22. nóv. 2002

Merkilegt
Umræðan um breytingar á raunvísindadeildum finnst mér aldeilis skemmtileg og þá sérstaklega ósættið sem skapast hefur milli félagsvísindamanna og raunvísindamanna. Það er auðvitað gott að standa utan við þetta í grein sem byggir að stórum hluta á raunvísindum með félagsvísindalegu ívafi en snýst um félagsvísindi með raunvísindalegu ívafi í daglegu amstri. Ég skil bara ekki þetta viðhorf að kynjahlutföll þurfi endilega að vera jöfn í öllum greinum og raunar hef ég ekki séð neinn berjast hatrammlega fyrir breytingum á greinum þar sem konur eru í meirihluta til þess að auka hlut karla í stéttinni. Raunar hafa nokkrir strákar úr hjúkrunarstétt vakið athygli á greininni upp á sitt einsdæmi en það voru engir jafnréttisfulltrúar með í því svo ég viti. Gæti það kannski verið að Y-litningurinn veiti okkur körlunum ákveðna hæfileika á ákveðnum sviðum og hitt X-ið gefi konum eitthvað forskot á öðrum. Ég held það. Auk þess held ég að smávægilegar breytingar á námsskrá muni ekki hafa áhrif á þessi mál heldur miklu frekar áróður og vitundarvakning í mennta- og barnaskólum.

Stefán Pálsson
Er skemmtilegur maður og kjaftfor. Skoðanir hans eru oft framúrskarandi undarlegar og oft hrjóta af vörum hans þvílík snilldarinnar spakmæli að annað eins heyrist varla nokkurs staðar í heiminum. Hins vegar held ég að við Stefán höfum aldrei verið og munum aldrei verða sammála um nokkurn skapaðan hlut. Það er eins og áður hefur komið fram alveg sérlegt áhugamál mitt að tala við svoleiðis fólk. Stefán hefur því verið valinn snillingur dagsins. Mæli með bloggsíðunni hans sem er hlekkjuð við nafn hans hér að ofan. Til hamingju með það Stefán.

Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði. Áfram KR!!!

Engin ummæli: