25. nóv. 2002

Gleymdi
Stólpaparið Gunni og Baddý er farið að blogga - án þess að láta mig vita. Skammist þið ykkar ekki? Raunar virðist Gunni greyið hafa örmagnast við að búa til síðuna enda ekki við almennilegu bloggi að búast frá einhverjum h******* Valsmanni. Baddý er hins vegar dugleg og er m.a.s. búin að hlekkja á mig (ef rætt er um Gunna ætti að sleppa á og yrði þá setningin: ...hlekkja (á) Gunna). Að launum fyrir meðaltalsdugnaðinn (deila hjón ekki öllu?) fá þau bæði hlekki við nöfnin sín hér en varanlegu hlekkirnir verða að bíða þar til ég er búinn að læra á tölvur.

Stebbi Páls...
...er alveg miður sín yfir úrslitum prófkjörsins á laugardaginn en hann hafði auðvitað vonað að Sjálfstæðismenn kysu yfir sig gamla pakkið eins og vinstri menn gera yfirleitt (a.m.k. þeir örfáu sem trúa á lýðræði). Reyndar er forystan auðvitað sú sama en baklandið er orðið allt annað og greinilegt að Sjálfstæðismenn í Reykjavík vilja fjölbreytta frambjóðendur á þing sbr. það að Pétur Blöndal, sem hefur ekki alltaf verið sammála meirihlutanum í flokknum, hlýtur glæsilega kosningu í fjórða sætið. Ég hlakka til að sjá fyrsta blogg Stefáns eftir kosningarnar í vor. Mig grunar að það verði ekki á annan í kosningum. Þess verður langt að bíða.

Súru brandararnir...
...eru alveg hættir að flæða og verða menn að fyrirgefa þurrkana. Það rignir um síður - sannið til.

Auk þess legg ég til að Valsbraggin verði lagður í eyði. Áfram KR!!!

Engin ummæli: