"Íþróttir"
Keila er bjánalegt tómstundagaman sem sumir vilja kalla íþrótt. Ef litið er á pöpulinn sem stundar þetta reglulega væri maður hins vegar fljótur að sjá að þarna er lítið um íþróttamenn heldur eru þetta yfirleitt stórir, feitir, illa lyktandi og skítugir karlar um fimmtugt sem verða að stunda þessa aumu tómstundaiðju vegna þess að þeir eru lélegir í öðrum íþróttum og Viagra virkar ekki á þá. Ef menn vilja kalla þetta íþrótt er lágmark að þeir hlaupi með kúluna á enda brautarinnar áður en þeir þeyta henni í kúlurnar eða þá að þeir sæktu kúlurnar sjálfir og stilltu upp keilunum ef svo ólíklega vildi til að þeir mundu hitta eitthvað af þeim. Ástæða þess að ég fæ allt í einu útrás fyrir keiluhatur mitt er sú að félagar mínir taka stundum upp á því að bjóða mér með í keilu. Þeir gera þau mistök yfirleitt ekki oft hver en hafa gert að gamni sínu að siga óreyndum greyjum á mig þegar kemur að boðun. Best væri samt að innlima keiluhöllina í Öskjuhlíð í íþróttafélagið Val. Það mundi fullkomna ömurleika Vals og þess að spila keilu.
Boltinn
Mínir menn klikkuðu ekki í gærkvöldi fremur en fyrri daginn og ég held að þessi Richardson-fýr eigi eftir að gera góða hluti. Skallinn var víst frekar magnaður hjá honum í gær miðað við lýsingarnar á netinu. Síðan er undrabarnið Nardiello að fá fína dóma fyrir leikinn þrátt fyrir að ná ekki að skora. Kannski er bara að koma ný bylgja af snillingum úr unglingastarfinu á Old Trafford. Það væri þá svona svipað eins og síðast þegar Giggs kom fyrstur og síðan kom halarófan á eftir Beckham, Scholes, Butt, Neville-systurnar og Brown. Þá væri þetta náttúrlega búið spil á Englandi næstu árin. Engir titlar fyrir Arsenal og Liverpool sem hvorugt er með jafnsterkt unglingastarf og United (þrátt fyrir að það sé ágætt hjá Liverpool).
Súr brandari dagsins
Ef Valur mundi stofna keiludeild væri það eina góða við hana að hægt væri að kalla hana Veilu!!!!! :) hahahaha
Auk þess legg ég til að Valsbragginn og keiluhöllin verði sameinuð og síðan lögð í eyði. Áfram KR!!! (helvítis KR-ingarnar eiga keilulið - þessu þarf að breyta)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli