12. nóv. 2002

Boltinn
Það verður gaman að fylgjast með boltanum í kvöld og sjá Basel sparka Liverpool út úr Meistaradeild Evrópu. Það er ekki oft sem maður losnar við Tvö leiðinlegustu þýsku liðin út úr keppninni í fyrstu umferð en nú er Bayern dottið út og Liverpool við það að hrynja líka. Þið veltið kannski fyrir ykkur hvort þið hafið lært landafræðina ykkar vitlaust – hvort Liverpool sé raunverulega í Þýskalandi en ekki úthverfi Manchesterborgar eins og þið hélduð alltaf. Ástæðan fyrir því að ég kalla Liverpool þýskt lið er sú að þeir hafa um langt skeið spilað afspyrnuleiðinlegan varnarsinnaðan kick&run stíl að hætti Þjóðverja. Skipulagið virðist höfuðatriðið og það að halda boltanum, helst inni á eigin vallarhelm-ingi. Þennan leiðinlega leikstíl hef ég alltaf sett í samband við þýska knattspyrnu og lái mér hver sem vill. Liverpoll spilar með Heskey fremstan í sjö manna vörn. Síðan spila oft Murphy og Smicer þar fyrir framan og síðan Owen litli aleinn frammi. Síðan hefur hann greyið verið skammaður fyrir markaþurrð (sem hefur batnað að undanförnu eingöngu vegna þess að hann er frábær framherji en ekki fyrir tilstilli liðsins). Það líða heilu og hálfu leikirnir þannig að Liverpool er með boltann en samt er hann einn á vallarhelmingi andstæðinganna – hvað er það?!! Eina ástæðan fyrir því að Liverpool trónir á toppi úr-valsdeildarinnar er frábær markvörður, góður miðvörður og heimsklassa framherji. Auk þess hafa þeir átt fremur rólega dagskrá, þ.e. slakari lið deildarinnar. Í desember mæta þeir bæði Arsenal og MUFC og sést þá vonandi úr hverju þetta skítalið er gert – nær eingöngu tómum aumingjum.

Skúrkur dagsins
Sverrir Guðmundsson er skúrkur dagsins og raunar síðastliðinna vikna fyrir að láta orðið sjálfstæðismaður birtast þegar rennt er yfir linkinn á Ljós-Gíslann á bloggsíðu hans. Þrátt fyrir fögur fyrirheit og afsökunarbeiðni, hefur Sverrir á mjög svo undirförulan og svik-samlegan hátt komið þeim skilaboðum áleiðis til lesenda sinna að ég sé eldheitur stuttbuxnadrengur. Ef ég kynni á tölvur yrði þessa illvirkis hefnt grimmilega en í staðinn hefur Sverrir verið útnefndur skúrkur ársins 2002 þrátt fyrir að árinu sé ekki lokið. Til hamingju Sverrir! Í verðlaun er ljúffeng máltíð fyrir tvö á veitingahúsinu “a la Gilli”. Í forrétt er hlandmarineraður ræpuvellingur, í aðalrétt útfrosinn flamberaður saur og í eftir-rétt bragðþefur með gíslísku yfirbragði. Verði þér að góðu.

Klassíska hornið toppað
Við lestur bloggsins hjá Viðari í dag sofnaði ég þrisvar. Samt var ég nývaknaður þegar ég byrjaði. Má ég biðja um klassíska hornið aftur.

Fæðingarvakt
Sá 5 fæðingar síðastliðna nótt á vaktinni. Þar af voru 3 keisaraskurðir. Snilld. Ekkert fallegra en að sjá nýtt líf hefjast. Mæli með því.

Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði. Áfram KR!!!

Engin ummæli: