Jæja!
Það er langt síðan ég hef verið jafnlatur að blogga og síðustu dag. Það helgast af tvennu: leti og vinnu. Er núna að vinna á slysadeildinni og það er frekar lítið að gera - helst að löggan sé að koma með byttur í prufur. Seinna í nótt fara líkamsárásirnar að hellast inn með saumaskapinn og síðan fara bytturnar aftur að sýna sig undir morgunn. Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að græða peninga. Ég missti t.d. af langþráðu ginkvöldi 5. árs læknanema (karlkyns þ.e.a.s.) sem var í gærkvöldi og var víst vel heppnað. Það var soldið að gera í fyrrinótt en þó ekkert hektískt, bara fínt rennsli.
Jólin
Verð að vinna á barnadeild Hringsins um jól og áramót. Er þó ekki klár á hvernig verður um mestu helgidagana. Þetta kom út úr ráðningafundi okkar læknanema sem haldinn var sl. miðvikudagskvöld. Mér til mikillar undrunar var ekki búið að taka þessa stöðu þegar kom að mér að velja og því ákvað ég að drífa mig enda mjög spenntur fyrir barnalækningum eins og allir vita. Maður verður því ekki alveg skítblankur í vor og gæti jafnvel lagt fyrir í íbúð - jibbí.
Boltinn
Arsenal virðist vera komið á beinu brautina aftur og það er vont. Thierry er heitur og gæti bara gert harða atlögu að heiðrinum "næstbesti sóknarmaður heims". Annars er mjög erfitt að bera Ruud og Henry saman því þeir eru svo ólíkir. Ruud er meiri potari og miklu betri í að klára. Hins vegar er Henry maður sem getur unnið leiki ítrekað með einstaklingsframtaki. Auk þess eru sendingarnar hans oft snilldarlegar. Þeir væru snilldarlegt framherjapar. Síðan er það leikurinn á morgunn. Það verður spennandi að sjá hvort MUFC tekst að kveða niður Pool-grýluna og vinna Bítlabörnin. Ég held persónulega að leikurinn fari 4:3 MUFC í vil og Ruud setji 2, Skerið 1 og Carragher 1. Fyrir Poolarana skorar Baros 2 og Owen litli 1. Ég verð nú líklega sofandi eftir vakt en maður reynir kannski að taka leikinn upp.
Almenn þekking
Umtalið síðustu daga hefur á endanum sannfært mig um að fólk er fífl og þá er ég þar meðtalinn. Það virðist sem grunur minn frá því á miðvikudag sé á rökum reystur því allir sem ég hef talað við byggja skoðun sína á því hvað sé almennur fróðleikur, algerlega á eigin vitneskju. Það þýðir t.d. að ef stelpa semdi spurningar fyrir próf í almennri þekkingu yrðu allar spurningarnar um sjónvarpsþætti t.d. Dawson's Creek, Friends, Sex&TheCity, Nágranna, Ally McBeal o.s.frv. Ekki yrði spurt neitt úr sögu, íþróttum, stjórnmálum eða neinu slíku nema ef ske kynni að fengin yrðu einhver stórskrýtin stelpa í þetta. (Smá karlremba sakar engan:))
Auk þess legg ég til að Anfield verði lagður í eyði!!! Áfram United.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli