9. nóv. 2002

Boltinn
Ég er alveg að gefast upp á Alex Ferguson. Í stað þess að nota eitthvað af þessum snillingum í varaliðinu t.d. Richardson, Djordjic, Stewart eða Fletcher ákveður hann að spila með Neville-systurnar inni á. Ég skil ekki af hverju hann spilaði ekki með Stewart í stað Philipíu aftarlega á miðjunni. Síðan er Forlan búinn að vera brilliant í síðustu leikjum en samt fer hann á bekkinn um leið og Nistelrooy er hættur að væla. Hann var lélegasti leikmaðurinn á vellinum í dag og það var af nógu að taka. Barthez gerði nákvæmlega það sem hann mátti ekki gera í fyrsta markinu. Ef hann hefði látið boltann fara hefði hann líklega farið út af eða Ferdinand hefði hreinsað. Í stað þess blakar hann boltanum beint á Anelka. Síðan er stóra systir að kerlingast í öðru markinu. Spáiði í að fá að vera fyrirliði af því allir vorkenna þér og síðan kúkar hann algerlega í stígvélin sín. Hálfviti!!!! Síðan klikkaði hann eiginlega líka í þriðja markinu því hann fylgir manninum ekki í hlaupið. Barthez átti svo sem ekki neinn stórleik – varði ágætlega inni á milli en seinni mörkin voru bæði frekar slök og kannski átti hann að verja þetta greyið. Sem betur fer vann Liverpool ekki en Arsenal stakk United af líka. Persónulega finnst mér að Ferguson eigi að taka meðvitaða ákvörðun um að einbeita sér að Evrópukeppninni, leyfa ungu mönnunum að spila svolítið mikið heima fyrir og koma síðan með nýtt gullaldarlið á næsta tímabili. Þá verður Blanc ekki lengur að þvælast fyrir O’Shea (Blanc var reyndar ágætur í dag). Það verður fínt að fá Brown í bakvörðinn, Silvestre hinum megin og síðan Rio og O’Shea í miðvarðarstöðurnar. Ætli árans aumingjarnir á Highbury taki þetta ekki aftur eða þá Liverpool-skepnurnar. Það mundi auðviðað þýða að sá hluti þjóðarinnar sem dregur niður greindarmeðaltalið hérlendis yrði óþolandi næstu misserin en sem læknanemi (og á stundum starfandi læknir) hefur maður lært að umgangast leiðinlega sjúklinga með virðingu og án fyrirlitningar. Maður getur nú líklega gert það við Liverpool-greyin líka.

Miðaldra kona!!!!
Á föstudagsmorgunn gekk ég í svefnrofunum áleiðis í skólann. Leiðin lá niður Eskihlíðina í átt að kvennadeild Landspítalans. Það var kalt í veðri og ég því venju fremur pirraður enda afskaplega erfitt að dotta á ganginum í svona kulda. Sem ég nálgast gatnamót Snorrabrautar/Bústaðavegar og Miklubrautar/Hringbrautar þá sé ég að bíll nokkur hefur ragast við að skella sér yfir þegar rauða ljósið kom og teppir því leið mína. Þar sem þráðurinn er stuttur hjá mér verð ég svolítið pirraðri en áður og kíki inn í bílinn. Sýndist mér sitja þar nokkuð myndarleg miðaldra kona, hálfsofandi eins og ég. Hún var í forláta loðpels en á fremur ljótum bíl – líklega Diahatsu. Linkaðist pirringurinn nokkuð við þetta enda er ég þekktur fyrir að vera blíður við konur. Þegar ég svo nálgast bílinn snýr konan sér að mér og viti menn. Þetta var ekki kona heldur Daníel Ágúst Haraldsson fyrrverandi söngvari Nýrra Danskra. Mikið rosalega er maðurinn kvenlegur. Frábær söngvari samt. Mér finnast Ný Dönsk vera frekar slöpp án hans þrátt fyrir að Björn Jörundur sé ágætis söngvari. Annars er ég mikill aðdáandi þessarar frábæru hljómsveitar.
Ef menn eru að velta fyrir sér hversvegna ég segi “Nýrra Danskra” hér að ofan þá er það vegna þess að einhvers staðar heyrði ég að nafnið væri komið úr auglýsingu þar sem auglýst voru Ný Dönsk blöð og því ætti eignarfallið að verða Nýrra Danskra og maður ætti að segja “Ný Dönsk eru…” í stað “Ný Dönsk er…”.


Besti dissarinn
Viðar veitir mér ofannefnda nafnbót á bloggi sínu í gær. Þakka hana og samþykki stoltur. Engan vil ég þó dissa í fýlu og vona að fólk taki skrifum mínum hér frekar sem persónulegum skoðunum en sem einhverjum alheilögum sannleik. Eins er fólki alveg frjálst að dissa mig til baka en ég endurtek orð sem ég lét falla einhvern tíma þegar einhver reyndi að stríða mér. “Ég hef verið lítill alla ævi og er því orðinn vanur dissi. Ég er ÓDISSANLEGUR.”

Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði. Áfram KR!!!

Engin ummæli: