Ótrúlegt bull
Rakst á ónefnda bloggsíðu í dag. Hef aldrei á ævinni lesið jafnmikla endemis vitleysu. Hér er ég sem sé að ræða um síðu manns sem hefur átt í hálfgerðri bloggdeilu við Kisu um erfðafjárskatta. Þarna er hægt að lesa allskyns þvælu um allt milli himins og jarðar og flest af því er svo rosalega litað af því að grey barnið hafi verið heilaþvegið af miskunnarlausum foreldrum sínum alla sína æsku. Það kæmi mér ekki á óvart að þau væru annað hvort eldrauðir grunnskólakennarar eða krullhærðir sagnfræðingar. Hann kemur síðan algerlega upp um endalausa fávisku sína með því að úthúða neðanjarðarlestarkerfi Lundúna og segir meðal annars að kerfi Moskvuborgar sé betra. Eflaust er kerfi Moskvu gömlu ágætt og tek ég umræddan Kristbjörn trúanlegan fyrir því uns ég hef sannreynt það sjálfur. Neðanjarðarlestarkerfi Lundúna þekki ég hins vegar af eigin raun en þangað kom ég fyrir fjöldamörgum árum þegar ég var 18 ára. Það tók okkur félagana ca. 20 mín. að læra á þetta mjög svo einfalda kerfi og gekk það snurðulaust fyrir sig allan þann tíma sem við vorum í London. (fjöldamargir dagar, næstum því vika). Vel getur verið að því hafi hrakað síðan en ég hef nú grun um að vandamálið liggi fremur hjá Kristbirni sjálfum en í kerfi Lundúnaborgar.
Erfðafjárskatturinn
Skattakerfi Íslendinga er mjög skrýtið og flókið og í því er ég enginn sérfræðingur. Eftirfarandi gæti borið keim af því. Ég held að óvíða í heiminum sé meira um tvísköttun á borgarana og hefur það gert það að verkum að fátækt hefur aukist hér á landi. Hugsum okkur til dæmis einstæða móður sem hefur 100.000 kr í laun á mánuði. Hún tekur heim líklega eitthvað í kringum 85.000 kr á mánuði. Síðan fer hún út í búð að versla og þar sem hún hefur verið heilaþvegin að hætti Önundar þá er hún sérlega dugleg að gefa börnunum sínum mjólkurvörur. Ekki nóg með að hún þurfi að borga vask af þessum mjólkurvörum heldur hefur talsverður hluti af sköttum hennar síðustu árin farið í að niðurgreiða þessar sömu mjólkurvörur. Sjáiði hvað þetta er öfugsnúið allt saman?
Súr brandari dagsins
Held að ég geti ekki toppað kímni Önundar og ætla því ekki að reyna heldur mæla með hans.
Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði. Áfram KR!!!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli