Caruso restaurant
Við fórum nokkrir félagar að borða á téðum veitingastað í gærkvöldi. Maturinn var mjög góður og m.a. kjammsaði einn okkar á því sem hann sagði vera ljúffengan skötusel. Ég sá strax eftir því að hafa ekki farið að fordæmi hans og pantað mér slíka máltíð enda er skötuselur eitthvert mesta lostæti sem um getur. Það fyndnasta við kvöldið var þegar nokkrir úr hópnum ákváðu að fá sér eftirrétt. Fyrir valinu varð fljótandi súkkulaði eða Súkkulaðiterta með ís eins og stóð á matseðlinum. Þetta kostaði litlar 1150 kr og bjuggust menn því við vel útilátnum dessert. Þegar eftirrétturinn ætlaði allt um koll að keyra af hlátri meðal þeirra sem ekki höfðu pantað dessert en hinir urðu fremur hnýpnir. Dessertinn samanstóð nefnilega af einum litlum eggjabikar af súkkulaðiköku og einni lítilli ískúlu ásamt berjum og einhverju skrauti. Kílóverð á súkkulaðiköku er orðið hærra en á gulli.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli