Baggalútur...
...er oft á tíðum snilldarsíða. Ingvar aumingjabloggari heimsótti mig stuttlega í gær og benti mér á að þar má oft finna úrvalskveðskap og við nánari skoðun var tvennt sem sló í gegn hjá mér. Annars vegar var það bréf Matthíasar Jochumsonar til fóstru sinnar sem forvitnir geta lesið hér. Hins vegar var það svokallað Íslandsmeddley en þar mæli ég fyrst og fremst með erindunum um Bríetarkvinnurnar og Vatnsmýrarmóra sem bæði eru fremur seint í ljóðabálkinum. Einnig eru þrífarar vikunnar oft á tíðum snilld og eru þrífarar þessarar viku engin undantekning.
Boltinn
Það stefnir allt í að Liverpool verði eina enska liðið sem ekki tekst að tryggja sig áfram í Evrópukeppninni. Þeim tókst hins vegar að tryggja sig aftur á bak inn í Evrópukeppni félagsliða. Þeir geta nú aftur stefnt á þrennuna eftirsóttu sem Poolarar héldu ekki vatni yfir fyrir 2 árum síðan en eins og allir vita var aðeins ein merkileg dolla í þessu bikarasafni sem þeir unnu og það var FA-bikarinn (mjólkurbikarinn svokallaði). Leeds var að enda við að skjóta 4x í höfuðið á Alan Smith og í netið og Ipswich og Blackburn munu líklega líka fara áfram. Langar bara að benda Liverpool aðdáendum að lélegt 1. deildar lið á Englandi getur komist jafnlangt og Liverpool í Evrópukeppni félagsliða, hvað sem síðar verður.
Súr brandari dagsins
Liverpool-vörnin var eins og svissneskur ostur á móti Basel!
Snillingur dagsins...
...er Sverrir fyrir að kalla mig öfgahægrimann. Maðurinn hefur séð að sér eftir kjarngóða máltíð a la Gilli og breytt þessu. Ég hef alltaf sagt að menn eigi að taka mikilvægar ákvarðanir eftir kjarngóðar máltíðir.
Eru allir orðnir aumingjabloggarar?
Hjölli og Haukur Þór eru algerlega dauðir. Inga Huld hefur dalað mikið. Viðar er orðinn latur. Sjonni er farinn til Bagdad. Sverrir er að undirbúa stjörnuskoðun. Ingvar og Þór - hverjir eru það? Þetta eru allt tómir kettlingar. Eini maðurinn sem stendur undir nafni er Önundur tréfótur úr Hnoðraholti. Önni er daglegur áfangastaður á netinu eins og Selfoss er áfangastaður á leiðinni upp í Grafarvog.
Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði. Áfram KR!!!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli