6. nóv. 2002

Ósáttur
Ég er verulega ósáttur við ákvörðun Önna um að breyta linknum mínum á síðunni sinni úr "afgamall læknanemi" í Gísli Bergmann. Hitt er miklu frumlegra. Hvort munduð þið frekar klikka á linkinn "afgamall læknanemi" eða eitthvað venjulegt nafn sem segir ykkur ekki neitt. Hver er þessi Gísli Bergmann og afhverju ætti ég að lesa bloggið hans. Það hlýtur að vera jafnleiðinlegt og nafnið. Það er oft gaman að lesa það sem gamlir, svo ég tali nú ekki um afgamlir, skrifa. Það er oft svo þröngsýnt og skemmtilegt. Einn ónefndur læknir á efri árum sagði t.d. einu sinni á morgunfundi að hann saknaði þess tíma þegar hann gat bara ákveðið fyrir sjúklingana hvað þeir ættu að gera. Sorglegt. Grunnhugmynd læknisfræði í dag gengur út á að uppfræða sjúklinga svo þeir geti tekið sjálfstæðar ákvarðanir. Það var hlegið að honum greyinu. Ef Önni þráast við að breyta þessu aftur fer ég fram á að ég fái að njóta fulls nafns á blogginu. Ég heiti nefnilega Gísli Björn Bergmann.

Engin ummæli: