20. nóv. 2002

Skólinn
Var rétt í þessu að leggja lokahönd á verkefni sem ég á að flytja á kvennakúrsinum á morgunn. Viðfangsefnið er afar geðslegt - Herpes Genitalis eða kynfæraáblástur. Namminamminamm!! Annars líkar mér bara vel á kúrsinum og virðast sögur af illkvittnum ljósmæðrum vera stórlega ýktar. Eru þessar konur alveg framúrskarandi indælar upp til hópa þó auðvitað sé eins og annars staðar misjafn sauður í mörgu fé. Eða eins og Megas mundi segja það: "Diffrent rolla í bunch af money" Ég fékk viðurnefnið Bricanyl-maðurinn vegna einstakra hæfileika við að koma í veg fyrir fæðingar. Bricanyl er sem sé lyf sem er notað til að fresta fæðingu ef ástæða þykir til en ég þótti sérlega lítið fiskinn á fæðingar og þá sérstaklega eðlilegar fæðingar. Ég komst í slatta af keisaraskurðum, klukkufæðingum og slíkt en aðeins örfáar venjulegar fæðingar. Þetta hefur samt verið mjög gaman og ekki laust við að upplifunin við að sjá öll þessi kríli koma í heiminn framkalli hringl í eistunum á manni. Læt það nú samt sem vind um eyru þjóta uns ég hef fjárfest í góðu þaki með íbúð undir.

Vinna
Það verður massadagskrá næstu vikurnar því ég hef tekið að mér að vinna þrjár vaktir á Slysó næstu 2 vikurnar auk þess sem styttist í prófin sem verða 6. des og 12. des. Fyrst verða kvensjúkdómarnir brotnir til mergjar og síðan verður barnalæknisfræðinni hesthúsað áður en við tekur einhver kjaftakúrs fram að jólum. Annars er ég nú svo undarlega af guði gerður að ég hlakka ekki til jólanna fyrr en ég er búinn í prófum. Veit nú ekki hvort það er greindarlegt að vinna svona rétt fyrir próf en maður verður að vinna ef kaupa á íbúð. Vonum bara að ungviðið taki því rólega svona seint í nóvembermánuði þegar líða tekur að jólum. Þá getur verið að maður geti eitthvað kíkt í bók á vaktinni.

Hannyrðir
Hitti ungan mann í dag sem ég saumaði á Slysó í sumar. Gaman að sjá afrakstur hannyrðanna en drengur þessi hafði fengið allljótan skurð á hægri augabrún. Virtist hafa tekist vel til, alla vega var drengurinn ánægður.

Aumingjar vikunnar
Eru tveir, Hjálmar Árnason og Össur Skarphéðinsson sem héldu því fram á Alþingi að fjöldatakmarkanir í heilbrigðisgreinum í Háskólanum væru til komnar vegna þess að heilbrigðisstarfsfólk vilji halda spítulunum undirmönnuðum. Læknar vilja sem sagt vera fáir. vinna minnst eina vakt í viku á skítalaunum og helst ekki hafa neina aðstoðar- eða deildarlækna til að aðstoða sig vegna þess að það er miklu meira gaman að standa upp fyrir haus í vinnu allar vaktir. Reyndar hefur forseti læknadeildar svarað þeim með háði og spotti í Morgunblaðinu í dag. Málið er það að það er hvorki til húsnæði, fjármagn né mannskapur til að kenna fleiri læknanemum á ári en raun ber vitni - og raunar er kraftaverk að stjórn læknadeildar skuli geta fjölgað læknanemum í 48 á ári frá og með áramótum. Í hjúkrun hefur nú verið vandamál að tilskyldur fjöldi hefur ekki náð clausus-prófunum og sama hefur oft verið upp á teningnum í tannlæknisfræði og sjúkraþjálfun. Össur gerði því enn einu sinni í buxurnar sínar og hefur nú ráðið bróður sinn barinn og atvinnulausan til að hreinsa fyrir sig buxurnar en fyrir hreinsunina greiðir hann eflaust úr sjóðum Samfylkingarinnar ef ég þekki kauða rétt. Svo heldur hann örugglega með Val eða Fram.

Súr brandari dagsins
Af hverju étur Össur ekki reyktan lax? Össur veit það sem augljóst er að laxinn er nýbúinn að fá'ða!!!

Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði. Áfram KR!!!

Engin ummæli: