Önundur...
...segir innlegginn virka. Mér fannst mín líka virka fyrst. Það sem angraði mig hins vegar var það að þegar ég fór að spyrjast fyrir komst ég að því að allir sem fara í göngugreiningu fá innlegg. Þegar ég segi allir á ég ekki við flestir heldur allir. Ef þú getur fundið fyrir mig mann sem fór í göngugreiningu og fékk ekki innlegg þá færðu eitt hrós frá mér og örugglega Fálkaorðuna frá Óla grís. Það sem þú fannst var nokkuð sem kallast placebo. Ef maður trúir á að eitthvað verki þá virkar það á sálina þannig að þú hættir að taka eftir einkennum. Síðan þegar frá líður og þú hættir að dást að frábæru innleggjunum ferð þú að finna verkinn aftur og þá versnar hann jafnvel. Svona virka margar af hinum svokölluðu óhefðbundnu lækningum (sumar virka þó tvímælalaust í alvöru eins og sýnt hefur verið í rannsóknum t.d. nálastungur í réttum höndum o.fl.). Ef ég las bæklunarlæknisfræðina mína rétt í sumar er mun líklegra að annar fóturinn styttri valdi þér verkjum í baki eða mjöðmum. Mjög ólíklegt að slíkt hafi áhrif á hnén. Ég þori að veðja mikilvægum líkamspörtum þínum upp á að þú ert með einhverja liðþófalöskun, líklega í liðþófanum framanverðum og gæti þá verið að þú finndir svolítið til við að labba upp í móti eða upp stiga. Nætursársaukann skil ég ekki alveg en þyngdaraflið getur gert undarlega hluti, kannski sest liðþófinn eitthvað asnalega til þegar þú liggur á bakinu, hvað veit ég.
Innlegg
Þessi innleggjamenning er orðin svolítið skondin. Nú er það svo að það má ekki muna 1mm (í mjög svo ónákvæmum mælitækjum) til að fólk fái innlegg vegna styttri fótar. Ef það eru hins vegar jafnlangir fæturnir er týnt til eitthvað sem heitir plattfótur, skakkt niðurstig eða hvað það nú heitir, og menn látnir fá innlegg með púðum hér og þar upp í ilina og undir jarkann og ég veit ekki hvað og hvað. Staðreyndin er hins vegar sú að við erum ekki samhverf um miðlínu. Svipað dæmi væri að ég gerðist lýtalæknir og nýtti mér það þegar fólk kemur á stofu til mín að enginn hefur samhverft andlit. Ég mundi mæla nákvæmlega áferð andlitsins og sýna fólki fram á að það sé ósamhverft - og því alveg hrikalega ljótt. Síðan mundi ég láta það velja fegurri helming andlitsins og móta hinn helminginn sem nákvæma spegilmynd þess fegurri. Út mundi koma fallegur og samhverfur féflettur maður (eða kona). Gallinn er hins vegar sá að ósamhverfan er það sem gerir okkur falleg eða ljót. Menn gleyma því stundum að annar fóturinn getur verið styttri af þeirri einföldu ástæðu að mjaðmargrindin er pínu skökk og líkaminn aðlagar sig með því að hafa annan fótinn styttri. Það er ekki svo að skilja að innlegg geti ekki hjálpað fólki, ég er bara að segja að þeir sem selja þau eru búnir að skemma fyrir sér trúverðugleikann með því að setja innlegg í alla skó sem voga sér inn fyrir þröskuldinn hjá þeim.
Boltinn
Mikið rosalega var ég dissaður núna maður. Bæði Ipswich og Blackburn duttu út úr UEFA-bikarnum í kvöld. Kannski er Liverpool með skítsæmilegt lið eftir allt saman. Kalt mat: Nei.
Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði. Áfram KR!!!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli