13. nóv. 2002

Boltinn
Liverpool er snilldarlegt lið. Þeir eru með besta markvörð í heimi en þegar hann gerir fágæt mistök tapar Liverpool. Þetta hefur orðið til þess að ég hef dregið þá ályktun að gengi Liverpool hefur í gegnum tíðina alltaf verið háð spilamennsku markvarðanna og því álagi hafa margir úrvalsmarkverðir kikknað undan, t.d. David James, Brad Friedel, Sander Westerveld og nú loks Dudek. Liverpool hefur einstakt lag á að eyðileggja markverði. Síðan selja þeir þessa markverði á hálfvirði og þeir eru reistir við af alvöru knattspyrnustjórum. Sjáið bara hvernig James og Friedel eru að spila síðustu misserin. Friedel var einn allra besti markvörðurinn á HM í sumar og hefur spilað frábærlega fyrir Blackburn í vetur. James er búinn að vera mjög góður hjá West Ham og síst hægt að kenna honum um slakt gengi þeirra síðustu vikur. Westerveld var einn besti leikmaður Liverpool í a.m.k. eitt tímabil. Síðan átti hann nokkra afleita leiki og eftir það voru keyptir tveir nýjir til að eyðileggja, Sander saltaður í nokkra mánuði og síðan seldur sem niðurbrotinn maður á hálfvirði. Nú er Dudek að brotna undan álaginu og þá er bara eftir að brjóta niður Kirkland. Liverpool er stærsti framleiðandi niðursoðinna markvarða í heiminum.

Heigðu mitt hjarta við Undað hné
Önundur er að drepast í hnénu.
Í fyrsta lagi: hentu innleggjunum, ef ekki munar meira en 1cm (sumir segja 1,5cm) hafa innlegg ekkert að segja. Með öðrum orðum, þú varst féflettur. Velkominn í klúbbinn.
Í öðru lagi nokkrar spurningar: Er vont að labba upp eða niður stiga? Er vont að beygja um hnéliðinn með snúið um ökklann? Finnst þér verkurinn utan á eða innan í hnénu? Er hnéð bólgið (miðað við hitt)? Hvað varstu að gera þegar þú fannst fyrst fyrir þessu?
Í þriðja lagi: það er erfitt að greina meiðsl á hné í gegnum internetið – maður vill skoða og meiða sjúklingana. Líklegast er þó að þú sért með laskaðan liðþófa eða eitthvað slíkt. Einnig gæti verið um að ræða svokallaða liðmús.
Í fjórða lagi: Bestu bæklunarlæknarnir eru á læknastöðinni í Álftamýri. Man ekki hverjir eru bestir í hnjánum en þeir eru nokkrir. Líklega skiptir það ekki öllu því hver sem er getur greint þetta. Mestu skiptir hver gerir aðgerð ef með þarf. En hafðu engar áhyggjur af prófunum. Þú ert heppinn ef þú færð tíma hjá þeim fyrir próf/jól/áramót.

Prófkjör NV
Eru menn að grínast með þennan farsa á Akranesinu? Það er ekki nema ein lausn á vandanum. Nýtt prófkjör. Menn segja að þá geti menn sem voru ofarlega á listanum dottið niður og það komi ekki bara niður á svindlurunum. Hafa sömu menn ekki velt því fyrir sér að þessir sömu menn gætu hafa grætt á því að svindlað var í prófkjörinu. Í öðru lagi eiga náttúrlega ekkert að vera utankjörfundaratkvæði í prófkjörum. Frekar á að láta kosningarnar standa í 2-3 daga svo sem flestir komist. Ef þú kemst ekki á kjörstað verður bara að hafa það. Í þriðja lagi á bara að láta flokksbundna menn kjósa í slíkum prófkjörum. Ef fólk hefur ekki áhuga á að vera í flokknum á það ekki að fá að hafa eitthvað að segja um uppstillingu listans – ég meina fær sjálfstæðisflokkurinn samtals 6000 atkvæði í NV-kjördæminu í kosningum?

Boltinn frh.
Mínir menn að klára með glans. Newcastle gerði hið ómögulega og komst áfram þrátt fyrir að tapa fyrstu 3 leikjunum. Kalt mat: Newcastle er með betra lið en Liverpool.

Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði. Áfram KR!!!

Engin ummæli: