Garðabæjargrúppan…
…kom saman í gær heima hjá Heiðari og Fríðu. Þar var almennur aumingjagangur viðhafður og aðeins við Heiðar fengum okkur mjöð sem rann ljúflega niður eins og fyrri daginn. Var þar mikið spjallað um pólítík, bíómyndir (LOTR) og fleira. Menn voru ekki á eitt sáttir um málefnin frekar en fyrri daginn en þó munurinn á skoðunum ekki eðlismunur heldur mun fremur áherslumunur. Burt séð frá því þá hafði Heiðar víst sett fullmikið af bjór í kverkarnar á sér því hann fékk þá arfaslöku hugmynd að fara á Thorvaldsen-bar. Það eina jákvæða við þá heimsókn var að sjá hversu lítill Eyþór Arnalds er. Reyndar hefur læðst að mér sá grunur í dag að um mini-me Eyþórs hafi verið að ræða. Þar sem ég var inni en Edda aftast í langri röð var tekin sú frábæra ákvörðun að yfirgefa staðinn og reyna fyrir sér annars staðar. Kom í ljós að enginn vildi fá okkur og virtust myndast langar raðir hvert sem við fórum. Við Edda gengum því að Hlemmi, fengum okkur Devitos-flatböku sem er sú besta sem ég hef smakkað og síðan var húkkaður leigubíll.
Afmælisbarn dagsins…
…er fallegasta kona heims – hún Edda mín. Hún varð 24 ára í dag og náði mér því eftir að ég hafði haft forystu um 6,5 mánaða skeið. Takið ykkur frí frá önnum dagsins og syngið fyrir hana. Í tilefni dagsins hef ég ákveðið að sleppa lokaorðum bloggsins í dag en það verður á sínum stað á morgunn.
Aumingi dagsins
Að sjálfsögðu er Jakob Frímann Magnússon sá eini sem kemur til greina.
Súr brandari dagsins
Spurði félaga minn hvernig stemmingin hefði verið á prófkjörsvöku Jakobs Frímanns í gærkvöldi. Hann svaraði að bragði: “Það var stuð, maður!”.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli