Boltinn
Snökt. Mínir menn eru algerlega heillum horfnir. Dómararnir hafa nú séð aumur á grófasta liði heims og eru farnir að reka leikmenn í hinu liðinu út af. Þetta gera þeir til að koma í veg fyrir að Arsenal nái enn einu metinu í úrvalsdeildinni þ.e. flestir tapleikir í röð. Ruud er þó alla vega kominn í gang og er nú búinn að skora í tveimur leikjum í röð. Nú hlýtur Ferguson líka að fara að taka hintinu frá guðunum um að öll þessi meiðsli þýði það að Jesú bróður besta þykir tími til kominn að gefa smellunum frí og táningunum sjens á að spreyta sig. Ég skil ekki hversu ragur hann er - ég meina það eru gríslingar í öllum þessum liðum sem við erum að mæta, síðast í dag voru það Cole, Carrick og Defoe. Það hefði verið heillavænlegast að hann hætti síðasta sumar og hleypti Eriksson í stólinn. Síðan eru komnar upp hugmyndir um að Mark gamli Hughes taki við liðinu að Ferguson gegnum og lýst mér bara þrusuvel á það.
Viðar...
...hefur horfið til fyrri venja og skrifar nú aftur skemmtilegt blogg. Óska ég spúsuföður hans til lukku með öldina hálfu og vona að sú næsta verði verði jafngæfurík.
Kobbi...
...er farinn að áreita mig á öllum tímum sólarhringsins síðustu vikur. Sendir mér sms og fleira með allskyns tvíræðum skilaboðum. Finnst mér þetta alveg sérlega skemmtilegt og hvet Jakob til að halda þessari aðdáunarverðu iðju áfram. Jakob er nefnilega snillingur sem hefur aðeins tvo galla. Hann heldur með Liverpool og talar ekki íslensku en afburðaslök íslenskukunnátta virðist oft fara saman við það að halda með Liverpool (að undanskildum bræðrum mínum og Golla en allir hafa þeir verið heilaþvegnir af slökum íslenskumönnum sem halda með Bítladrengjunum. SMS-in hans Kobba gleðja litla sálartetrið mitt og vildi ég að ég gæti glatt Kobba til baka. Súru brandararnir mínir hafa stundum fallið í kramið hjá Klofberti og mun ég því reyna að halda þessum lið gangandi fyrir aðdáendur hans (Kobba og Viðar).
Súr brandari dagsins
Hver er munurinn á nöfnunum Sturla Þórðarsyni og Sturla Böðvarssyni? Sturla Þ. skrifaði bækur en Sturla B. atkvæðaseðla. Raunar held ég að Sturla núlifandi hafi ekki staðið fyrir þessu svindli. Ef svo væri, væri það í fyrsta sinn sem eitthvað plan gengur upp hjá Sturla greyinu.
Auk þess legg ég til að Anfield verði lagður í eyði. Áfram MUFC!!!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli