8. nóv. 2002

Lærdómur
Er búinn að lesa um kvensjúkdóma í allt kvöld. Vissuð þið að það er hægt að útskýra allt sem konur væla um vegna áhrifa hormóna. Ég veit ekki hvað þær eru að væla. Við erum líka með hormóna. Við erum dæmdir til að vakna með standpínu alla daga þangað til Viagrað hættir að virka og þær kvarta undan smá blóðsutli einu sinni í mánuði. Ég verð nú að viðurkenna að ég hef aldrei gert mér almennilega grein fyrir hvað þetta er mikið magn á mánuði. Skv. klobbabókinni minni eru þetta að meðaltali 30 ml. Það er 1/10 af stórri kók í gleri. Svo væla þær í heila viku yfir því að þær séu á blæðingum. Konur eru skrýtnar. Ég skil þær ekki. Annars er þetta fremur skemmtilegt fag. Mikil lífeðlisfræði sem mér finnst skemmtileg. Ég held ég leggi þetta nú samt ekki fyrir mig. Fæ mér frekar vinnu í fiski. :)

Boltinn
Rosalegur leikur í Manchester á laugardaginn. Vona að mínir menn taki þetta í nösina og hefni fyrir síðasta ósigur sem var 1989 (1-5). Annars er gaman að segja frá því að leikmenn Sunderland, sem voru fyrir gærkvöldið búnir að skora samtals 6 mörk á tímabilinu, skoruðu 3 mörk á Highbury og unnu 2:3 eftir að hafa lent 2:0 undir. Arsenal er greinilega algerlega hrunið og eini leikurinn sem þeir hafa unnið í næstum mánuð vannst á sjálfsmarki. Það segir meira um þetta lið en margt annað. Aumingjar.

Félag eldri borgara í San Francisco
Viðar lýsir nákvæmlega einhverri tombólu sem félag eldri borgara í SanFran hélt í vikunni. Þar spilaði amma formannsins á píanó og gjaldkeri félagsins stjórnaði sagarkvartetti eldri borgara. Þess má geta að Félag eldri borgara SanFran er eina félag eldri borgara í heiminum þar sem meirihluti félaga er samkynhneigður. Á efnisskránni voru verk eftir Hay Den sem því miður gat ekki verið viðstaddur vegna alvarlegs hjartaáfalls sem hann fékk á lokaæfingunni. Einnig voru verk eftir Beat Oven sem er bandarískur ofnaframleiðandi og French Lift sem er níræður lyftusmiður frá Ungverjalandi en báðir semja þeir tónverk á Yamaha rafmagnsorgel. Að öllu gríni slepptu held ég að einhver verði að setja sokk í útblásturinn frá Viðari svo þessi ósköp rati ekki á prent. Það væri hægt að herma það upp á hann í ellinni og það er alltaf ljótt að hrekkja gamalt fólk.

Talandi um gamalt fólk
Hafið þið tekið eftir því hvað sjónvarpsmenn eru illir. Alltaf þegar einhver verður 100 ára þá láta þeir grey fólkið alltaf syngja einhverjar barnagælur fyrir landsmenn. Svo gerir þetta fólk sig að algerum fíflum fyrir framan 200.000 manns. Af hverju er ekki fólk látið segja frá einhverju skemmtilegu, eins og t.d. hvernig á að flytja fréttir. Mér finnst áberandi hvað fréttamennska er léleg. Helmingurinn af þessu liði er hvorki talandi né skrifandi á almennilega íslensku. Hinn helmingurinn er svo undirgefinn að hann þorir ekki að bjóða viðmælendum sínum byrginn. Það þýðir að annað hvort verða viðtöl við ráðamenn rassbónun af hæstu gráðu eða þá að pólítíkusarnir rúlla yfir liðið með orðum eins og gjörla og árla og þetta útreykta pakk sem er að taka viðtalið er bara alveg út á þekju því þeir voru þunnir þegar þessi orð voru kennd í íslensku 101 í framhaldsskólanum á Útkjálka. Hálfvitar!!!

Virðing
Önni segist bera virðingu fyrir mér. Mín skilaboð til þín Önni: Sonur, ég er stoltur af þér!!! Annars er bloggið hans Önna orðið uppáhaldsbloggið mitt fyrir utan mitt eigið. Mér finnst bloggið mitt vera langskemmtilegast. Strax á hæla mínu kemur síðan Önni. Kannski er ég svona skrýtinn en mér finnst yfirleitt hundleiðinlegt að lesa spurningaliðsmannablogg. Þeir eru svo ógeðslega sögulega þenkjandi. Þeir eru líka eiginlega allir forsögulegir. Þetta eru líka mikið til íslensku- og/eða sagnfræðingar. Þeir eru svo gamalþenkjandi að meira að segja hugsanir þeirra eru rykfallnar, svo ég tali nú ekki um bloggin þeirra. Mér finnst samt gaman að kynnast hvernig gamalt fólk hugsar eins og fyrra blogg benti á. Því lít ég stundum á þessi blogg þeirra. Taka skal fram að fyrir mér er aldur hugarástand en ekki árafjöldi.

Súr brandari dagsins
Ef Golli tæki sig til og semdi lag fyrir Eurovision, mundi það þá heita Ozonlagið? (Þessi var svolítið local)

Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði. Áfram KR!!!

Engin ummæli: