3. nóv. 2002

Boltinn
Forlan er greinilega kominn í gang. Þetta mark hans á laugardaginn var algjör snilld. Loksins þegar hann skorar þá er þetta hvert snilldarmarkið á fætur öðru. Hann notar vonandi markabónusinn sinn til að splæsa á sig klippingu. Því miður fékk Arsenal gefins sigur á Craven Cottage gegn Fulham og skrípildýrið hann Owen virðist vera kominn í gang greyið en eins og allir vita þýðir það að hann meiðist innan hálfs mánaðar. Þeir eru tómir aumingjar þessir Poolarar og maður verður að efast um hæfileika sjúkraþjálfaranna þeirra. Menn eins og Redknapp og McManaman hafa varla meiðst eftir að þeir fóru þaðan en voru alltaf að meiðast hjá Liverpool. Sama má segja um Heskey sem var næstum aldrei meiddur hjá Leicester en nú er hann í sífelldum meiðslum. Þetta er náttúrlega bara væl. Mínir menn eru samt komnir á beinu brautina og vonandi geta þeir sýnt hvað í þeim býr á næstu vikum.

Helgin...
...var róleg. Á föstudag fór ég í innflutningspartý hjá Örvari, stoppaði stutt og fór svo heim og spilaði Trivial við litlu systur hennar Eddu og kærastann hennar. Vann þau naumt -maður er farinn að eldast. Síðan svaf ég í litla 13 tíma - það var ljúft. Svo var ferðinni heitið á Rannsóknarráðstefnu læknanema þar sem ég var bæði með erindi og veggspjald. Fékk að launum nokkuð góða rauðvínsflösku. Eftir 2 bjóra og nokkrar snyttur fór ég með konunni í bíó með viðkomu á einum af fínasta matsölustað landsins - McDonald's þar sem ég sporðrenndi Big Mac stjörnumáltíð á mettíma. Myndin var "Sweet Home Alabama" en hana fílar maður ef maður er stelpa á aldrinum 15-85. Hún átti reyndar ágæta spretti inn á milli og sá ég merkilega lítið eftir 800 kallinum (þ.e. ekkert mikið meira en venjulega þegar ég fer í bíó). Síðan var farið heim og mér stillt upp til að horfa á þá smánarlega kvikmynd "Dirty Dancing" sem ku vera í uppáhaldi hjá fyrrgreindum aldurshópi kvenna. Ekki þótti mér mikið til koma en þó var hægt að hlæja að aumkunnarverðum leikhæfileikum Patreks Svæsna. Hún fær því 1/5* fyrir skemmtanagildi. Sweet Home Alabama fær 3/5*. Í dag sá ég síðan stórræmuna Spiderman með Tobey litla Maguire. Nokkuð góð afþreying og greinilega óhugguleg því ungur frændi Eddu Guðrúnar horfði að mestu á hana undan þykku fleese-teppi. Hún fær líka 3/5*

Beckham-hjónunum...
...var brugðið um helgina eftir að glæpaklíka sem hugðist ræna Victoriu var upprætt. Victoriu var brugðið vegna þess að hún vill ekki láta ræna sér en David vegna þess að hann á Evrópuleik á miðvikudag og hann mundi ekki vita hvaða nærbuxum hann mætti spila í. Ég held að þessi falli undir flokkinn súr brandari dagsins - er það ekki annars?

Súr brandari dagsins
Hver er munurinn á Davíð Oddssyni og Ingibjörgu Sólrúnu? Davíð er með hár. HAHAHAHAHAHAHAHAHAHA :)

Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði. Áfram KR!!!

Engin ummæli: