendi á nokkuð góða grein eftir Hálfdan Pétursson í fréttablaðinu í gær. Þar skammast hann út í samnemendur sína í samkeppnisprófum læknisfræði fyrir veimiltítugang eins og hann kýs að kalla það. Drengurinn er skemmtilegur eins og hann á ætt til en hann er sonur Péturs Stera Péturssonar sem er heilsugæslulæknir á Akureyri og því bróðursonur Palla á Höllustöðum.

Almenn þekking…
…er svolítið vítt hugtak og greinir menn oft á um hver hún sé. Yfirleitt finnst fólki nú samt að það sem það veit ekki geti alls ekki tilheyrt almennri þekkingu og því búast auðvitað allir við að fá tíu í prófi úr almennri þekkingu. Ég held því að réttast væri að endurnefna þann hluta prófs í læknisfræði og ætti hann fremur að heita “gagnslaus þekking” eða “vitavonlaustþúvitirðafábjáninnðinn”. Þá væru menn miklu frekar upp með sér yfir því að geta yfirhöfuð nokkurn skapaðan hlut á prófinu í stað þess að allir hlaupi upp til handa og fóta við að kæra þær örfáu spurningar sem þeir gátu ekki.

Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði. Áfram KR!!!

Engin ummæli: