Prófkjörið
Hrikalega ánægður með prófkjörið, nema kannski hvað Solla Bolla var ofarlega. Ekki kom á óvart að Davíð, Geir og Björn héldu sínu. Pétur kemur mjög sterkur inn í fjórða og Sólveig hefur líklega tapað ráðherrastólnum eftir útreiðina en mín vegna hefði hún alveg mátt vera neðar. Guðlaug setti ég nú ekki á listann minn en get þó verið sáttur við útkomuna hans - hann er búinn að vera duglegur í borginni og verður það vonandi líka á þingi. Síðan er Sigurður Kári minn maður í sjöunda með glæsilega kosningu. Guðmund og Ástu setti ég hvorugt á lista og hefði verið nokkuð sama þó þau hefðu dottið út. Birgi hefði ég viljað hafa ofar en hann er líklega öruggur á þing og því lítið hægt að segja við því. Katrínu vil ég helst ekki hafa á listanum enda fer hún í taugarnar á mér en Láru Margréti hefði ég viljað hafa ofar en vona þó að hún komist á þing. Síðan eru auðvitað Ingvi Hrafn og ungu konurnar sem maður hefði nú kannksi viljað sjá ofar en það geta víst ekki allir unnið. Í heildina held ég að þessi listi sé mjög frambærilegur og raunar sigurstranglegur en ég held að heillavænlegra hefði verið að deila honum niður með hinni gamalkunnu kosningaaðferð 1-2-2-2-2-1 eins og maður gerir í boltanum til að jafnara sé í liðum. Þetta mundi þýða að Geir og Björn yrðu saman í kjördæmi sem mótvægi við Davíð í hinu. Þá hefðu listarnir verið:
Davíð - Pétur - Sólveig - Guðmundur - Ásta annars vegar og hins vegar Geir - Björn - Guðlaugur - Sigurður Kári - Birgir.
En eins og áður sagði þá er ég nokkuð sáttur.
Barbapabbi
Ég hef nokkrar áhyggjur af því að nú sé að koma fram heil kynslóð lækna sem ekki veit hvernig Barbapabbi er á litinn. Þetta er auðvitað hræðilegt mál og verður að koma í veg fyrir. Þess vegna er ég mjög fylgjandi því að þessi spurning fái að lifa í úrtökuprófi læknadeildar. Ég skil samt ekki kvartanirnar. Prófið er úr almennri þekkingu og maður mundi nú halda að þetta falli undir almenna þekkingu. Sama má segja um spurninguna um Fox Mulder. Aftur á móti held ég að þessar dylgjur um að í prófinu hafi reynst leynt greindarpróf séu mun alvarlegri og þurfi að kanna. Það er auðvitað ekki sjálfgefið að mikil greind skapi góðan lækni. Persónuleikapróf væri mun heillavænlegra og er raunar notað sums staðar erlendis. Það þyrfti þó auðvitað að gera fyrir opnum tjöldum.
Boltinn
Ruud er kominn í gang og því loksins eitthvað farið að gerast hjá mínum mönnum. Á laugardaginn hafði Ferguson loksins kjark til að nota guttana og auðvitað blómstraði liðið. Menn benda á þrjú mörk fengin á sig en ég segi bara, frekar að spila skemmtilegan bolta og fá á sig nokkur mörk en að spila leiðinlegan leik og halda hreinu. United hefur alltaf verið f.o.f. sóknarlið en ekki varnarlið. Svona er þetta bara. Arsenalleikinn sá ég með öðru og fannst brottreksturinn og vítið harður en réttur dómur. Þetta var brot og þar sem það átti sér stað inni í teig og Sol var aftastur átti dómarinn enga aðra kosti í stöðunni - víti + rautt. Hann virtist fyrst bara fara í öxlina en í endursýningunni sást að hann hittir ekki öxlina á sóknarmanninum heldur bakið - ergo - þetta var bakhrinding og þar með rán á dauðafæri. Það er engin spurning í mínum huga að þetta var réttur dómur. Hins vegar sýndist mér boltinn fara í höndina á Delgado í síðasta marki Southampton og það á auðvitað ekki að gerast. Annars var þetta skemmtilegur leikur sem mér fannst þrátt fyrir allt að S'ton ætti skilið að vinna. Liverpool tapaði líka svo mínir menn eru komnir í baráttuna að nýju. Gaman að sjá Everton og Chelsea þarna uppi líka því mér hefur alltaf þótt þetta skemmtileg lið. Það er svolítið patríotískt stolt hjá manni að horfa á Chelsea með víkinginn innanborðs. Everton er líka skemmtilegt sóknarlið með hinn frábæra Wayne Rooney innanborðs sem er auðvitað annað hvort snillingur eða þrítugur loddari eins og hann lítur út fyrir að vera. Þetta stefnir allt í hörkutímabil.
Auk þess legg ég til að Valsbraggin verði lagður í eyði. Áfram KR!!!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli