11. nóv. 2002

Sturla
Sturla Böðvarsson vann ótrúlegan svindlsigur í prófkjöri Sjálfstæðismanna í NV-kjördæmi. Sigurinn innbyrti Sturla með því að safna atkvæðum á geðdeild sjúkrahúsanna á Akranesi, Sauðárkróki og Blönduósi auk þess sem hann kom við í Stykkishólmi og á Ísafirði og Patreksfirði. Þetta segi ég vegna þess að það mundi ekki nokkur heilvita maður kjósa þetta fífl yfir sig. Það er nokkuð ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn mun ekki ríða feitum hesti frá kosningum í þessu kjördæmi í vor. Það versta við þetta prófkjör er það að eini almennilegi frambjóðandi Sjálfstæðismanna í þessu kjördæmi, Vilhjálmur Egilsson, beið algjört afhroð og endaði í 5. sæti listans og hefur hann þegar látið hafa eftir sér að hann muni ekki taka þetta sæti.

Súr brandari dagsins
Þegar úrslit prófkjörsins lágu fyrir í NV-kjördæminu hringdi Sturla í Vilhjálm Egilsson og sagði sigri hrósandi sinni barnslegu röddu: Þú hefur verið Sturlaður!!!!:)

Boltinn
Jónatan Grænkar fyrrum United kappi hefur verið valinn í enska landsliðshópinn. Þess verður sennilega ekki langt að bíða að Eriksson sér ljósið og velur bara núverandi og fyrrverandi leikmenn besta liðs heims í landsliðið hjá sér. Palli tomma og Andrés Kol gætu því hlotið náð fyrir augum þjálfarans ásamt nokkrum fleirum. Hlakka til þess dags.

Kvennakúrsinn
Er að verða hinn skemmtilegasti fyrir utan þá staðreynd að konur virðast fá mikla slökun í legið þegar ég kem nálægt fæðingarganginum og því hefur mér aðeins tekist að vera viðstaddur eina fæðingu á kúrsinum til þessa. Þetta ætti þó að lagast á næstu dögum því ég er fluttur inn á kvennadeildina og verð hér á sólarhringsvakt 3 af næstu 7 dögum, þ.e. í kvöld, fimmtudag og síðan á sunnudaginn. Maður mætir á slíkar vaktir kl. 800 að morgni og fer heim kl. 800 morguninn eftir. Maður hefur aðstöðu til að leggja sig og aðgang að tölvu þannig að þetta er ágætt. Skrifa sjálfsagt eitthvað skemmtilegt ef lítið verður að gera í nótt.

Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði. Áfram KR!!!

Engin ummæli: