5. nóv. 2002

Strákarnir okkar...
...fengu háðuglega (st)útreið á heimsbikarmótinu í handknattleik sem lauk um helgina. Hlaðborðið var ekki í stuði fremur en venjulega og því fór sem fór. Guðmundur varði samtals hálft skot alla keppnina en samt var ekki ákveðið að henda honum úr liðinu fyrr en mörkin voru minnkuð fyrir íslenska liðið. Þetta var vegna þess að Íslendingar voru "súkkúlaði" í seinni hluta mótsins. Þetta varð hins vegar til þess að stjarna íslenska liðsins, Guðmundur Hlaðborð Hrafnkelsson, komst ekki lengur fyrir í markinu og varð því að bregða á það ráð að velja litlu strákana í staðinn. Samt unnum við bara einn leik - á móti Júgóslövum en þeir gátu aðeins teflt fram þremur leikmönnum vegna mikilla leikbanna í herbúðum sínum. Því fengu "Strákarnir okkar" smá "breik" og mörðu sigur. Þið voruð samt gernaðir drengir!!!

Sverrir...
...hefur vogað sér að kalla mig Sjálfstæðismann á blogginu sínu. Þvílík móðgun. Þetta jafngildir því skv. nýrri orðabók Marðar Komma Árnasonar að ég sé Framsóknarmaður. Allir sem nokkurn tíma hafa rætt við mig um pólítík, vita að ég er ekki mjög hrifinn af Sjálfstæðisflokknum sem slíkum heldur hef ég neyðst til að kjósa hann þar sem hann er eini stjórnmálaflokkurinn sem nálgast miðbaug stjórnmálanna vinstra megin frá. Þetta mundi samrýmast því að ég kallaði Sverri Sjálfstæðismann því líklega eru grunnhugmyndir okkar Sverris jafnnálægt stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins - bara úr sitthvorri áttinni - hans frá vinstri en mínar frá hægri. Því er Sverri boðið að snæða þann útfrosna saur sem Sjonni afþakkaði nýlega með því að setja undurfagra mynd af mér á Hver er...?-síðuna sína

Súr brandari dagsins
Sorrý tryggu aðdáendur. Sýrustigið féll í morgunn eftir mjög basískan morgunverð og því verður súr brandari dagsins að bíða eitthvað. Vonast til að redda þessu fyrir miðnætti.

Boltinn
Ég er orðinn of gamall fyrir þetta. Hnéð á mér er í hönk og hefur verið það í 10 daga, ég er að drepast úr beinhimnubólgu í báðum sköflungum og ökklarnir á mér eru að gefa sig. Kannski maður fari að kaupa sér golfsett Golli?

Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði. Áfram KR!!!

3. nóv. 2002

Boltinn
Forlan er greinilega kominn í gang. Þetta mark hans á laugardaginn var algjör snilld. Loksins þegar hann skorar þá er þetta hvert snilldarmarkið á fætur öðru. Hann notar vonandi markabónusinn sinn til að splæsa á sig klippingu. Því miður fékk Arsenal gefins sigur á Craven Cottage gegn Fulham og skrípildýrið hann Owen virðist vera kominn í gang greyið en eins og allir vita þýðir það að hann meiðist innan hálfs mánaðar. Þeir eru tómir aumingjar þessir Poolarar og maður verður að efast um hæfileika sjúkraþjálfaranna þeirra. Menn eins og Redknapp og McManaman hafa varla meiðst eftir að þeir fóru þaðan en voru alltaf að meiðast hjá Liverpool. Sama má segja um Heskey sem var næstum aldrei meiddur hjá Leicester en nú er hann í sífelldum meiðslum. Þetta er náttúrlega bara væl. Mínir menn eru samt komnir á beinu brautina og vonandi geta þeir sýnt hvað í þeim býr á næstu vikum.

Helgin...
...var róleg. Á föstudag fór ég í innflutningspartý hjá Örvari, stoppaði stutt og fór svo heim og spilaði Trivial við litlu systur hennar Eddu og kærastann hennar. Vann þau naumt -maður er farinn að eldast. Síðan svaf ég í litla 13 tíma - það var ljúft. Svo var ferðinni heitið á Rannsóknarráðstefnu læknanema þar sem ég var bæði með erindi og veggspjald. Fékk að launum nokkuð góða rauðvínsflösku. Eftir 2 bjóra og nokkrar snyttur fór ég með konunni í bíó með viðkomu á einum af fínasta matsölustað landsins - McDonald's þar sem ég sporðrenndi Big Mac stjörnumáltíð á mettíma. Myndin var "Sweet Home Alabama" en hana fílar maður ef maður er stelpa á aldrinum 15-85. Hún átti reyndar ágæta spretti inn á milli og sá ég merkilega lítið eftir 800 kallinum (þ.e. ekkert mikið meira en venjulega þegar ég fer í bíó). Síðan var farið heim og mér stillt upp til að horfa á þá smánarlega kvikmynd "Dirty Dancing" sem ku vera í uppáhaldi hjá fyrrgreindum aldurshópi kvenna. Ekki þótti mér mikið til koma en þó var hægt að hlæja að aumkunnarverðum leikhæfileikum Patreks Svæsna. Hún fær því 1/5* fyrir skemmtanagildi. Sweet Home Alabama fær 3/5*. Í dag sá ég síðan stórræmuna Spiderman með Tobey litla Maguire. Nokkuð góð afþreying og greinilega óhugguleg því ungur frændi Eddu Guðrúnar horfði að mestu á hana undan þykku fleese-teppi. Hún fær líka 3/5*

Beckham-hjónunum...
...var brugðið um helgina eftir að glæpaklíka sem hugðist ræna Victoriu var upprætt. Victoriu var brugðið vegna þess að hún vill ekki láta ræna sér en David vegna þess að hann á Evrópuleik á miðvikudag og hann mundi ekki vita hvaða nærbuxum hann mætti spila í. Ég held að þessi falli undir flokkinn súr brandari dagsins - er það ekki annars?

Súr brandari dagsins
Hver er munurinn á Davíð Oddssyni og Ingibjörgu Sólrúnu? Davíð er með hár. HAHAHAHAHAHAHAHAHAHA :)

Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði. Áfram KR!!!

1. nóv. 2002

Jæja!
Maður tók heilsusamlega ákvörðun í dag og fór í skvass í stað vísindaferðar í Sjóvá-Almennar. Skvass er rosalega skemmtilegur leikur – þetta er svona tennis í pínulitlu herbergi með grautlinum bolta sem skoppar eiginlega ekki neitt. Þetta var í fyrsta skipti sem ég prófaði þennan stórskemmtilega leik en örugglega ekki í það síðasta. Mest gaman er þegar maður nær að negla í vegginn og svo í mótherjann, það er fyndið. Mér tókst reyndar að negla einu sinni beint í hann en þá kom í ljós að það er bannað. Fáránlegt!!!

Innflutningspartý hjá Örvari bráðumpabba
Örvar og Díana voru að fá sér íbúð í Bólstaðarhlíðinni nr. 3 og það er innflutningspartý í kvöld. Til hamingju með íbúðina Örvar.

Súr brandari dagsins…
…er pæling. Ef þú ert karlmaður fæddur á tímabilinu frá 20. mars til 20. apríl hvort ertu þá með venjulegan pung eða hrútspung?

Boltinn
Það er lítið að frétta úr boltanum í dag en ég gleymdi víst að fagna því að Bayern Munchen datt út úr Meistaradeildinni og raunar öllum Evrópukeppnum þetta árið. Gott á þá, haha!! :)

Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði. Áfram KR!!!
Stöðuhækkanir og - lækkanir
Nokkrir væsklar hafa misst linkanna sína hér til hliðar og hafa Önni og Inga Huld fengið plássin þeirra. Djöfull er erfitt að vera lélegur á tölvur og geta ekki haft fullt af linkum.

31. okt. 2002

Gleymdi svolitlu dissi!
Sjonni fær eitt diss fyrir að vera búinn að setja köttinn sinn inn á hver er...? en ekki mig. Takk Sjonni, vissi alltaf að þú elskaðir mig. Auk þess fær Viðrína eitt diss fyrir að hafa mig enn kvenkenndan á linkalistanum sínum. Étið útfrosin skít drengir. Það er góður skítur.
Rússar...
...eru hernaðarlegir snillingar. Best að frelsa nokkur hundruð gísla en drepa 60x fleiri en gíslatökumennirnir gerðu, í leiðinni. Við skulum líka passa upp á að láta læknana, sem eiga að bjarga afgangnum af gíslunum eftir að við eitrum fyrir þeim, ekki vita hvaða efni við notum svo þeir verði örugglega nokkrar mínútur að finna ráð við frábæra eitrinu okkar. Rússar hugsa alveg ótrúlega órökrétt. Ekki nóg með að þeir dræpu gíslatökumennina með eitrinu heldur skutu þeir þá líka. Til hvers? Menn segja að það hafi verið vegna þess að þeir gætu vaknað og sprengt sprengjurnar sem þeir voru búnir að tengja um allt leikhúsið. Fair enough en afhverju þá ekki bara að skjóta þá með einhverjum deyfingarpílum eins og eru notaðar við að svæfa fíla eða eitthvað. Mér finnst þessi aðgerð algerlega misheppnuð. Það er nú oft sagt að það sé viðunandi að 20% gísla deyji þegar mannræningjar eru yfirbugaðir. Það er hins vegar átt við að gíslatökumenn megi drepa um 20% áður en aðgerðin telst misheppnuð en í þetta skipti drápu þeir aðeins 2 gísla. Afganginn drap rússneski herinn. Þeir eru grey dagsins og raunar allrar vikunnar.

Stoke er djók
George Burley var í dag að dissa Stoke í tætlur. Hætti við að verða manager því hann vildi ekki binda sig svona skítaliði mjög lengi. Vildi bara vera stutt. George er því húmoristi dagsins í boði Ljós-Gíslans.

Súrt djók dagsins
Hvað kallar maður 10 frjálsar en skipulagslausar, rauðar og grátandi hænur ásamt einni í búri? Liverpool

Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmum
Það segir einhvers staðar að misjafn sauður sé í mörgu fé. Það liggur því í orðanna hljóðan að það hljóta að vera misjafnir sauðir í Sjálfstæðisflokknum hans Davíðs. Flestir þessara sauða falla í hóp þeirra gríðarlega mörgu Framsóknarmanna sem halda að þeir séu Sjálfstæðismenn. Síðan eru auðvitað hinir sem halda að það sé rosalega "hægri" að vera í Sjálfstæðisflokknum. Einstaka menn standa þó upp úr hópnum eins og toppurinn á ísjaka. Einn þessara manna er Birgir Ármannsson. Það er alveg ótrúlega gaman að hlusta á hann þegar hann kemur fram í umræðum í sjónvarpssal. Fáir eru rökfastari, betur máli farnir eða betur að sér. Síðan eru svona gasprarar eins og hann Gunnlaugur Þór sem sífellt klagar í stað þess að hjóla bara í liðið með málefnalegum umræðum og mælsku. Hann var reyndar ágætur þar sem ég sá hann síðast (man ekki hvar en það var líklega hjá Agli Helga). Síðan eru þarna litlir stuttbuxnastrákar úr SUS sem ekki er enn vaxnir upp úr öfgasinnaðri hægristefnu SUSara. (og tel ég mig nú vera mikinn hægrimann). Sigurður Kári virðist raunar vera að ná svolitlum pólítískum þroska og hefur komið ágætlega út síðastliðnar vikur. Það var líka massa fyndið þegar hann var hjá Völu Matt í Saumað/sagað um helgina. Vala spurði Sigga hvort einhver grænn litur í einhverjum gardínum væri kominn frá honum. Hann neitaði alveg fáránlega ákaft - náði engan veginn djókinu. Stundum er bara gott að þegja og brosa þegar gert er grín að manni. Ég vona satt að segja að Solla gullrass (klósettsetan smitaði) og Gunnlaugur Þór komist ekki að. Aðra er mér nokkuð sama um. Ljóst er að enginn fer í Davíð í fyrsta sætið. Geir og Björn verða í 2. og 3. og svo verður held ég eitthvað sögulegt neðan við það. Það kæmi mér ekki á óvart ef ungu mennirnir kæmust ofarlega á listann. Veit samt ekki hvort ég kýs þessa aumingja ef ég sé fram á að þeir ætla að halda áfram með Dóra stóra og hinum hálfvitunum í Framsóknarflokknum.

Annar súr
Ætli allir sóknarmennirnir í Framliðinu séu í Framsóknarflokknum? Nei, ætli þeir séu ekki kommar eins og Stefán Páls sem er algeðveikasti knattspyrnuáhugamaður landsins. Heldur með Luton Town og Fram - sorglegt en samt soldið kúl.

Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði. Áfram KR!!

29. okt. 2002

Háskóladeildinn
Það var auðvitað blizzað yfir Orator með 1 marki gegn engu. Orator fengu reyndar vafasamt víti undir lokin en markvörðurinn varði það eins og að drekka vatn. Hann drakk raunar vatn á meðan!! :) Markið skoraði Viktor, en hann er einn af riddurum Ástarinnar, eftir aukaspyrnu frá Ljós-Gíslanum. Glæsilegt mark og það þýðir að við erum nokkuð öruggir í úrslitakeppni Háskóladeildarinnar.
Þetta var skrifað kl. 19:00 þann 29.10.'02
Skoðanakönnun Samfylkingarinnar og grey dagsins
Sá Stefán Jón Hafstein gera hið ómögulega á sunnudagskvöldið í Kastljósinu. Honum tókst að lækka enn frekar í áliti hjá mér. Hann taldi rétt að skoða inngöngu í Evrópusambandið nákvæmlega en vildi ekki taka afdráttarlausa afstöðu til umsóknar um inngöngu. Hvernig er hægt að vera svo ömurlegur stjórnmálamaður að þú þarft leyfi kjósenda þinna til að íhuga eitthvað. Heldur maðurinn að það hafi enginn íhugað aðild að Evrópusambandinu? Ætli hann trúi því ekki að það sé allt Samfylkingunni að þakka að landsmenn heyrðu yfirleitt af því að það er til eitthvað sem heitir Evrópusamband. Auðvitað eru allir flokkar löngu búnir að skoða hvort þeim finnst inngangan raunhæfur möguleiki (nema kannski Samfylkingin) og taka afstöðu á þeim grundvelli. Það ömurlega var samt að sjá þennan mann uppstrílaðan í nýjum jakkafötum. Maður sem hefur skapað sér ímynd í gegnum árin, með því að klæðast eins og hann sé á leið á réttaball í skítugu fjárhúsi, hlýtur bara að líta kjánalega út í nýtísku jakkafötum. Stefán fær því viðurnefnið grey dagsins.

Súrt grín úr smiðju Geislans
Hafið þið heyrt um konuna sem var svo feit að á nóttunni bjuggu leðurblökur í leggöngunum á henni.
Þetta ætla ég að reyna að hafa fastan lið í blogginu mínu. Þeir sem þekkja mig vita að djókið verður ekki mikið súrara en það sem kemur frá mér.

Háskóladeildin
Við læknanemar mætum í kvöld hrokatittunum úr lögfræðinni í Háskóladeildinni. Þetta verður klárað eins og twix-súkkúlaði í frímínútum. Spái stórsigri læknadeildar.
Helgi Áss er reyndar venjulega í markinu hjá þeim en það er bein útsending frá skólaskákmóti Vogaskóla í sjónvarpinu í kvöld svo ég held að hann mæti ekki. Spennandi mót!!!!! Ég hef nú verið lunkinn við að setja hann hjá þeim í gegnum tíðina og við vonum auðvitað að það verði ekki breyting á.

MUFC
Mínir menn mæta Maccabi Haifa á Kýpur og ætla greinilega að gera riðilinn spennandi með því að nota varaliðið og tapa leiknum. Fylgist með þessu af fæðingarvakt sem stendur til kl. 21. Síðan fer maður beint í leikinn við Orator.

Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði. Áfram KR!!

27. okt. 2002

Snillingar
Ég þekki nokkra sem voru að útskrifast úr HÍ í gær. Fyrstan ber að nefna ofursnillinginn Ingvar Jón sem margir þekkja undir nafninu Örgjörvinn. Þessi vingjarnlegi drengur hefur nú náð fyrsta áfanganum af mörgum í því ætlunarverki sínu að gerast geðveikur efnafræðiprófessor. Ingvar var sem sé að klára BS-gráðu í efnafræði og hefur þegar hafið Meistaranám í efnafræði. Ingvar hélt alveg hreint prýðilegt útskirftarpartý í Króatíu (það er íbúðin hans fyrir fákunnuga) þar sem hann veitti vel af öli, gini og allskyns misþyrmdum kartöflum. Kann ég Ingvari bestu þakkir fyrir mig og Ljós-Gíslinn óskar honum til hamingju með áfangann.
Annan skal telja Jón Þór Sigurvinsson sem er mörgum kunnugur sem gítarleikarinn í útílegum Húsafellsfara. Jón var að ég held að ljúka námi í verkfræði með einhverju tölvunarfræðilegu ívafi. Hélt hann mikla teiti á Spiffanum (Sportkaffi fyrir fáfróða) sem stóð enn þegar við komum á staðinn um 2-leytið. Hann fær eina hamingjuósk.
Sá þriðji er næstkjaftforasti framherji landsins, Jón Ingi Árnason. Látum liggja á milli hluta hver er sá kjaftforasti. Hann var að ljúka við viðskiptafræðina. Hann fær líka eina hamingjuósk.

Háskóladeildin
Áttum 6. leikinn okkar í háskóladeildinni í gær og mættum aumingjagreyjunum í viðskiptafræðinni. Leiknum lauk með jafntefli 2-2 en okkur tókst að jafna á síðustu andartökum leiksins. Það var Snorri á þriðja ári sem skoraði bæði mörk okkar með tveimur hnitmiðuðum skotum. Viðskiptafræðinemar gerðu mikið úr þeim tíma sem var bætt við en þeir geta sjálfum sér um kennt því markvörðurinn þeirra var svo duglegur að tefja og því þurfti að bæta við nokkrum mínútum. Maggi vældi náttúrlega eins og aumingi allan leikinn og hélt síðan áfram í gærkvöldi í Króatíu. Viðskiptafræðin getur hins vegar þakkað góðum framherjum fyrir stigin sín því þeir áttu þrjú skot í öllum leiknum sem hittu rammann og skoruðu tvö mörk. Þeir hafa líklega verið með boltann svona 35-40% af tímanum og í seinni hálfleik í mesta lagi 30%. Þeir pökkuðu bara í vörn eins og aumingjar og það var því gaman að hirða af þeim 2 stig í lokin.

Enska
Mínir menn að kúka á sig í síðustu leikjum en það er í lagi því Arsenal hefur ákveðið að eigna sér öll met í deildinni og ætlar nú að bæta metið í flestum leikjum töpuðum í röð. Þeir eiga enn sjens á því að falla þannig að það verður gaman að sjá hvernig þeim gengur. Af Liverpool hef ég ekki miklar áhyggjur því þeir eru einfaldlega búnir að vera í auðveldari leikjum. Erfiðustu leikirnir þeirra hafa verið heimaleikir en hin liðin á toppnum hafa verið að spila erfiðari leikina á útivöllum.

Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði. Áfram KR!!

25. okt. 2002

Jæja!
Þá hef ég lokið veru minni á Akureyri sem var skemmtileg framar vonum. Reynsla flestra bekkjarfélaga minna af heilsugæslu er slæm en okkur Jónasi fannst mjög gaman á Akureyri. Kunnum við læknunum þar bestu þakkir fyrir frábærar móttökur og þá sérstaklega fyrir að reka okkur heim einum degi á undan áætlun.

Skólinn
Byrja í kloflæknakúrsinum á mánudag. Það er því best að forðast kvennadeildina næstu 6 vikurnar stelpur mínar - annars mætið þið kannski kunnuglegu andliti.

Sverrir Gúmm...
...er að storka mér. Ég er sannfærður um það. Alveg síðan ég lýsti vanþóknun minni á linkablogginu svokallaða hefur hann haft a.m.k. einn link í hverri setningu sem hann skrifar. Ef Sverrir væri vel upp alinn mundi hann vita að það er ljótt að storka sér eldri mönnum. Þessi ókurteisi Sverris helgast líklega af því að hann gekk sjálfala nokkur ár í kringum tvítugt og því mætti ætla að mannasiðir hans hafi hlotið talsverðan skaða af. Skammastu þín Sverrir, skrifaðu frekar eitthvað fallegt um stjörnurnar, blómin og landafræðina án linka.

Boltinn
Mínir menn að gera góða hluti í gær. Þessi mörk voru glæsileg og loksins virðist MUFC-maskínan vera að hrökkva í gang. Veron er að skila sínu glæsilega á miðjunni og ég skil bara ekkert í því að menn séu óánægðir með frammistöðu hans. Hann er að skila frábæru varnarhlutverki og síðan koma þessar gullsendingar hans inn á milli. Mínir menn komnir áfram og hafa ekki tapað stigi. Glæsilegur árangur. Það var ekki síður skemmtilegt að sjá Bayern tapa í Mílanó í gær. Þeir eru líklega dottnir úr Meistaradeildinni og það er ekki einu sinni víst að þeir komist í UEFA-keppnina.

Háskóladeildin
Ég held að ég sé óhappa fyrir læknadeild í háskóladeildinni. Við erum búnir að vinna tvo og tapa tveimur og hef aðeins komist í tapleikina - vísbending? Ég held það. Annars var þetta ótrúlega slakt hjá okkur í kvöld, ég átti hundlélegan leik og það sama má segja um félaga mína í læknaliðinu. Við töpuðum 2-0 fyrir sterku liði HR en á góðum degi hefðum við rúllað yfir þetta lið. Næsti leikur er við Viðskiptafræðinga og eftir því sem ég kemst næst útskrifast helmingur liðsins kl. 14 á laugardag og er því ekki gjaldgengur í leikinn sem er kl. 18:00 Það er því nokkuð ljóst að við munum sýna þeim hvar Davíð keypti ölið hér um árið.

Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði. Áfram KR!!

19. okt. 2002

Loksins, loksins!!!
Nú er ég loksins orðinn nettengdur aftur heima hjá mér. Hef ekki haft nettengingu í baðstofunni síðan um sláttarbyrjun.

Akureyri...
...er skolli skemmtilegt byggðarlag. Hef dvalið þar við nám síðastliðna viku og líkar ágætlega. Við erum s.s. á kúrs í heimilislæknisfræði á heilsugæslustöðinni á Akureyri og líkar bara nokkuð vel. Þarna ræður ríkjum Pétur nokkur Pétursson og mun hann vera litli bróðir Páls á Höllustöðum. Pétur er ákaflega skemmtilegur maður, hagyrtur og sniðugur, auk þess sem hann er mjög blátt áfram. Hann tjáði okkur Jónasi (bekkjarfélaga mínum sem er með mér þarna f. norðan) að skírlífi væri alls ekki skilyrði á kúrsus og því vildi hann vera viss um að hann væri ekki að gera okkur óleik með því að setja okkur saman í herbergi. Þess má geta að við Jónas erum báðir fráteknir.

Herbergið...
...sem við Jónas deilum á Akureyri er ekki víðlent en þó nógu stórt fyrir okkur Jónas. Þarna er sjónvarp og gott baðherbergi. Baðherbergið er reyndar þeim galla haldið að kranarnir á vaskinum hafa víxlast. Þetta veldur því að þegar við Jónas förum á fætur hálfmeðvitundarlausir í morgunsárið þá hefur það viljað brenna við að við þvoum okkur úr köldu vatni en burstum skoltinn með heitu. Þetta eru ekki góð skipti.

Heilsugæslan
Við Jónas höfum, ólíkt flestum bekkjarfélögum okkar, skemmt okkur sérlega vel á heilsugæslunni. Það er ekki síst að þakka góðu skipulagi og skemmtilegum læknum á Akureyri. Ég fór t.d. til Grenivíkur í gær en þangað hafði ég aldrei komið áður. Það er alltaf gaman að koma á staði sem maður hefur ekki séð áður.

Boltinn
Grey skinnin hans Atla stóðu loks fyrir sínu á miðvikudaginn og lögðu afspyrnuslakt lið Litháa í skemmtilegum leik. Eiður sýndi loks hvað í honum býr, með landsliðinu og vonandi er hann búinn að finna taktinn. Ég held nú samt að það sé farið að minnka sandurinn í tímaglasinu hans Atla. Hann er búinn að gera fína hluti með þetta lið en menn geta staðnað í þessu og ég vona að hann fari út í þjálfun félagsliða aftur fljótlega. Þá mundi ég vilja fá Teit Þórðarson heim í nokkur ár og síðan gæti Willum Þór tekið við og gert okkur að heimsmeisturum árið 2030.
Greyið með taglið gerði víst frábæra hluti í leik Englendinga á miðvikudaginn. Því miður gat ég ekki notið þessarar yndislegu stundar en eins og flestir vita hef ég mikla óbeit á Dabba Sjóara - hann er kominn fram yfir síðasta söludag og löngu orðinn súr.

Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði. Áfram KR!!

15. okt. 2002

Akureyri!!
Er á Akureyri að læra að lækna fólk. Mun því blogga lítið næstu tvær vikurnar. Reyni samt fyrir mína dyggu lesendur.

11. okt. 2002

Tvær frábærar greinar
Þrátt fyrir diss mitt í garð linkabloggs í gær ætla ég að benda ykkur á tvær góðar greinar. Sú fyrri er eftir hinn bráðsnjalla og skemmtilega Hjölla Páls sem skrifar eiturbeitta grein gegn misbeitingu atkvæða á Frelsinu í dag. Hjörleifur er eins og bræður hans með munninn fyrir neðan nefið en þó fer enn meira fyrir ótrúlegri ritsnilli sem maður hefur oft séð hjá Viðari bróður hans. Hin greinin birtist á netmiðlinum Soccernet í dag og fjallar um þetta eilífa karp um hver eigi að fylgja Owen í fremstu víglínu. Læt ykkur eftir að lesa greinina - hún segir nákvæmlega það sem mér finnst.

Um kjördæmapólítíkina
Ég er, eins og Hjölli, afar ósáttur við atkvæðisbrotið sem ég fæ að ráðstafa reglulega. Ég get alveg skilið að landsbyggðarfólk sé svekkt yfir því að sitja eftir með sárt ennið í einhverri mannlausri vík fyrir vestan, þegar allir sem vit höfðu eru löngu búnir að forða sér á mölina, þrátt fyrir atkvæðaleysið. Pólítíkusar segja allir að það sé mjög mikilvægt að byggð haldist dreifð á landinu. Menn eiga helst að búa á öllum útkjálkum, þarf minnst einn vinstrisinnaðan vitavörð á hvern skaga, minnst eitt frystihús í hvern fjörð, minnst einn þingmann á pláss. Menn ganga jafnvel svo langt að heimta að ríkisstofnanir séu fluttar í byggðarlagið þeirra til að einhver passi mannlausu húsin þegar allir aðrir eru fluttir þaðan. Síðan eiga deyjandi bæjarfélög að fá styrk frá ríkinu til að byggja upp ferðamannaiðnað. Hvaða útlendingur haldið þið að komi hingað til að skoða gömul frystihús? Það á bara að smala þessum sauðum á fáa staði á landinu: Ísafjörð, Akureyri, Egilstaði, Suðurnesin og síðan Reykjavíkursvæðið (og kannski Selfoss svo við getum haft Skímó-safn þar þegar þeir slá í gegn). Nú veit ég að Hrefna gleypir skeiðina sína. Bottom-lænið er það að það á ekki að styrkja byggð á stöðum þar sem peningurinn skilar sér ekki til baka í ríkiskassann. Það á ekki að byggja jarðgöng svo fólk á Ólafsfirði geti lesið Moggann á hverjum degi - til þess er internetið.

Um umhverfisvernd og svokallaða umhverfisverndarsinna
Æ, greyin. Ég ferðaðist aðeins um Austur- og Norðausturland í ágúst og skoðaði marga fallega staði. Þarna er náttúruvernd búinn að ata fegurð landsins með alllskyns pöllum og plönkum úr rússnesku timbri (þeir fá hann ódýrt í gegnum VG). Ég kom t.d. á þann forkunnarfagra stað Ásbyrgi. Ég kom þarna síðast þegar ég var 13 ára og fannst alveg rosalega fallegt. Ég hlakkaði því til að koma þangað aftur en varð fyrir miklum vonbrigðum. Vissulega er staðurinn fallegur en nú er búið að byggja einhvern forljótan pall yfir hálfa tjörnina. Þetta er nú það sem nútíma náttúruvernd snýst um. Það má ekki virkja neðanjarðar og búa til vötn en það má byggja forljóta viðarkumbalda og allskyns palla og drasl fyrir þjófótta þýska túrista. Það má heldur ekki sökkva einhverjum mýrarflákum sem enginn hefur séð nema fuglinn fljúgandi, allra síst 101-umhverfisverndarsinnarnir. Auk þess kveikir fólk ekki á þeim gífurlegu möguleikum sem svona lón geta haft fyrir dýralíf. Mér er til dæmis sagt að Sultartangalón sé einn vinsælasti náttstaður grágæsa þegar þær koma niður af hálendinu á haustin. Auk þess sagði mér fróður maður að lónið norðan Vatnajökuls myndi ná upp að jökulröndinni og menn þekkja nú hvaða aðdráttarafl Jökulsárlón hefur fyrir ferðamenn. Það eru því mun meiri möguleikar fyrir ferðamannaiðnað en menn gera sér grein fyrir þarna í kringum virkjanir við norðanverðan Vatnajökul. Staðreyndin er nefnilega sú að það er nóg náttúrufegurð að skoða fyrir ferðamenn þrátt fyrir að það sökkvi eitthvað af mýrum norðan Vatnajökuls. Hins vegar held ég að það megi gera mun betur í allskyns ævintýraferðum fyrir áhugamenn um jaðaríþróttir og veiðar svo dæmi séu tekin.

Boltinn
Ísland-Skotland á morgunn verður örugglega baráttuleikur. Íslendingarnir taka þetta á endanum 3-1 með mörkum frá Eiði og Heiðari Helgusyni (2).

Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði. Áfram KR!!

10. okt. 2002

Hnignun blogga!
Mér finnst margir bloggarar vera farnir að byggja blogg sitt fyrst og fremst á því sem þeir finna á bloggum annarra. Þessa gryfju hefur til dæmis góðkunningi minn Sverrir fallið í síðustu vikurnar og hefur því miður ekki komið mikið af hans annars smellnu hugarórum á netið. Kannski er Sverrir kominn með sviðsskrekk eftir að margir félagar hans hafa verið kallaðir á aldir ljósvakana til að ræða um þessi mál. Sá umræðuna í Kastljósinu í gær og fannst hún með eindæmum leiðinleg. Það eina sem hélt mér við efnið voru skemmtileg komment Stefáns inn á milli hávísindalegra sálgreininga konunnar sem þarna var. Mér finnst sumt ekki eiga heima í góðum fréttaskýringaþáttum eins og Kastljósinu. Þar vil ég sjá áhugavert fólk sem hefur eitthvað merkilegt að segja um þjóðfélagið. Ekki svo að skilja að Stefán og konan séu ekki áhugverð - þau voru bara að tala um áhugavert efni á óáhugaverðan hátt. Blogg er í mínum huga eitthvað sem ég geri til að skemmta mínum vinum og kunningjum og ætlast ekki til að aðrir séu að hnýsast hér... fariði ef þið þekkið mig ekki...eruð þið ekki farin enn? Drulliði ykkur í burtu!!! #$%&#W#/&$%&$/

Háskóladeildin
Læknanemar hófu titilvörn sína í Háskóladeildinni á fremur bleyðukenndan hátt í gærkvöldi. Aðeins mættu 10 menn til leiks í upphafi og öttu aðrir menn kappi í lélegum afsökunum fyrir mætingarskorti sínum. Sumir eru að fara í stöðupróf í lífefnafræði...í næstu viku. Aðrir þóttust hafa verið í fótbolta fyrr um kvöldið. Enn aðrir þóttust þurfa að vinna. Það fór því sem fór og læknadeild tapaði 0-2 fyrir raunvísindadeild. Þessi úrslit gefa ekki rétta mynd af gangi leiksins því raunvísindamenn áttu lítið annað en skyndisóknir eftir að við náðum 11 manna liði um miðjan fyrri hálfleik. Við náðum þó ekki að snúa mikilli boltavörslu (e. possession) í marktækifæri enda spilaði vörn raunvísindamanna eftir afar vel útfærðri stærðfræðiformúlu sem okkur tókst ekki að finna lækningu við. Einskorðuðust færi okkar að mestu við fyrirgjafir og föst leikatriði en þar sem raunvísindamenn virðast stærri en læknanemar fór sem fór. Mæli samt með því að sumir í liðinu fari í heilaígræðslu. Einn þeirra fór upp í skallaeinvígi við mig og tapaði aumlega. Tók hann þá á það ráð að sparka í kálfann á mér og þegar ég spurði hverju sætti sagði hann með sætan simpansasvip (alls ekki ósvipaður Árna Johnsen svipnum): "þú hoppaðir á mig, hálfvitinn þinn"!! Ég hváði og fór að hlæja en hann gekk í burtu með tárin í augunum. Annars var leikurinn prúðmannlega leikinn og lítið um ljótar tæklingar. Dómari leiksins virtist ekki vera með reglurnar á hreinu en það kom ekki að sök enda menn prúðir eins og áður sagði. Vona að það verði góður dómari þegar við spilum á móti Orator. Lögfræðingar verða alveg snarvitlausir ef ekki er dómari á staðnum. Þá á ég bæði við dómsalinn og fótboltavöllinn. Skemmst er að minnast þess þegar ónefndur lögfræðinemi kallaði mig fávita frá hliðarlínunni eftir að ég fiskaði aukaspyrnuna. Þetta var nú allt í góðu mín vegna en dómarinn misskildi þetta víst eitthvað og hélt að umræddur laganemi væri að tala við sig. Laganeminn fékk því umsvifalaust rautt spjald og var rekinn inn í bíl. Ekki skánaði munnsöfnuðurinn við þetta og hefði sígildur sjóari verið stoltur af honum. Annars var ljúft að leggja Orator í HM2002 um daginn.

Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði. Áfram KR!!

9. okt. 2002

Einn skemmtilegasti bloggarinn...
...er vafalaust Önundur "litli" bróðir hans Þorgeirs. Önundur er alls ekki lítill drengur en það er tvennt sem gerir hann að litla bróður hans Þorgeirs: mittismál og aldur. Af blogginu má hins vegar ráða að Önundur stendur í stórræðum við að skemma annan þessara ráðandi þátta. Annars er það með ólíkindum hvað ég get hlegið að vitleysunni í honum Önna litla. Maður á auðvitað ekkert að vera að hlæja að þessum gríslingum, það æsir bara upp í þeim egóið.

Hnignun sjónvarps
Sá einn þátt af því brjóstumkennanlega sjónvarpsefni "Bachelor" í gær. Á dauða mínum átti ég von en ekki að til væru 25 heilalausar konur í veröldinni. Það kom mér þó ekki á óvart að úr því þær voru til þá skyldu þær allar koma frá Bandaríkjunum. Annars minnir þetta mig á gamla goðsögn úr læknadeild sem segir að eitt sinn hafi ung og saklaus stúlka spurt prófessorinn í líffærafræði sem heitir Hannes Blöndal og er oft hnyttinn í tilsvörum. Þessi ólánsama stúlka spurði prófessorinn s.s. að því hvort það væri möguleiki að börn lifðu án heila. Hannes svaraði að bragði: "Ég hélt ekki, en nú er ég ekki viss"

Boltinn
Gleymdi aðalmanninum í gær. Jón Ó Ský (John O'Shea) var langbesti maður minna manna á mánudaginn. Hann er u.þ.b. að verða uppáhaldsleikmaðurinn minn. Hef alltaf verið svolítið veikur fyrir home-grown-talent en Skerið er og verður samt alltaf minn uppáhaldsleikmaður ásamt Kónginum Eiríki.

Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði. Áfram KR!!

8. okt. 2002

Langt síðan síðast!!
Hef ekki bloggað síðan í gamla daga. Einföld ástæða. Tölvuskortur er meginástæðan en óheppni og aumingjaskapur koma þarna við sögu einnig. Bið dygga lesendur afsökunar!!

Viðar...
...viðurkennir fyrir allra augum að hann beitir IH heimilisofbeldi. Þetta kemur fyrst og fremst fram á andlegu ofbeldi sem lýsir sér í því að hann neyðir hana til að horfa með sér á óperur læf. Ekki nóg með þetta heldur dregur hann hana með sér í einhvern grúppíuleiðangur til að láta feita óperusöngvara skrifa nafnið sitt á blað. Líkamlega ofbeldið er síðan bein afleiðing af hinu andlega ofbeldi en það lýsir sér fyrst og fremst í blöðrum á fótum Ingu Huldar. Leitaðu þér meðferðar Viðar, nú hefur þú farið yfir strikið. "You're entering the world of pain, my friend"

Kvikmyndir
Horfði á stórvirkið "The Big Lebowski" aftur um helgina eins og ráða má af síðustu setningunni hér að ofan. Þessi mynd er náttúrlega bara snilld. "But that's just like...my opinion man."

Boltinn
Mínir menn að gera góða hluti í gær. Var orðinn mjög svekktur á heppni Everton manna þegar rauðkollurinn ógurlegi skoraði í gær. Síðan var auðvitað bara eftir að flaka liðið þegar búið var að landa því. Seinna markið hjá Scholes verður sennilega eitt af glæsilegri mörkum vetrarins. Svona neglur á náttúrlega bara að banna. Greyið Wright átti aldrei möguleika í boltann en hann er líka alinn upp í Arsenal í seinni tíð og getur því aldrei orðið neitt annað en aumingi.

Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði. Áfram KR!!

3. okt. 2002

Hálfviti
Hann Arsene Wenger greyið segir á Soccernet í dag að ástæðan fyrir velgengni Arsenal á sparkvöllunum síðustu misseri sé betri agi í liðinu, þ.e. færri spjöld og brottvísanir. Hann gleymdi kannski að kíkja á Fair Play listann áður en hann opnaði kjaftinn en á honum má sjá að Arsenal er næstgrófasta lið Úrvaldsdeildarinnar í Englandi. Aðeins leikmenn Birmingham hafa brotið meira af sér eins og sjá má hér. Hann er sem betur fer fyrir Arsenal-aðdáendur betri í að stjórna knattspyrnuliði en að hugsa áður en hann talar.

Vingjarnlegur kettlingur
Þótt ótrúlegt megi virðast er orðið kettlingur ekki í sinni eiginlegu merkingu í fyrirsögninni hér að ofan heldur ætla ég að segja ykkur snilldarlega sögu. Þannig er mál með vexti að foreldrar mínir eru staddir erlendis þessa daganna að heimsækja nýfædda sonardóttur sína í Iowa og frændfólk okkar í New York. Þau hafast nú við í einhverri íbúð á 7th Avenue á Manhattan sem vinur frænku minnar hefur á leigu en getur ekki búið í. Þið kannski spyrjið ykkur af hverju hann getur ekki búið í íbúðinni. Jú, af því að brasilíska miklu yngri fyrrverandi kærastan hans býr í næstu íbúð og hún lætur hann ekki í friði. Ég er ekki að tala um neitt venjulegt áreiti heldur situr hún um hann í hvert skipti sem hann kemur í íbúðina og gengur í skrokk á honum. Þetta gerir hún víst vegna þess að hún er ósátt við að hann skyldi dumpa henni. Rökrétt leið til að komast aftur í mjúkinn hjá honum er því jú að berja hann í klessu - oft!!! Svona lagað gerist bara í Ameríku. Kettlingur er því notað í merkingunni væskill eða aumingi í fyrirsögninni hér að ofan.
Viðar...
...setur sig í spor læknis og ráðleggur mér að taka Haldol (eða vítamín H eins og það er kallað í mínum bekk) við mínum KR-sjúkdómi. Viðar ætti hins vegar af áralangri knattspyrnureynslu að vita að KR-meðhald (nýyrði úr smiðju Ljós-Gíslans) er gjörsamlega ólæknandi og banvænn sjúkdómur (menn taka þetta yfirleitt með sér í gröfina, ergo - hann er banvænn). Hins vegar mun KR alltaf verða í 3. sæti á mínum lista íslenskra liða því auðvitað er FC-ÁST í fyrsta sæti og Víkingur R í öðru sæti. Ég held því bara með KR í úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Mér finnst hins vegar ánægjulegt að mér hefur tekist að minnka einkenni hinnar óþolandi áfergju Viðars í að troða áliti sínu á klassískri tónlist upp á saklausa lesendur bloggs síns. Mér hefur því tekist í gegnum tölvupóst og blogg að meðhöndla vandamálið og mun ég halda áfram þangað til ég hef upprætt einkennin fullkomlega. Til hamingju Viðar, þú ert duglegur strákur!!

Bloggarar...
...keppast nú við að kalla mig klúrasta, orðljótasta og nú síðast ófeiminn bloggara. Síðastur til að skjóta á mig er Sverrir Guðmundsson sem bloggar af áfergju enda heimsæki ég bloggsíðu hans daglega en hef misgaman af (þó yfirleitt mjög gaman). Sverrir er nefnilega svipaður Viðari að því leiti að hann skrifar oft um hluti sem mér finnast ekki skemmtilegir. Það er þó alltaf gaman að stjörnufræðispeki Sverris því það getur verið áhugavert þó maður sé ekki mikill áhugamaður um stjörnufræði.

Annars á Sverrir þann heiður að vera uppáhalds GettuBetur-maður föður míns. Það helgast fyrst og fremst af afburðaþekkingu Sverris á íslenskri landafræði og sögu. Sverrir var nefnilega fyrsti almennilegi landafræðimaðurinn í Gettu betur að mati pabba og þó ég sé kannski ekki fullkomlega sammála karlinum þar, þá held ég að á engan sé hallað þegar ég segi að Sverrir bar tvímælalaust af fyrirrennurum sínum (þó þeir hafi margir verið góðir).

Boltinn
Helvítis Pollsullararnir vöknuðu í gær og burstuðu Rússana 5-0. Emile Heskey skoraði meira að segja - tvisvar. Það er ótrúlegt að framliggjandi varnarmaður skuli ná að skora en í ljósi þess að Hyypia setti eitt er kannski ekki undarlegt að Svarti bolinn (sbr. Svarti folinn) setti tvö. Kannski þeir drullist upp úr riðlinum eftir allt saman. Ég er þó ekki búinn að gefa Basel upp á bátinn - þeir gætu unnið Poolarana í Sviss og ef Valencia gerir góða ferð á Anfield þá er allt mögulegt. Ég hafði líka gaman af því að sjá að Real getur gengið illa - gerðu bara jafntefli við AEK í Aþenu - kannski þeir hafi ekki séð boltann almennilega fyrir mengun. Svo var Gauturinn auðvitað að brillera í gær og þess getur ekki verið langt að bíða að stóru liðin fara að kíkja á hann. Inter hikstaði hins vegar aðeins og gætu eyðilagt spána mína en ég held þó að þeir klári þetta greyin.

Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði. Áfram KR!!
Mér finnst þetta vera cool.


Which Trainspotting Character Are You?

2. okt. 2002

Ótrúlegt
Það kemur mér á óvart hvað margir greindir menn hafa látið blekkjast af myglugræna litnum á VG. Í hópi stuðningsmanna eru úrvalsmenn eins og Ármann Jakobsson sem maður hefði nú haldið að léti ekki plata sig svo glatt. Annars ætti þetta ekki að koma mér á óvart eftir kynni mín af öllum kommunum í Gettu betur teymi MR á sínum tíma. Sverrir, Stebbi o.fl. eru alveg eins eldrauðir og tómatsósan á BurgerKing. Annars held ég því miður að þetta fólk sé ekki að láta blekkja sig. Það virðist bara fara saman að vera kommi og öfgasinnaður umhverfisverndarsinni. Það er svo sem ekkert órökrétt við það að tvær órökréttar stefnur fari saman. Það er svo aftur annað mál að þrátt fyrir að ég sé afar hægrisinnaður maður þá finnst mér yfirleitt mjög hægrisinnaðir menn leiðinlegri en kommar. Það útskýrist kannski af því að mér finnst alveg rosalega gaman að rífast og það er ekkert gaman að rífast við menn sem eru sammála manni. Samt virðist það nú vera þannig að flestir vinir mínir eru hægri sinnaðir (að Þór undanskildum). Skýringuna á því kann ég ekki en nokkrar koma til greina:
1) ég færi svo vel rök fyrir máli mínu að ég er búinn að snúa öllum kunningjum og vinum til hægri - ólíklegt
2) vinstri sinnuðu fólki finnst ég leiðinlegur af því að ég er alltaf að rífast við það - líklegt
3) vinstri sinnuðu fólki finnst fótbolti leiðinlegur en það er frábending fyrir vináttu minni - frekar ólíklegt
4) vinstri grænir sjá ekki viðkvæma túnvingulsvininn sem leynist undir hörðu hægrisinnaða yfirborðinu - líklegt
5) framsóknarmenn vilja ekki vingast við hægrisinnaða menn vegna þess að flokkurinn þeirra deyr þannig - líklegt
Eflaust eru til margar ástæður til viðbótar en ég held að ástæður 2 og 4 séu líklegastar.

Boltinn
Gærkvöldið var alveg ótrúlega skemmtilegt. Ákvað með dags fyrirvara að bjóða Ingvari, Þór og Gunna í meistaradeildaráhorf og mat. Snæddum pasta með gráðostasósu sem var ágætt þó ég segi sjálfur frá. Síðan voru það leikirnir, Manchester tók á móti Olympiakos og Bayern Munchen tók á móti AC Milan. Leikirnir fóru báðir á besta veg. United tók Olympiakos í kennslustund með 4-0 sigri og auðvitað setti Skerið eitt. Giggs setti tvö og Veron sem var að mínu mati einn besti maður vallarins skoraði glæsilegasta mark leiksins með því að vippa yfir markvörð Olympiakos af 15-20 metra færi. Síðan var það hreinn unaður að sjá Milan taka Bayern í Þýskalandi og í lok leiksins tók vinahópurinn þá meðvituðu og sameiginlegu ákvörðun að taka Pippo Inzaghi í sátt. Bæjarar geta næstum því kvatt áframhaldandi þáttöku í meistaradeild Evrópu því þeir eru aðeins með 1 stig eftir 3 leiki og eiga eftir að heimsækja bæði Deportivo og Milan. Kannski spáin mín um Real Madrid, Valencia, Deportivo, Barcelona, MUFC, Arsenal, AC Milan og Inter standist þegar kemur í átta liða úrslitin. Sjáum til.

Skítaveður
Það er nú meira skítaveðrið hér og auðvitað er algerlega skjóllaust hérna í kringum heimili mitt vegna tilgangslausu víðáttunnar í Vatnsmýrinni. Það væri gaman ef það kæmi einhver alvöru borgarstjóri hér en ekki lýðskrumari eins og hún Skalla-Solla. Þá væri þessi plássfreki en jafnframt tilgangslausi flugvöllur í Vatnsmýrinni látinn hverfa. Kosturinn við það að flytja allar flugsamgöngur til Keflavíkur er sá að þá mundum við höfuðborgarbúar loksins losna við hann Gunna greyið úr Reykjavík. Hann hefur farið huldu höfði í flugturninum í Vatnsmýrinni síðan hann kom heim frá Tékklandi og aðeins látið sjá sig í þau fáu skipti sem Baddý hefur leyft honum að koma í fótbolta með okkur strákunum. Annars er Gunni ágætur þó það sé skítaveður.

Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði. Áfram KR!!

1. okt. 2002

Málstol
Ég hef haft alveg ótrúlega lítið merkilegt að segja síðustu vikurnar en það er einföld skýring á því. Ég hef séð einn fréttatíma síðustu vikurnar, hálft annað Kastljós, þriðjung úr silfri Egils og þar með er fréttaáhorf mitt upptalið. Ég er því algjörlega út á þekju í þjóðmálunum og veit ekki hvað ég á að segja. Ég get þó haldið í gamlan og góðan vana og dissað vinstri menn. Ég sá sem sé hluta úr Kastljósi í síðustu viku þar sem komu saman formenn eða leiðtogar þeirra stjórnmálaflokka sem eiga þingmenn. Þarna voru því Dabbi kóngur, Össi auli, Skalla-Grímur, Dóri bumba og Magga nöldur. Mér hefur nú alltaf þótt svolítið gaman af honum Össur greyinu enda er hann svolítið skemmtilega vitlaus. Nú er sem sé plottið hjá honum að skíta út Framsóknarmenn og sleikja háruga boruna á Davíð. Mér er svo sem sama um það enda væri ég feginn ef Framsóknarflokkurinn hyrfi af yfirborði alheimsins. (Er ekki hægt að fá þessi rookie-svarthol til að éta hann Össa litla). Ég er hins vegar ekki sáttur við aðfarir Össurar við þetta en hann gerir það fyrst og fremst með því að ráðast á heilbrigðis- og félagsmálavandann. Þetta er auðvitað vandi sem félagar Össurar í Alþýðuflokknum, þau Jóhanna Sigurðardóttir, Sighvatur Björgvinsson og Guðmundur Árni Stefánsson, sköpuðu. Ég verð nú reyndar að viðurkenna að ekki hefur núverandi ríkisstjórn haft gæfu til þess að stokka upp afburðalélega hönnun þeirra skötuhjúa. Málið er bara það að þessi vandi leysist ekki fyrr en það kemur hér til valda hugrakkur en skynsamur maður sem sér að það verður að spila á kerfið eins og maður spilar erfiða skák. Það verður að setja fullt af peningum í þetta til skamms tíma til að útrýma öllum biðlistunum. Það er auðveldast með því að koma hér í gang einkareknum rekstri sem fær borgað eftir afköstum. Auðvitað er rétt hjá Össuri að það eru til margir sérfræðingar í læknavísindum sem hafa mjólkað spenann á kerfinu allt of lengi. Málið er bara það að kerfið sem kollegar Össurar sköpuðu hefur boðið upp á þetta. Það sem verra er, er það að kerfið hefur látið menn komast upp með þetta.
Staðreyndin er sú að vandinn í heilbrigðiskerfinu er mikill og þegar slíkir hnútar myndast þarf stundum mikla Alexandra til að höggva á þá. Ég held því að á meðan alltaf veljast gamlar útbrunnar gungur í þetta embætti heilbrigðisráðherra þá mun ekkert gerast.
Síðan er auðvitað algjört grundvallaratriði sem þarf að uppfylla til að þetta geti allt saman gengið snurðulaust fyrir sig og það er að byggður sé einn miðlægur spítali í Reykjavík en ekki reynt að halda úti tveimur háskólasjúkrahúsum.
Amen

Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði. Áfram KR

30. sep. 2002

Jæja börnin góð. Ég veit þið hafið beðið spennt fyrir framan tölvuskjáinn síðustu daga eftir því að ég segði e-ð gáfulegt en eins og treggreindum mönnum er tamt hefur mér ekki dottið neitt gáfulegt í hug. Auk þess hef ég ekki haft tækifæri til ítarlegra bloggskrifa. Ég hef hins vegar tekið eftir að hræðilegir atburðir hafa gerst um helgina. Maður myrtur í Reykjavík (reyndar á fimmtudag) og svo kórónaði Sjonni þetta með því að byrja að blogga aftur. Það eru nú takmörk fyrir því sem hægt er að leggja á saklausa borgara þessa lands.

Helgin...
...var góð. Á föstudag var ég reyndar á vakt á barnadeildinni og fór síðan beinustu leið í háttinn í kjölfarið en á laugardag hélt hinn ágæti Hannes (a.k.a. Magnús Gísli Eyjólfsson) alveg þrusumagnað náttfatapartý í tilefni af 25 ára afmæli sínu. Það var auðvitað boðið upp á vín og mat að hætti hússins en fyrir þá sem ekki vita er Magnús með gestrisnari mönnum. Ég verð nú reyndar að viðurkenna að ég gerðist eymingi og sötraði aðeins óáfenga drykki og fór síðan bara heim eftir partýið. Ég hef hins vegar haft spurnir af því að einhverjir hafi heimsótt öldurhús borgarinnar undir morgunn, íklæddir náttfötum einum fata. Ljós-Gíslinn óskar Magnúsi Gísla að sjálfsögðu til hamingju með silfurfæðinguna sem og þeim Arnóri spýjukappa og Jóhanni Davíð ræðukappa við sömu tímamót.

Boltinn
Gamla eimreiðin er komin í gang og eins og flestir vita þarf yfirleitt meira en franska útlendingahersveit til að stöðva slíkt ferlíki. Það verður gaman að sjá hvernig mínir menn munu valta yfir Arsenal og Liverpool á næstu vikum. Raunar hef ég meiri áhuga á að United einbeiti sér að Meistaradeildinni en það er allt í lagi að taka Úrvalsdeildardolluna í leiðinni ef önnur lið hafa ekki áhuga. Ruud er kominn í gang og Scholes, Veron, Silvestre og Keane allir á leiðinni í sparkstígvélin aftur. Nú síðast komu fréttir af því að Keane væri að ná undraverðum bata eftir mjaðmaraðgerðina. Ég held að það verði tekið Blizz a la MUFC næstu vikurnar og þessum vesalingum sýnt hvar Davíð keypti ölið (í Bermúda-skálina). Annars vil ég að lokum óska Fylkismönnum til hamingju með Blikkdolluna sem þeir unnu á laugardaginn. Það er best að hafa bara draslið þar sem það á heima - hjá hinu draslinu. Ég er alvarlega að spá í að gerast KR-ingur bara til að skaprauna konunni minni og vinum. Ég lýsi því hér með yfir að á meðan Víkingur Reykjavík spilar ekki í efstu deild þá mun ég halda með KR.

Auk þess legg ég til að Valsbragginn verði lagður í eyði.

27. sep. 2002

Vaktin
Er núna á vaktinni á barnadeildinni og það er farið að róast. Er líklega bara á leiðinni heim. Það er líklega bara bólið í kvöld en síðan stendur til náttfatapartý hjá Magnúsi Gísla á morgunn. Hef ekki hugmynd hvað á að gefa honum en okkur dettur eitthvað í hug. Reyni að blogga eitthvað um helgina en það stefnir allt í að maður verði þögull næstu daga. Lifið heil í bili!!

26. sep. 2002

Boltinn
Góð úrslit í meistaradeildinni í gær fyrir utan að íkveikjuliðið Arsenal þurfti endilega að taka upp á því að vinna allt í einu á útivelli. Það er ljóst að þeir eru með slarkfært lið í vetur og ég held að Ferguson verði að spýta í lófanna og binda endi á sigurgöngu þessa liðs sem fyrst. Annars verður annar dollulaus vetur því ég sé ekki fyrir mér að United taki Real eins og þeir eru að spila. Ég er farinn að hafa áhyggjur af þessum Milan Baros. Allt í einu er Liverpool komið með framherja sem kann að klára færin sín en það hefur ekki sést á Anfield síðan Fowler var seldur. Vona að Houllier haldi áfram að vera þrjóskur og noti greyið hann Owen og varnarjaxlinn Heskey sem mest.

Verkefni
Líkt og hjá Viðari er nóg að gera hjá mér í skólanum. Er á deildum fram til kl. 13 en þá byrja yfirleitt fyrirlestrar sem standa til 15 eða 16 eftir því í hvernig skapi menn eru. Síðan fer maður heim og reynir að vinna í þeim verkefnum sem manni hefur verið sett fyrir og að lokum er það síðan lestur námsefnisins sem er mjög skammt á veg kominn. Reyndar fer ég 2 vikur á Heilsugæsluna á Akureyri í október og þá getur maður notað dauðan tíma til að lesa. Síðan byrjar kvennakúrsinn strax í kjölfarið en hann er 6 vikur að lengd. Síðan þegar honum er lokið taka við bókleg próf í kvensjúkdóma- og barnalæknisfræði. Annars kemur það mér sífellt á óvart hvað ég þekki mikið af fólki sem á börn. Mér finnst ég þekkja næstum hverja einustu móður sem kemur með barnið sitt á barnadeildina. Er ég orðinn svona gamall?

Hef ekki fleira handa ykkur í dag, verð að fara að undirbúa fyrirlestur um hvítblæði í börnum sem ég á að flytja í fyrramálið.

25. sep. 2002

MUFC
Mínir menn að gera góða hluti í Þýskalandi í gær. Það vantaði reyndar að klára þriðja markið svo ég hefði rétt fyrir mér en ég fyrirgef þeim úr því að þeir lönduðu stigunum þremur. Nistelrooy var náttúrlega alveg rosalega góður í fyrri hálfleik og Veron var snilld þá líka. Síðan datt botninn svolítið úr þessu í seinni hálfleik þegar Ruud fór út af og Veron virtist hafa skipt um skó í hálfleik. Sendingin hans í fyrsta markinu var náttúrlega bara snilld og afgreiðslan hjá Ruud ekki mikið síðri. Síðan var spilið í seinna markinu auðvitað einstök fegurð. Mínir menn fara í úrslitaleikinn í vor og það eru ekki mörg lið sem geta unnið þá á heimavelli. Ég held ég hafi nefnilega lesið að úrslitaleikurinn eigi að fara fram á Fornutröð (Old Trafford) í vor.

Bumban
Bumbunni hefur verið sagt stríð á hendur og hef ég ákveðið að hreyfa mig helst 6 sinnum í viku í vetur. Stefnan er sett á fótbolta mánudaga, miðvikudaga og sunnudaga auk þess sem ég stefni á að hlaupa þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga. Frí verður tekið fyrir þynnkur og bolta á laugardögum. Sjáum svo til hvað ég held þetta út í marga daga.



24. sep. 2002

Boltinn
Kvöldið leggst vel í mig. Held að mínir menn taki slakt lið Leverkusen í hægri nösina (kannski frekar hægri nasirnar). Þetta lið er náttúrlega ekki svipur hjá sjón eftir að þeir misstu Ballack og Ze Roberto. Spá mín er að þetta fari 3-1 fyrir United með mörkum frá Veron, Skerinu og Butt. Leverkusen setur svo eitt svona vorkunnarmark í lokin, ætli það verði ekki Lucio.

23. sep. 2002

Helgin
Eins og menn vita þá er ég ekki nettengdur heima þannig að það fer lítið fyrir færslum hjá mér um helgar. Annars var þetta rosaleg helgi. Á föstudag var tekið svakalega á því í vísindaferð. Það var farið í Líf hf. sem er móðurfyrirtæki ýmissa fyrirtækja í heilbrigðisiðnaði. Þar var vel veitt af bæði mat og drykk. Fyrir áhugasama var það mexíkanskur matur með Corona-bjór, rauðvíni og hvítvíni. (svo var líka óáfengt fyrir Árna pneumo) Síðan var haldið á Astró (eða sósujafnarann eins og Þór kallar hann). Þar var tekið svakalega á því og það endaði með því að ég lagði mig pínulítið á Kaffibarnum undir morgunn. Síðan var farið heim. Þar sem konan var á fylleríi með vinnufélögum sínum þá hélt ég auðvitað að það væri upplagt að taka tvistara og við félagarnir: ég, Ingvar og Þór ásamt Hirgittu Baukdal, ákváðum að lyfta okkur aðeins upp. Ég lyfti mér aðeins hærra en margir aðrir og því var sunnudagurinn erfiður. Raunar lyfti ég mér svo hátt að ég er kominn með magasár og þarf að éta e-r lyf næstu vikuna og fara varlega í bjórinn.

Boltinn
Mínir menn að rétta úr kútnum vonandi. Þeir tóku Tottenham í bakaríið á laugardag og gefa lokatölurnar 1-0 engan veginn rétta mynd af yfirburðum minna manna. Kasey Keller var langbesti maður vallarins og það þurfti víti frá Ruudaranum til að sökkva totturunum. Veron var góður á miðjunni og stóra systir kom inn á í fyrsta skipti í vetur. Litla systir átti líka góðan leik.

Davíð...
...var góður í imbanum í gær. Mér fannst hápunkturinn þegar hann sagði að það væri oft mikil eftirspurn eftir stjórnmálakröftum Jóns Baldvins þegar hann kæmi í frí á Íslandi. Einnig hneykslaðist hann réttilega á vinnubrögðum ástkærrar borgarstýru vorrar sem lét sjálf gera skoðanakönnum á því hvort landsmenn vildu hana í landsbyggðarmálin. Auðvitað vill stór hluti landsmanna hana þangað. Samfylkingarmenn vegna þess að þeir halda að hún eigi roð í Dabba kóng og sjálfstæðismenn af því að þá hrynur skýjaborg vinstri manna í Reykjavík og af því að þeir vita að Dabbi rúllar pólítíkum um fingur sér. Þeir einu sem vilja hana ekki eru Framsóknarmenn sem vita að þá eru þeirra dagar taldir og vinstri grænir því þeir vita að allt tískuumhverfisverndarsinnaða pakkið vaknar af vondum draumi og fattar að það er bara að kjósa Hinn íslenska kommúnistaflokk en ekki einhverja græna fingur.

Ráðgáta vikunnar
Hvernig er hægt að vera kommi og á móti stóriðju? Hvernig er hægt að vera umhverfisverndarsinni en samt á móti því að Kópasker hverfi af yfirborði jarðar? Hvernig er hægt að vera með skalla en samt ekki borgarstjóri? Hvernig er hægt að vera skemmtilegur en samt kommi?
Svar: Þú getur heitið Skalla-Grímur Sigfússon

Afsakið
Þetta þyrfti ég nú að setja inn á spássíuna mína en ég kann það bara ekki enda lítill tölvunjörður þó mikill njörður sé. Fyrir menn sem fá vond lýsingarorð í hæsta stigi á sig á þessu bloggi eins og Hjörtur nokkur fékk nýlega er rétt að taka fram eftirfarandi:
1) mörg lýsingarorð eru bara til í efsta stigi hjá mér, þetta veldur t.d. því að góður matur, góð tónlist o.s.frv. verður oft besti matur eða besta tónlist sem ég hef smakkað eða heyrt. Þetta á þó mun oftar við um vond lýsingarorð eins og leiðinlegur og vondur og ljótur.
2) stundum þegar mér er mikið niðri fyrir verð ég full orðhvatur og sauryrtur og skildu menn ekki taka það persónulega heldur líta fremur á það sem lesti á mínum annars óendanlegu persónutöfrum fremur en sína eigin ókosti.
3) ég er hægrisinnaður maður og áskil mér fullan rétt til að uppnefna alla sem eru ósammála mér án þess að ég beri ábyrgð á slíkum uppnefnum á opinberum vettvangi. Menn verða að muna að ég hef sterka stöðu þegar kemur að því að bera fyrir mig stundarbrjálæði. Ég er nefnilega brjálaður hverja stund. Ég er því eiginlega miklu fremur stundabrjálaður en stundarbrjálaður.
4) ég er alltaf ósammála þér - hver sem þú ert - af því að mér finnst gaman að vera ósammála - nema þegar ég er sammála.

20. sep. 2002

Leiðinlegasti bloggarinn!!
Nei, Viðar! Mér finnst þú ekki leiðinlegasti bloggarinn. Hins vegar held ég að þessi Hjörtur sem er með B.A. í íslensku sé þess vafasama heiðurs aðnjótandi. Ekki nóg með að hann hafi haft fyrir því að skrifa heila B.A.-ritgerð um álit sitt á hinu alíslenska orðatiltæki "að rokka feitast" heldur eru allar aðrar færslur á blogginu hans líka afburðaleiðinlegar. Ég hallast þess vegna að því að það ætti fremur að standa B.S. (fyrir Bull Shit) á útskriftarskírteini hans úr HÍ. Síðan heitir maðurinn líka Hjörtur... hesturinn minn heitir Hjörtur og er ég ekki frá því að sú skynuga skepna beri af þegar þeir nafnar eru bornir saman hvað varðar líkamlegt atgervi og greind. Geta fjölmargir sem kynnst hafa þessari afburðaskepnu vottað þetta.

Skólinn
Er nú að ljúka fjórðu viku í sjö vikna barnalæknisfræðikúrsi. Líkar þetta alveg rosalega vel og er enn hrifnari af þessari undirgrein læknisfræðinnar en ég var áður. Samt á ég víst eftir að fara á skemmtilegustu deildirnar að áliti bekkjarfélaga minna. Þessu litlu kríli eru algjör gullmolar. Þau kunna ekki að ljúga eins og fullorðna fólkið. Málið er nefnilega það að margir fullorðnir gefa rangar upplýsingar þegar maður er að taka sjúkrasögu. Þessu litlu heiðarlegu kríli eru ekki enn búin að læra að ljúga og stundum koma alveg óborganleg ummæli af vörum þeirra. Einn sagði hér um daginn þegar hann var spurður hvort hann hefði ofnæmi f. e-u, að hann væri ekki með ofnæmi fyrir kisum og svoleiðis en hann var alveg viss um að hann væri með ofnæmi fyrir litlu systur sinni. Síðan spræna litlu gríslingarnir stundum á mann svo þetta er svolítið fyndinn sjúklingahópur.

Helgin
Það er stefnt á feita vísindaferð í dag og svolítið sukk og svínarí á eftir með bekkjasystkinunum. Síðan þarf ég að klára grein, sem á að birtast í Læknablaðinu í október, á morgunn. Síðan held ég að ég sökkvi mér bara í lestur barnalæknisfræði á sunnudaginn þegar ég er búinn að fylla út vinnuskýrslu fyrir ágúst.

Góða helgi öll sömul.

19. sep. 2002

Jæja!!
Slysaðist inn á síðu í eigu Stefáns nokkurs Pálssonar. Þar kom fram að hann hafði lent í veseni með templatinn sinn og orðið að skipta. Ég ákvað í ljósi þess að færslur mínar hafa ekki birst síðustu daga, að prófa þetta. Auðvitað hafði ég vit á því að setja bara aftur inn sama template og þá hrökk þetta í gang eins og Arnór jarlaskáld eftir 2 hraðapakka forðum daga.

Boltinn
Mínir menn að gera góða hluti í CC. Negldu Ísraelsmenn í rassinn í gær á Gömlugrösum. Forlan setti inn sitt fyrsta og miðað við lýsingarnar á netinu var Veron sprækastur allra. Ánægjulegt ef hann ætlar að rífa sig upp úr meiðslunum. Ég verð nú að segja að hann er enn í miklu uppáhaldi hjá mér þrátt fyrir lélegt tímabil síðast. Satt að segja man ég bara eftir þremur mönnum sem hafa átt gott fyrsta tímabil eftir að hafa verið keyptir til United. Það eru Nistelrooy, Skerið og Kóngurinn. Annars er draumauppstillingin mín hjá United orðin aðeins breytt. Ég mundi vilja hafa Barthez í markinu. Þrjá miðverði: Brown, O´Shea og Ferdinand. Síðan Butt aftarlega á miðjunni, Scholes og Veron fyrir framan. Giggs og Beckham á köntum og Ruud og Skerið frammi. Þetta er lið sem yrði erfitt að sigra.
Gleði kvöldsins var náttúrlega að sjá Bayern tapa í Þýskalandi fyrir Roy Makaay. Mér finnst fátt skemmtilegra en að horfa á Bayern Munchen tapa. Síðan tapaði Leverkusen snautlega í Grikklandi. Spænsku liðin virðast hins vegar vera sterk og unnu öll leiki sína í fyrstu umferðinni. Ég held raunar að Valencia, Deportivo og Real fari öll í átta liða ásamt Milan, United, Arsenal, Inter og kannski Barca eða Bayern. Liverpool er ég ekki viss um að komist upp úr fyrsta riðlinum en þeir komast örugglega ekki upp úr þeim síðari nema þessi tékkagutti fái að spila. Ég held bara að Houllier taki ekki mikla sjensa með hann í vetur. Notar hann bara svona spari.

Annað
Mikið væri lífið yndislegt án KR, Fylkis, Liverpool, Bayern, Juventus og Real Madrid!!
Bloggdrasl!
Þetta blogg mitt hefur ekki virkað síðustu daga en vonandi fara þeir að laga þetta á næstu dögum.

17. sep. 2002

Ætlaði bara rétt að kasta á ykkur kveðju. Hef ósköp lítið að segja eins og er en það gæti verið að andinn komi yfir mig með kvöldinu enda á ég í vændum fremur rólega stúdentavakt á barnadeildinni ef allt heldur fram sem horfir.

16. sep. 2002

Tölvuleysi og leti!!
Hef ekkert getað bloggað um helgina vegna netleysis og leti. Er ekki tengdur alheiminum heima.

Réttir
Fór í hinar árlegu og mikilvægu Skaftholtsréttir á föstudag í kjölfarið á mínum eigin kjöldrætti í Kollgátunni á Háskóladaginn. Við höfðum stefnt á að keppninn yrði búinn eftir hraðann þar sem við vorum fremur tímabundnir. Ætluðum síðan bara að láta okkur hverfa og leyfa Orator að glíma við bjölluspurningar og vísbendingar. Ég vildi að ég gæti kennt því um að við hefðum tapað vegna þess að það glumdi svo í salnum þegar Logi las hraðann (sem það og gerði). Málið er bara það að munurinn á liðunum var bara alveg rosalega mikill. Þau tóku okkur í ... eh ... eh ... eh... bakaríið. Síðan kom auðvitað hápunktur dagsins - réttirnar. Var kominn austur um 14:30 og tók strax til við drykkju hina mestu. Var farinn að finna svolítið á mér við upphaf heimferðar. Þarna er féð s.s. rekið heim á hestum og auðvitað fylgir pelinn með. Við sulluðum því talsvert á heimleið og vorum orðnir rakir að innan við heimkomu. Þess ber að geta að veður var með besta móti í manna minnum, um 20 stiga hiti og sól. Síðan var mjólkað eins og venjulega og loks étin kjötsúpa sem verður betri með hverju árinu hjá þeim stöllum frá Steinsholti. Ekki svo að skilja að það sé sama súpan ár eftir ár, það er alltaf gerð ný. Síðan var auðvitað tekið réttaball með tilheyrandi drykkju og skemmtun. Papar héldu uppi stuðinu með smá hjálp frá Árna útlæga. Ballið fær 3 stjörnur (frádráttur fyrir rólega byrjun og viðveru flestra vistmanna barnaheimilis Gnúpverja). Síðan var maður kominn í háttinn kl. 4 um nóttina og vaknaði kl. tæplega 11 um morguninn. Þá var þrumað í bæinn því til stóð að fara í brúðkaup hjá Elínu og Kidda seinna um daginn. Ég get nú ekki sagt að heilsan hafi verið góð en hún skánaði og var orðin fín um 3-leytið en þá voru enn 2t til stefnu því athöfnin átti að hefjast kl. 17.

Brúðkaupið...
...var vægast sagt snilld. Athöfnin skemmtileg og veislan enn betri enda hélt Tríó Briggs uppi stuðinu. Maturinn var snilld, vínið flæddi þannig að það stóðu yfir manni ca. 40 þjónar (eftir 5 glös virtust þeir vera það) með flöskur og maður mátti varla gjóta augum að glasi án þess að e-r bætti í það. Þetta og ótakmarkað framboð á bjór eftir matinn leiddi til almennrar ölvunar. Síðan þegar við loksins fórum úr veislunni milli 2 og 3, var haldið á skemmtistaðinn NASA sem ég hef aldrei barið augum áður. Þar var mjög gaman en sakir þreytu tókst mér í fyrsta skipti á ævinni að sofna dansandi. Það var því ákveðið að drífa mig heim í svefninn þar sem til stóð að rífa mig á lappir um morguninn til að kveðja Nonna bróður í hádegisverðarboði. Það var og gert og var ég alveg ógeðslega þunnur fram eftir degi. Losnaði ekki við þynnkuna fyrr en eftir dýrindis kjúlla og ís hjá tengdó. Síðan var auðvitað tekinn bolti til að reka þynnkuna enn frekar á brott. Þar með eru málefni helgarinnar útrædd.

Boltinn
Ég hef bara eitt að segja um ensku eins og stendur. Mínir menn eru aumingjar. Hérna heima gerðist hins vegar sá yndislegi atburður að Fylkismönnum mistókst að verða Íslandsmeistarar og verða nú að vinna Skagamenn á Skaganum á meðan KR-ingar þurfa að taka á móti Þórsurum. Hef lengi velt því fyrir mér hvort sé verra, KR eða Fylkir. Niðurstaða: Fylkir því Þór og Golli halda með þeim.

Andlát
Bloggið hans Sjonna er dáið. Blóm, kransar og endurlífgun vinsamlega afþökkuð en þeim sem vildu minnast þess er bent á bloggið hans Chewie sem uppfært næstum eins sjaldan!!

13. sep. 2002

It's alive!
Senor Pálsson lifnaði við í gær eftir nokkurra daga svefn. Það þurfti hvorki meira né minna en ávirðingar Ljós-Gíslans ti að endurvekja greyið. Hann reynir af veikum mætti að verja eina leiðinlega hlutann í blogginu sínu (þ.e. klassíska hornið) en allt kemur fyrir ekki. Það var reyndar svo stutt í dag að ég ákvað að gera enn eina tilraun til að lesa angulus classicum en það var jafnleiðinlegt og venjulega. Viðar að reyna að sannfæra lesendur um að einhver fiðluleikari sem hann hefur grafið upp í einhverri forndiskaverslun sé betri en þessir frægustu. Þú sannar bara mál mitt með sama áframhaldi Viðar minn!! Annars er það rétt hjá Viðari. Okkar annars skemmtilega vinátta hefur að mörgu leyti blómstrað vegna þess hve ósammála við erum um marga hluti. Það er í rauninni bara tvennt sem við sameinumst um: fótbolti og pólítík (og þá er ekki að tala um pólítíkina Ingibjörgu hárlausu). Það verður nú reyndar að segjast um Viðar að hann fellur ekki undir hatt hrokafullu klassíkeranna nema í ákveðnum félagsskap. Hann kann líka að hlusta á alvöru tónlist og er skemmst að minnast Radiohead-lagsins sem Sigur Rósar-menn spiluðu í brúðkaupinu hans.

Boltinn
Mínir menn töpuðu aftur fyrir Bolton á heimavelli. Ég segi nú bara eins og Tottenham-aðdáandinn forðum: "Not bloody Bergsson!" Annars var ég að lesa ansi góða grein um ítalska boltann á mbl.is. Þar sá ég að Inter og Milan keyptu þvílíkar stórkanónur á meðan ég var úti í Ungverjalandi að þeir verða torsigraðir í vetur. Milan komið með Nesta, Seedorf, Rivaldo, Jon Dahl Tomasson og fl. og Inter nældi í Cannavaro og Crespo auk þess sem Recoba verður á fullu með í vetur og margir að stíga úr löngum meiðslum.

Kollgátan
Eigum að keppa til úrslita í Kollgátunni í dag. Það verður blizzað. Mér er nokk sama hverjir andstæðingarnir verða en ég hef heyrt það sé annað hvort Viðskiptafræði eða Laganemar. Börn!!! Við erum auðvitað komnir áfram í fótboltamótinu en við unnum okkar riðil í gær. Ég ætla að leyfa betri mönnum að takast á við boltann og fara í réttir. Síðan er auðvitað Ellu gellu brúðkaup á morgunn!!
Heyrumst á mánudag!!

11. sep. 2002

Kollgátan!!
Lið læknadeildar blizzaði í gegnum Sæmund Borghylting og félaga þrátt fyrir að Óli Njáll hafi haft í frammi ástarjátningar til hans á sínu annars leiðinlega bloggi. Í þetta sinn ákváðum við Snorri að hjálpa Eyjólfi pínulítið og höfðum okkur mun meira í frammi. Við erum bara eins og jaxlarnir í boltanum. Látum ekki í okkur heyra nema þörf sé á. Lið raunvísindadeildar gekk sneypt frá keppni og verður Sæmundur enn um sinn að bíða bikarsins sem hann á sannarlega skilinn. Einnig tel ég rétt að leiðrétta misfærslu Óla Njáls að heimspekideild var aldrei yfir 25-18 eins og Óli Njáll lýsir. Held ég raunar að munurinn hafi mestur verið 25-20 um miðbik bjölluspurninga. Í lok þeirra var staðan síðan orðin 25-24 eins og áður sagði og svo tókum við vísbendingaspurningarnar.

Blogg spurningaliðsmanna
Hafið þið tekið eftir að í bloggi sínu reyna fornir spurningaliðsmenn alltaf að koma sínum leiðinlegu námsgreinum á framfæri. Ekki dettur mér í hug að fjalla um hypospadiur og anemiur í mínu spjalli. Mér dettur ekki í hug að nokkur maður nenni að lesa hugleiðingar mínar um þetta enda væri það þá líklega í læknisfræði og mundi frekar vilja leita í merkilegri heimildir en Ljós-Gíslann. Ég held raunar að þetta byggist einfaldlega á því að þeir eiga sér enginn almenn áhugamál greyin, heldur eyða öllum sínum stundum í námsefnið. Það er m.a.s. mun skemmtilegra að lesa leiðinlegu SUSara bloggin en þetta bullshit. Mér finnst lágmarkskurteisi hjá þessum drengjum að taka upp hátterni Viðars sem hefur fyrirsagnir. Maður getur því bara hlaupið yfir klassíska hornið en þarf ekki að átta sig með æluna í hálsinum eftir að hafa lesið hálft bloggið. Ekki svo að skilja að ég hafi ekki gaman af klassískri tónlist - mér finnst bara leiðinlegt og tilgangslaust að ræða og/eða skrifa um tónlist. Ég vil bara hlusta og mynda mér mínar eigin skoðanir.

Klassísk tónlist
Hafið þið tekið eftir hvað liðið sem einskorðar sig við klassíska tónlist er oft fordómafullt gagnvart tónlistarsmekk annarra. Það gengur jafnvel svo langt að kalla vinsælt popp, rusl. Yfirleitt eru þetta vinstrisinnaðir menn sem ekki trúa á lögmál markaðarins. Hins finnst mér liggja í hlutarins eðli að vinsældir hljóta að vera besti mælikvarðinn á bestu tónlistina. Það er hægt að skeggræða um tónfræði og útsetningar og allt þetta kjaftæði sem menn tala um í sambandi við tónlist en þegar allt kemur til alls hlýtur það að vera meirihlutinn sem hefur rétt fyrir sér. Þá segja klassikerarnir að þetta sé lið sem ekki hefur vit á tónlist. Málið er bara það að tónlist er bara eins og matur, drykkur, húsgögn og fl. sem við notum í daglegu lífi - þetta snýst bara um smekk fólks. Það er ekki hægt að hafa rangan smekk - bara öðruvísi smekk!!

Leaves
Þvert á komment mín hérna áðan langar mér að benda tryggum lesendum á hreint frábæran geisladisk sem ég hef fjárfest í. Þetta er diskurinn Breathe með íslensku hljómsveitinni Leaves. Mjög góður diskur sem er svona blanda af Coldplay og Travis með smá Sigur Rósar-sósu yfir. Hann er búinn að vera í spilaranum síðan ég kom heim og verður betri með hverri hlustun. Bendi sérstaklega á fyrstu 3 lögin og síðan það síðasta (nr. 11 held ég). Síðan er auðvitað Race sem hefur verið spilað mikið á PoppTíví. Snilldardiskur sem fær 4,5 af 5 mögulegum í einkunn hjá mér. Frádrátturinn er vegna þess að þetta er ekki mjög original lagasmíðar en hins vegar finnst mér hljóðfæraleikur og söngur til fyrirmyndar. Svo eru þeir líka svo góðir í fótbolta.
Jæja!!!
Viðar greyið virðist eiga í erfiðleikum með að rjúfa þögnina og er því eiginlega búinn að skíta í skóinn sinn með hjákátlegum aðförum að bloggleysi mínu í sumar. Annars er hann víst upptekinn greyið við lestur. Ég hef hins vegar ekki fengið skólabækurnar mínar ennþá frá hinu stórkostlega veffyrirtæki AMAZON.CO.UK sem lofaði að senda mér bækurnar ef ég borgaði skikkanlega fyrir. Þær eru þó komnar á knörr og munu líklega berast mér fyrir vikulokin en þá get ég hellt mér í lesturinn.

Spurningakeppni HÍ
Hef verið gerður ábyrgur fyrir þátttöku læknadeildar í spurningakeppni Háskólans. Öttum kappi við Heimspeki- og guðfræðideild á mánudag. Eftir því sem ég kemst næst eru þarna sagnfræðinemar og því mætti ætla að um tóma spurningaliðsnyrði á borð við Viðar og Stefán Pálsson væri að ræða. Við gerðum okkur hins vegar lítið fyrir (réttara sagt gerði Eyjólfur Þorkelsson á öðru ári sér lítið fyrir) og rótburstaði þetta sagnfræðilið 29-25. Við tókum örugga forystu eftir hraðaspurningar en gerðumst værukærir og ragir á bjölluna og fyrir vísbendingaspurningar vorum við komnir stigi undir 24-25. Það var hins vegar blizzað í gegnum vísbendingarnar að hætti Dr. Mengele og slógum við 5 stig af 6 mögulegum. Vegna mikilla anna á föstudag hjá mér og Snorra sem er þriðji meðlimur liðsins höfðum við Snorri tekið ákvörðun um að fylla Eyjólf í gærkvöldi til að koma í veg fyrir að hann fleytti okkur í úrslit, en það gleymdist. Við verðum því að vona að hann hafi tekið upp hjá sjálfum sér að teyga mjöð í gærkvöldi. Áhugasömum er bent á stofu 101 í Odda kl. 12 í dag.

Holræsa-Solla...
...hefur skv. illum kvitti verið að ígrunda þátttöku í landsmálapólítíkinni. Hver verður þá borgarstjóri? Árni Þór, Alfreð eða Sænski súkkulaðilæknirinn (sorry Þór)? Það er ljóst að Ingibjörg telur fullreynt að hægt sé að selja Reykvíkingum saur í ræsum og ætlar því að snúa sér að litlu stöðunum úti á landi í gegnum Alþingi. Það væri örugglega hægt að kalla þetta landsbyggðarstyrki og fá Óbyggðastofnun til að borga brúsann. Skríllinn vill örugglega búa í afskekktum firði austur á landi ef það fær að borga Holræsa-Sollu skattana sína og hafa svona ógeðslega flott ræsi.

Búdapest
Talandi um holræsi þá mætti alveg gera Ingibjörgu hárlausu að borgarstjóra í Búdapest. Ég meina þeir eru vanir þessum kommaskríl og þurfa auk þess á góðri Holræsadrottningu að halda því borgin lyktar eins og kamar á skátamóti. Það er skítalykt víðast hvar utan miðbæjarins en þar er saurnum bara veitt í Dóná. Þetta hefur orðið til þess að hin fagurbláa Dóná tónlistarbókmenntanna er orðin kúkabrún og skítug. Ég hugsa að það sé meira af olíu og hlandi en hreinu vatni í þessu annars tignarlega vatnsfalli.

Segi þetta gott í bili!!

10. sep. 2002

Aumingjabloggari hvað!!!
Viðar og Sjonni virðast standa í þeirri trú að það sé nóg að blogga að meðaltali 2svar í viku til að sleppa við ákúrur félaga sinna en ég ákúra þá hér með fyrir slælega bloggframmistöðu. Ég er reyndar svo þreyttur eftir ofurbloggið í gær að ég ætla að hafa þetta stutt í dag. Langar eiginlega bara að dissa Flugleiðir.

Rússneska flugfélagið!
Flugleiðir eru orðin mjög undarlegt flugfélag. Fór í dag að kvarta og hitti á mjög vingjarnlega stúlku sem ég skil bara ekki hvernig hafði þolinmæði í að vera vingjarnleg á meðan ég hellti mér yfir hana. Auðvitað ræður hún engu greyið og þarf síðan að þola svona yfirgang frá fíflum eins og mér. Þetta virðist hins vegar vera eina leiðin til að fá einhverju framgengt þarna (sbr. að töskurnar mínar komu til Búdapest rúmum 6 klst. eftir að pabbi hafði hraunað yfir starfsmenn Flugleiða). Hún var sem sé hin hjálplegasta en tjáði mér að hámarksbætur sem Flugleiðir bjóða upp á eru 8000 kr. - sama hversu lengi þeir týna farangrinum manns. Svona virkar bara einokun - þeir þurfa ekkert að bæta fyrir mistökin heldur les maður úr svipnum á liðinu: "Hvað ætlar þú að gera góði, fljúga með öðru flugfélagi næst? Þú getur líka farið með Norrænu, aumingi!" Þeir vita nefnilega sem er að þeir þurfa ekkert að bæta manni skaðann því maður neyðist til að versla við þá aftur hvort sem manni líkar betur eða verr. Þessi stúlka féllst engu að síður á að taka upp kröfu mína á þetta ungverska flugfélag (aðrar 8000kr) og sagði mér að leggja inn skriflega kvörtun til Flugleiða sem ég og gerði. Að sjálfsögðu hældi ég þessari stúlku í hvert reipi í kvörtunarbréfinu og vona að hún fái að heyra af því. Síðan er auðvitað hægt að tala við tryggingafélagið sem ég var tryggður hjá. Það er kannski síðasta hálmstráið. Meiri fréttir af þessu síðar.

9. sep. 2002

Ferðasagan
Dagur 1
Ferðin byrjaði ágætlega hjá mér. Var kominn til Keflavíkur 2t fyrir flug og ætlaði að spóka mig í Fríhöfninni. Það endaði með því að ég keypti mér síma, rafmagnsrakvél og ferðageislaspilara sem raunar voru allt hlutir sem mig vantaði. Síðan gekk flugið til Köben mjög vel - ég las 50 bls. í hinni langdregnu Hringadrottinssögu sem Heiðar lánaði mér í vor og ég hef ekki enn lokið við. Ég var síðan lentur í Köben u.þ.b. 2t fyrir flugið til Búdapest með hinu stórkostlega flugfélagi MALEV. Þessum tíma eyddi ég að mestu í að skoða mig um í flugstöðinni, borða og bíða. Síðan varð að sjálfsögðu hálftíma töf á fluginu frá Köben og það þýddi að ég lenti ekki fyrr en um kl. 23 í Búdapest að staðartíma sem samsvarar því að kl. sé 21 hér. Þar kom,eins og tryggir lesendur vita, í ljós að töskurnar mínar komu ekki með vélinni og því varð ég að fara sneyptur, sveittur, skítugur og pirraður á hótelið til að þrífa fötin sem ég var í vegna þess að ég var ekki með neitt til skiptanna. Þeir lofuðu að sjálfsögðu öllu fögru og sögðu "Your luggage tomorrow, yes" :). Ég var því sæmilega bjartsýnn
Dagur 2
Var laugardagurinn 31. ágúst. Ég vissi að ég yrði að taka daginn snemma því allar búðir loka um 13 á laugardögum í Búdapest. Tók þá afspyrnu lélegu ákvörðun að labba niður í bæ sem eru líklega um 7-8 km (vissi það ekki). Kom niður í bæ um 11 og fann nokkrar ágætar búðir. Keypti mér m.a. stuttbuxur auk nærfata og sokka en þar sem ég hafði haft spurnir af því að Flugleiðir hefðu fundið töskuna mína í Róm ákvað ég að fara varlega í verslunargjörningum fyrst um sinn. Ég fór síðan eftir hádegi og leit á kastalahverfið sem er líklega annað af frægustu merkjum Búdapest. Þar var ég í um 4 tíma að skoða mig um og komst m.a. í leðurverslun sem átti merkilega sögu. Fór síðan heim á hótel um kvöldmatarleytið eftir að hafa rennt niður ljúffengum Hamborgarakóngi (Burger King). Á hótelinu voru auðvitað engar töskur en ég fékk þær fréttir að taskan ætti að koma um miðnætti til Búdapest og yrði kominn á hótelið þegar ég vaknaði. Þetta var annars ágætishótel og starfsmenn þess sáu algerlega um öll samskipti við flugfélagið varðandi töskurnar sem var mjög þægilegt. Ég fór snemma í háttinn enda vissi ég að ég yrði að vera vel upp lagður á sunnudeginum því þá hófst ráðstefnan.
Dagur 3
Svaf lengi fram eftir en hélt síðan af stað í bæinn þar sem til stóð eitthvert málþing á vegum GlaxoSmithKlein (lyfjafyrirtæki). Tók því rútu og lest niður í bæ og gekk þaðan u.þ.b. 2 km að Varosliget sem útleggst Borgargarður á íslensku. Þar var heimssýning árið 1896 að ég held og byggð einhver höll sem ég hafði því miður ekki tíma til að skoða. Þarna er líka svokallað Hetjutorg þar sem er minnismerki um allar fallnar hetjur Ungverja síðan fyrir milljón árum. Síðan er þarna safn sem heitir Safn fínna lista (Museum of Fine Arts). Þar var s.s. fyrsta fyrirlestrablokkin í viðbjóðslega heitum en fallegum sal sem var fullur af listaverkum eftir fræga karla. Síðan var farið á fínasta veitingahús Búdapest um kvöldið. Þar var pöntuð 6 rétta máltíð þar sem m.a. var að finna steikta gæsalifur sem er víst fínasti matur norðan Alpafjalla. Þetta var ljúffeng máltíð og rann vel niður með rauðvíni og Tokayi sem er víst einhver þjóðardrykkur þeirra Ungverja. Hann er svolítið eins og blanda af hvítvíni og sjerrí - nokkuð gott. Síðan var farið heim í háttinn.
Dagur 4
Var eiginlega fyrsti alvörudagur ráðstefnunnar og þá kíkti maður aðeins á nokkra fyrirlestra en meirihlutanum af deginum eyddi ég í að kaupa mér föt þar sem Rómverjunum gekk e-ð illa að koma töskunni minni um borð í flugvélina. Um kvöldið var síðan borðað á öðrum mjög fínum veitingastað rétt utan við Búdapest og þar fékk ég mér eitthvað sem kallast Spit-Steak. Þetta er sé smátt sneiddar nautalundir sem er rúllað saman með beikoni og steikt á teini. Þetta er jafn ótrúlega gott og það hljómar og mun ég einhvern tíma prófa þetta á gasaranum heima. Síðan skellti maður sér í háttinn.
Dagur 5
Vaknaði snemma og tók aðeins meira þátt í ráðstefnunni sem annars einkenndist að miklu leyti af málhöltum austantjaldsmönnum í bland við Japani og Ítali sem töluðu mjög lélega ensku. Auk þess hjálpaði 30 stiga hiti og léleg loftræsting ekki til við að halda manni vakandi þannig að maður eyddi mestum tíma í að skoða veggspjöld sem voru e-ð um 1200 á þessu þingi. Um kvöldið fóru síðan Íslendingarnir síðan í óperuna en ég fékk ekki miða svona seint og eyddi því kvöldstundinni á hótelinu. Fór snemma að sofa enda átti ég að kynna posterinn minn daginn eftir.
Dagur 6
Vaknaði tiltölulega snemma og sá þá mér til mikillar undrunar skilaboð frá hótelmóttökunni að farangurinn minn hafði borist kvöldið áður. Fór því og náði mér í föt og mætti á þingið. Gerði aðra tilraun til að hlusta á liðið sem var að halda fyrirlestra þarna en gafst fljótlega upp vegna hita og enskukunnáttuleysis fyrirlesara. Kynnti síðan veggspjaldið mitt um hádegið. Gekk frekar illa til að byrja með enda vissi ég ekki fyrr en ég kom út að ég átti að kynna verkefnið stuttlega á ensku. Þetta er ekki auðvelt að gera óundirbúinn og því fór sem fór. Ég fór í þvílíkan mínus og flest sem ég ætlaði að segja kom vitlaust út úr mér. Síðan hafði fólk tækifæri til að spyrja og þá loksins náði ég mér upp úr skítnum og gat svarað frekar vel fyrir mig. Um kvöldið fórum við Rafn (kennarinn minn) á stærsta markað Búdapest sem er staðsettur í einhverri gamalli lestarstöð að ég held. Keypti þar forláta útskorið tafl o.fl. Síðan fórum við og fengum okkur það sem átti að vera Pork tenderloin (Svínalund) en var eiginlega bara svínamör. Frekar mikill vibbi en ungverskt rauðvín sem við drukkum með var með því betra sem ég hef drukkið en ég man því miður ekki nafnið á því. Síðan skildu leiðir því Rafn átti pantað flug eldsnemma á fimmtudagsmorgninum heim en ég ætlaði að vera áfram fram á laugardagsmorgunn.
Dagur 7
Fór niður í bæ um morguninn og keypti mér e-ð af íþróttafötum. Síðan fór ég og tók veggspjaldið mitt og raunar tvö önnur sem tilheyrðu Rafni niður en þingið kláraðist um hádegi á fimmtudeginum. Síðan fór ég og skoðaði mig um í kringum Þinghús Ungverja sem er hitt aðalsmerki borgarinnar. Glæsileg bygging en eins og flest annað í Búdapest frekar niðurnítt. Það er þó verið að vinna í endurbótum á því og sumir hlutar þess eru bara reglulega fallegir. Gekk síðan góðan hring um Margrétar-eyju sem er í Dóná rétt ofan við Þinghúsið. Droppaði þar inn á fínasta veitingastað um fimmleytið og snæddi nautalundir og bjór sem var lostæti (það var ekki til rauðvín). Síðan var það bara bælið enda ekki gaman að mínu viti að kanna næturlíf einsamall.
Dagur 8
Skoðaði m.a. minnismerki um Gellert nokkurn sem mun vera píslarvottur Búdapest en sagt er að honum hafi verið varpað í eikartunnu niður af hæsta tindi borgarinnar. Þetta er um 120 m há hæð sem gnæfir þverhnípt yfir Dóná. Mjög glæsilegt minnismerki að grunninum til en unglingar Búdapest-borgar hafa tekið að sér að nútímavæða merkið með veggjakroti sem er ekki fallegt. Síðan tók ég annan rúnt um Kastalahverfið og fór snemma í háttinn enda átti ég flug um tíuleytið daginn eftir og var búinn að ákveða að vera snemma í því á flugvöllinn.
Dagur 9
Ég var því kominn upp úr átta á flugvöllinn og gat skoðað mig vel um. Var nú með 2 töskur í stað einnar og merkti nú allt saman vel til að fá örugglega töskurnar alla leið. Fluginu var síðan seinkað um 45 mínútur og þar með var orðið ljóst (eftir því sem ég best vissi að ég mundi missa af vélinni til Íslands þar sem ég átti að lenda um 12:40 að ungverskum tíma í London en vélina að fara þaðan kl. 13:00. Sem betur fer eru Bretar svo sérvitrir að þeir breyta sumartímanum fyrr en aðrar þjóðir og því lenti ég kl. fyrr en ætlað var þ.e. kl. 11:40 að staðartíma í London og hafði því góðan tíma til að spóka mig um Heathrow-flugvöll. Síðan gekk flugið heim eins og í lygasögu, lagði af stað 5 mín á undan áætlun og var lent 15 mín á undan áætlun. Ég fór í fríhöfnina eins og lög gera ráð fyrir. Keypti vín, nammi og body-lotion handa konunni og síðan kom rúsínan í pylsuendanum. Töskurnar mínar komu ekki með vélinni. Þær voru enn í London. Fékk þær reyndar í gær sunnudag, rúmum sólarhring á eftir áætlun en ég hlakka til að láta í mér heyra á skrifstofum Flugleiða á morgunn.

Bottom-line: Ef ykkur langar að fara til Búdapest, farið eftir tíu ár og ekki fljúga með Malev. Ferðin var þrátt fyrir allt sæmileg og fær 2* af 5 mögulegum. Góðar stundir
Bara stutt blogg núna en vonast til að láta gamminn geysa í kveld. Mæli með því - það eru nýjar og yndislegar fréttir af fádæma fákunnáttu Flugleiða í þjónustu við flugfarþega.

6. sep. 2002

Búdapest...
...verdur kvödd i fyrramálið en ég á flug hédan kl. 7:50 ad íslenskum tíma. Það verður flogið í gegnum London á leiðinni heim og það mun standa fremur tæpt ef tafir verða á fluginu því skv. miðanum mínum er aðeins klst.-bið frá lendingu til brottfarar í London. Farangurinn kemst vonandi alla leið í þetta skiptið. Ég hef ákveðið að geyma ferðasöguna þangað til ég kem heim. Hvernig sem það fer þá hlakka ég til að koma heim á skerið.:)

5. sep. 2002

Loksins, loksins...
...er ég búinn að fá farangurinn minn en hann kom til Búdapest seint á aðfaranótt miðvikudagsins. Það voru því ekki nema 5,5 sólarhringar sem það tók hið stórkostlega flugfélag Flugleiðir að koma farangrinum mínum á endastöð. Þeir reyna í örvæntingu sinni að skella skuldinni á ungverska flugfélagið Malev sem reyndar fékk aldrei farangurinn minn í Kaupmannahöfn og því er erfitt að kenna þeim greyjunum um. Farangurinn er alla vega kominn heilu og höldnu en það verða þrumur og eldingar á skrifstofum Flugleiða þegar ég kem heim.

Boltinn
Mínir menn komnir á beinu brautina, Ruud kominn á skorskóna og Keane á leiðinni í bann. Þetta fer allt að koma. Mér sýnist titillinn bara vera í höfn. Annars hlakka ég til að fylgjast með þessu í vetur. Það er aldrei að vita nema þetta verði hörkuvetur í enska boltanum.

Læt þetta duga í bili en tek á þessu þegar ég kem heim!!!

3. sep. 2002

Farangurs saknað!!
Það hefur enn ekkert heyrst frá leppalúðunum í Róm en þar mun farangurinn minn vera niðurkominn. Þeir eru víst eitthvað tregir að senda hann þaðan af því að taskan mín gerir LostLuggage-herbergið á flugvellinum svo fallegt. Það er hins vegar e-ð verið að vinna í þessum málum eins og er. Starfsmennirnir hér á hótelinu sjá alfarið um öll samskipti við flugvallarstarfsmenn enda er enskukunnátta flestra Ungverja afskaplega bágborin og ég mundi líklega ekki komast mikið áleiðis með þetta lið. Annars er mjög undarleg skattastefna hér eftir því sem ég kemst næst því Ungverjar endurgreiða ekki virðisaukaskatt á sumrin. Ég veit nú ekki hvort þetta er staðreynd eða hvort ungi maðurinn í íþróttabúðinnir sem ég verslaði hjá var að hræra í mér.

Boltinn
Eins og flestir vita er ég mikill áhugamaður um enskan og raunar allan fótbolta. Ég hef því passa vel upp á að fylgjast með mínum mönnum síðustu daga. Mér líst ekkert á hann Keane, ég held að hann sé orðinn geðveikur. Það þarf einhver að lækka aðeins í honum rostann. Ferguson hefur ákveðið að kæla hann með því að senda hann í mjaðmaraðgerð - mjög góð ákvörðun. Leyfa Buttaranum að sprikla aðeins, ætli Keane greyið komist nokkuð í liðið aftur?

Búdapest
Mæli eindregið með því að þið skellið ykkur til Búdapest við tækifæri. Borg sem er vert að skoða þrátt fyrir drullu og niðurníðslu.

2. sep. 2002

Enginn farangur enn!
Hef ekki enn fengið farangurinn minn en skilst ad hann hafi endað í Rómarborg og sé væntanlegur þaðan um hádegið í dag. Annars hef ég orðið að ganga í strigaskóm allt sem ég fer, m.a. á einn fínasta veitingastað Búdapest í gær. Smakkaði m.a. gæsalifur sem er alveg rosalega góður matur en kannski ekki eins góður og verðið gefur til kynna

Búdapest...
...er alveg rosalega falleg borg en það eru fyrst og fremst framhliðar húsanna sem eru glæsilegar. Það hefur verið einhver misbrestur á viðhaldi og þrifnaði húsanna hér. Skoðaði kastalahverfið á laugardag, gekk líklega á milli 20-30 km og var gjörsamlega búinn á því enda fór ég í háttin kl. 21 að staðartíma sem mundi vera kl. 19 heima. Þessi kastali og hverfið í kringum hann er eitthvert það glæsilegasta mannvirki sem ég hef séð. Þarna er fjöldinn allur af kirkjum og einhvers konar trúartengdum byggingum ásamt fjölda safna og hallarbygginga. Tók e-ð rúmlega 30 myndir bara í þessu hverfi. Síðan er stefnan sett á að skoða Þinghúsið og Borgargarðinn á fimmtudag og föstudag en þá er þingið sem ég er á búið.

Læt þetta gott heita í bili og reyni að láta heyra betur í mér á morgunn.

31. ágú. 2002

Búdapest
Er mjög falleg í myrkri. Kom á áfangastað um 23:30 í gærkvöldi. Fékk ekki farangurinn með frá Köben en það verður vonandi búið að kippa því í liðinn fyrir kvöldið. Er á leiðinn niður í bæ að redda hreinum nærum, bolum og sokkum. Hitt sleppur vonandi. Síðan er planið að skoða hinn víðfræga kastala sem er staðsettur í Búda sem er hinum megin við Dóná en ég er sem sé í Pest sem mér virðist að sé miklu stærri hluti af Búdapest. Hótelið er mjög fínt stúdentaráðstefnucenter með stórum herbergjum og góðu baðherbergi. Thad vantar reyndar ofna þar og hitinn er skammtaður eins og í gömlu austantjaldslöndunum. Gott í bili.

30. ágú. 2002

Búdapest
Flýg kl. 1315 í dag til Búdapest og verð þar til á laugardaginn 7. sept. Veit ekki hvernig netkaffimenningin er í Búdapest en vonast til að geta bloggað e-ð. Svo er auðvitað að skoða helstu perlur Búdapestar og synda fullur í Dóná (eða ekki). Þetta verður því ekki lengra í dag en það verður rosaleg ferðasaga þegar ég kem heim. Látið ykkur líða vel á meðan.

29. ágú. 2002

Greyið hann Sjonni...
...reynir á aumkunarverðan hátt að svara fyrir þögn sína. Hann gerir sér hins vegar ekki grein fyrir því að nákvæmlega sama röksemdafærsla á við um mína bloggun í sumar þannig að viðurnefnið á mig fellur um sjálft sig. Þá hugsar Sjonni með sér að hann hafi verið þögull miklu skemur. Á þessu tvennu er hins vegar miklu frekar stigsmunur en eðlismunur. Skv. því væri ég t.d. AUMINGJABLOGGARI á meðan Sjonni er bara aumingjabloggari. Síðan reynir hann að réttlæta þetta með því að hann hafi tilkynnt um fjarveru sína. Er þá maður sem segist ætla að fremja morð og gerir það síðan, ekki jafnsekur og sá sem gerir það í hita augnabliksins? Málið er auðvitað það að hann er miklu sekari. Hann ígrundaði brot sitt alvarlega og ætti því að þola þunga refsingu. Svör þín eru aumkunarverð Sigurjón og sæma ekki svo greindum manni. Reyndu nú að færa almennileg rök fyrir máli þínu eða settu skottið á milli lappana og ýlfraðu þig í svefn.

Dizzzzzz dagsinz í boði Geizlans
Dizz dagsins fellur á vesalings konuna sem kom fram í Kastljósinu í gær og kvartaði undan heilbrigðiskerfinu. Hún sagði raunarsögu sína og eiginmanns síns og var hún mjög átakanleg enda hefur þetta fólk verið utangátta í heilbrigðiskerfinu eins og flest fólk sem komið er af léttasta skeiði. Það sem var sorglegast var það að konan virtist engan vegin gera sér grein fyrir að það voru 130 kg sem héngu utan á henni sem orsökuðu heilsubrest hennar miklu frekar en umhirðan um manninn. Hann er sem sé með þann hræðilega sjúkdóm Alzheimer's og þarf mikla umhirðu. Af vorkunn við konunni ætla ég að láta hér staðar numið en tilgangurinn með skrifunum er sá að benda á þá hræðilegu staðreynd að fólk virðist lifa í afneitun um óheilbrigt líferni sitt og kennir alltaf kerfinu um hvernig er komið um fyrir því. Ekki verða svona fólk.

Boltinn
Mínir menn auðvitað að brillera á þriðjudagskvöldið. Ruud og Skærið komnir í gang og Beckurinn ætlar að byrja tímabilið vel líka. Svo er það auðvitað þessi O'Shea sem er snillingur. Annars lítið að frétta úr boltanum annað en Ingvar Jón var eitthvað að blaðra um að Eiður væri á leiðinni til MUFC fyrir 7M punda. Ekki mikill peningur fyrir Eið og þá hefði maður svo sannarlega afsökun til að kaupa sér treyjuna. Annars held ég reyndar að hann mundi bara daga uppi þarna. Ruud og Skerið halda honum utan við liðið og ég held hann meiki ekki að vera ekki í sviðsljósinu.

Búdapest
Keypti mér ferðahandbók um Búdapest í gær og gluggaði aðeins í hana. Líst vel á þetta allt saman. Búdapest er greinilega falleg borg og ég á eftir að hafa nóg að gera í að skoða mig um. Reyni að blogga eitthvað á meðan ég er úti - það hlýtur að vera internetkaffi í Búdapest. Læt þetta duga í bili.

27. ágú. 2002

Góðan daaag!

Dizzzzz dagsinz í boði Geizlans
Ég hef átt erfitt með að kyngja svolitlu hjá ofurverkfræðingnum og tölvunörranum Sjonna. Hann vælir heil ósköp yfir svívirðingum Viðars um að hann sé orðinn aumingjabloggari. Ég get svo sem alveg fallist á rök Sigurjóns að hann hafi tilkynnt fjarveru sína frá siðmenningarvélunum en það sem vefst fyrir mér er hins vegar hvernig Sigurjón greyið hefur getað svarað fyrir sig á tölvupósti án þess að hafa aðgang að tölvu (Ég hefði átt að fara í lögfræði). Kannski er Sjonni búinn að hanna einhverja leið til að senda tölvupóst án tölvu (sem væri þversögn aldarinnar). Æ æ Sjonni. Ertu kannski bara aumingjabloggari eftir allt saman.

Boltinn...
...byrjar að rúlla hjá okkur sunnudagsdrengjunum á sunnudagskvöldið nk. Við erum í sárum eftir að 18% okkar flúðu land en Viðar Páls stakk af til Amríku og Eiki fór til Hafnarfjarðar í Danmörku (Árósar). Hann Eiki greyið er nú reyndar ekki farinn eftir því sem ég best veit en Guðný var auðvitað lík sjálfri sér og reddaði honum íbúð á mettíma. Guðný komst sem sé að í Danmörku í læknisfræði. Til hamingju með það Guðný!! Góðar fréttir fyrir veikt fólk á Íslandi.

Enski boltinn...
... byrjaður að rúlla einnig og mun ég í vetur deila með ykkur réttum viðhorfum um þá ágætu afþreyingu. Þið ættuð því ef þið eruð á villigötum í áliti ykkar á enskri knattspyrnu, en eins og allir vita er sú iðja einungis stunduð á Old Trafford, að fylgjast með þessari síðu í vetur til að læra eitthvað gagnlegt.
Hvað varðar mína menn þá líst mér alveg ótrúlega vel á þennan O'Shea. Hann var bara kóngurinn á móti Chelsea og hafði Jimmy í vasanum á þeim köflum sem ég horfði á þetta. Ferguson ætti bara að róa sig með budduna og leyfa þessum gutta að spreyta sig aðeins.
Annars er einn leikmaður sem ég er farinn að halda alveg yfirnáttúrulega mikið upp á og það er Nicky Butt. Hann var að mínu mati einn af bestu mönnum Englendinga á HM í sumar, hann var algerlega snilldarlegur í desember á síðasta ári þegar United sneri 4 leika ósigurgöngu upp í 7 leikja sigurgöngu og svo er hann líka svona maður sem heldur kjafti í blöðunum. Það er einmitt þetta sem ég fíla við þessa rauðhærðu snillinga á miðjunni hjá United, Scholes og Butt, þeir láta bara verkin tala. Ekkert helvítis væl í blöðin. Þeir bara spila fótbolta. Ég vona eiginlega hálfpartinn að Ferguson missi Keane í leikbann vegna tæklingarinnar á Álfinn Haaland. Síðan væri fínt ef honum tækist ekkert að kaupa fleiri leikmenn og þá fær þessi írski snillingur O'Shea að spreyta sig aðeins. Þetta United-lið vinnur ekkert titilinn ef það er alltaf verið að kaupa einhverjar nýjar prímadonnur. Það er alveg nóg að eiga Beckham, Giggs, Keane og Veron. Snilldarlegasta uppstillingin væri auðvitað: Barthez í markinu, O'Shea og Ferdinand miðverðir, Silvestre og Brown bakverðir, Giggs á vinstri vængnum, Beckham hægra megin, Keane og Veron á miðju og Scholes og Nistelrooy frammi. Síðan væru Butt og Skærið tilbúnir á bekknum ef allt fer til andskotans og redda málunum. Það væri líka allt í lagi að hafa aðra systurina á bekknum ásamt Caroll og Stewart. Síðan væri hægt að hafa guttana til að fylla í skörðin ef einhver meiðist eins og Ferguson gerði þegar allir þessir snillingar voru að byrja.

Menning
Menningarnótt nýliðin hefur verið kollegum mínum Hauki Þór og Hjörleifi hugleikin og mæli ég með þeirra umfjöllun (kann ekki að linka á þetta drasl). Annars finnst mér þeir hafa misst af miklu ef þeir fóru ekki inn í verslun Eymundsson í Austurstræti þennan dag því þar spiluðu snillingarnir í Tríó Briggs. Þetta tríó skipa Árni Grímur bekkjarbróðir minn og vinur ásamt vinum sínum þeim Kolbeini TUMA og Óskari. Ég sá þá reyndar ekki á menningarnótt en var viðstaddur brúðkaup um helgina þar sem þeir léku undir matnum. Þetta var snilld hjá drengjunum. Þrátt fyrir að sums staðar heyrði maður að þeir voru ekki í góðri æfingu þá voru jass-útsetningar þeirra á lögum eins og "Hungry like a Wolf" og "Sísí fríkar út" alger snilld. Ég hef persónulega farið fram á að eignast upptökur með drengjunum en þær eru víst eitthvað af skornum skammti. Ég get hins vegar hlakkað til því ég hef haft spurnir af því að þeir muni spila í öðru brúðkaupi að 3 vikum liðnum og þar er ég einmitt boðinn. Að tónlistinni slepptri er nafn hljómsveitarinnar auðvitað snilld líka. Keep up the good work, drengir.
Sæl aftur!
Fyrsta skipti í marga mánuði sem aumingjabloggarinn bloggar tvo daga í röð. Það er náttúrlega ekki mikið að frétta síðan í gær. Fór reyndar á vakt á barnadeildinni í gær og fór í mínar fyrstu fæðingar (1 keisaraskurð og 1 klukkufæðingu). Síðan var náttúrlega ekkert að gera og maður bara tjillaði fram eftir kvöldi. Síðan bara heim í háttinn. Það er farið að styttast allsvakalega í að ég fari út og ég er orðinn svolítið kvíðinn. Ætlaði að finna heimasíðu hótelsins sem ég gisti á en það er ekki með slíka síðu eftir því sem ég kemst næst. Ætli það sé rennandi vatn þarna? Ef ekki þá safna ég bara úr Dóná og nota það til að baða mig. Nóg er víst af vatni í henni. Annars held ég að ég láti þetta gott heita í dag. Læt kannski bara heyra betur í mér seinni partinn.

26. ágú. 2002

Jæja tryggu lesendur, ég er kominn aftur!

Ég hef verið fremur mikill aumingjabloggari í sumar en hyggst ráða bót á því í vetur. Af mér er svo sem ekki mikið að frétta. Var að byrja í skólanum í dag og mun hefjast handa við að hrekkja börn á barnadeildinni næstu 6-7 vikurnar. Raunar hef ég hugsað mér að gera krakkagreyjunum þann greiða að draga mig í hlé eftir fyrstu vikuna og dvelja í 9 daga í hinni forkunnarfögru borg Búdapest. Ég er búinn að pakka björgunarbát og -vesti og fór á tveggja vikna námskeið í björgun úr vatni hjá slysavarnarskóla sjómanna. (Mamma reddar þessu í gegnum SVFLandsbjörgu) Ég er s.s. að fara til Búdapest að kynna niðurstöður verkefnisins sem ég hef verið að vinna í sl. ár. Síðan eru það auðvitað íbúðamál sem eru í svolítilli biðstöðu þessa daganna vegna mikilla anna hjá mér. Annars verður bloggið í dag tileinkað einni af fjórum mikilvægustu konum í lífi mínu. Sú fyrsta er auðvitað mamma gamla sem verður alltaf besta mamma í heimi, svo er auðvitað Edda Guðrún sem er kona sem ég hitti svona einu sinni í viku ef ég er heppinn með vinnuskemað, sú þriðja er bróðurdóttir mín Unnur Jónsdóttir Bergmann mín sem er krónprinsessan í fjölskyldunni og sú fjórða er hin glænýja og forkunnarfagra (ég meina hún er nú einu sinni Bergmann) Hekla María Óttarsdóttir Bergmann sem kom í heiminn seint í gærkvöldi að íslenskum tíma í IOWA í USA. Það gekk sem sé allt vel hjá Ótta bróður og Björku konunni hans. Þau fá endalausar hamingjuóskir frá Íslandi og ég skora á þau að senda okkur myndir á netinu hið fyrsta.

Læt þetta gott heita í bili og vona að þið látið sjá ykkur reglulega hér í vetur.

P.s. Par helgarinnar er síðan auðvitað Gummi og Ragna sem kinkuðu kolli við altarið í Háteigskirkju á laugardaginn. Glæsilegt brúðkaup hjá glæsilegu pari. Áhugasömum er bent á Brúðkaupsþáttinn Já annan þriðjudag (þ.e. 3. sept.) Til hamingju aftur Gummi og Ragna

28. júl. 2002

Jæja!


Það er eitthvað lítið að gera hérna á slysadeildinni í nótt. Skríllinn greinilega að hvíla lúin bein fyrir helgi verslunarmanna. Raunar er þetta eitt mesta rangnefni á helgi sem ég hef nokkurn tíma heyrt. Það eru bókstaflega allir í fríi nema verslunarmenn (og reyndar heilbrigðisstarfsfólk). Það ætti að kalla einhverju skárra nafni eins og t.d. unglingahelgin í ljósi þess að hver einasti unglingur sem bokku getur borið lætur veigar renna um kverkar sínar (og raunar allan líkamann að utan sem innan). Annars er ég mjög hlynntur þessari helgi. Gott tækifæri til að detta í það með stæl. Æ Æ er ég kannski bara að vinna um "verslunarmannahelgina"? Það verður síðan tekið á því í fyrrnefndri ferð Ferðafélags PAPA CHUCK og félaga sem verður farinn aðra helgi. Þá verður sko stuð.


Á föstudaginn nk. kemur til landsins víkingur mikill og landkönnuður er Gunnar öfugfætti heitir en hann hefur dvalið við sukk og svínarí á meginlandi Evrópu síðastliðna fimm mánuði eða svo. Er ég auðvitað búinn að sjá til þess að hann fá afar hlýlegar gúmmímóttökur á Keflavíkurflugvelli enda maðurinn með eindæmum grunsamlegur í útliti. En til að útskýra viðurnefnið þá hlýst það ekki einungis af því að Gunnar notar vitlausan fót til að sparka í leðurknetti heldur einnig vegna þess að hann getur bara skorað með réttum fæti. Það er því augljóst að himnafaðirinn er að reyna að koma einhverjum skilaboðum til Gunnars sem í linnulausu ölæði sínu skilur ekki upp né niður og reynir ítrekað að nota öfugan fót. Því hefur hann fengið viðurnefnið Gunnar öfugfætti.


Í gær var Viðar nokkur Pálsson með grillveislu og kíkti ég til hans við litla kátínu viðstaddra enda eru félagar mínir úr Garðahreppi farnir að gleyma mér vegna afburðaslakrar þátttöku í hittelsi hópsins síðustu misseri. Viðar hefur þó, eins og sönnum félaga sæmir, ekki gleymt mér og fær hann eina þökk fyrir boðið og aðra fyrir minnið. Eins og allir sem Viðar þekkja vita þá er heilinn í drengum eins og dótið sem hengt er í fjósloft til að flugur límist á það. Maðurinn man bókstaflega allt sem hann les. För U-HU-heilans er heitið vestur á bóginn en hann hyggst leita að fornum ritum í Kaliforníu, nánar tiltekið í Berkley. Þetta er auðvitað þekkt andófsmiðstöð og gaman verður að sjá hvort Viðari tekst ætlunarverk sitt að verða fyrsti hægrisinnaði sagnfræðingur sögunnar þrátt fyrir að læra þar sem mótmæli við allt og alla eru iðulega skipulögð. Annars er eftirsjá í honum Viðari. Nú muna Garðahreppsmenn sjálfsagt ekki eftir mér framar.


Af mér er allt gott að frétta. Mér hefur tekist að narra Eddu til að kaupa með mér íbúð og erum við að fara að þreifa fyrir okkur á kaupmarkaðnum á næstunni. Það verður greiðslumat og pakkinn í byrjun ágúst og síðan byrjum við að leita. Ég er spenntastur fyrir Vesturbænum og Hlíðunum en Edda vil endilega kaupa einhvers staðar út á landi t.d. Grafarvogi. Ætli við förum ekki milliveginn og kaupum í Fossvogi, Smáíbúðahverfi eða Ártúnsholti. Hlakka annars til vetursins. Ég má að öllum líkindum vinna á slysó eins mikið og ég kæri mig um (72 tíma í mánuði) og verður það kærkomið þegar afborganir af íbúð fara að hrannast upp. Síðan eru auðvitað mjög skemmtilegir kúrsar á 5. árinu, m.a. geð-, tauga-, kvenna-, barna- og augnlæknisfræði. Ég er eins og flestir vita svolítið heitur fyrir barnalæknisfræði enda trúi ég að menn eigi að pína þá sem eru í þeirra þyngdar- og/eða stærðarflokki. Síðan hefur sumarið opnað mér nýja sýn á bæklunarskurðlæknisfræði en eins og allir vita hef ég ekki verið spenntur fyrir skurðgreinum hingað til. Annars er mér sagt að ég hafi ekki réttu eiginleikana í þetta fag, menn verða víst að vera jafnsterkir og górilla en ekki meira en tvöfalt greindari. Því miður uppfylli ég bara annað skilyrðið.


Að lokum ætla ég að fagna tveimur yndislegustu fréttum sumarsins. #1 Rio kominn til MUFC, maðurinn er náttúrlega snillingur og hverrar krónu virði. #2 Það er búið að selja greppitrýnið til Blackburn og ætti vinur minn og nafni Magnús Gísli að vera glaður og kátur þessa daganna enda hefur hatað fátt meira um dagana en Andy Cole og Dwight greyið Yorke. Til hamingju Maggi.


KK Gísli BB


P.S. Blökkumennirnir hjá UNITED verða sífellt hvítari sbr. Rio og Wes
Jæja!

Í fyrsta skipti í marga mánuði er stund milli stríða í vinnunni til að blogga svolítið. Af mér er lítið að frétta annað en vinnan, svefninn og sumarið. Boltinn hefur meira að segja setið á hakanum og hef ég aðeins mætt í fimm leiki Ástarinnar í sumar og fengið að líta eitt rautt spjald, þrjú gul (þar af tvö fyrir kjaft) auk þess sem ég hef skorað 3 og lagt upp önnur 3. Þetta hefur þó verið fremur rýrt hjá okkur riddurum Ástarinnar.

Vinnan er fín og í fyrsta skipti síðan ég var í sveit sem ég hef kynnst alvöru vinnu með hamagangi og látum og hinum yndislega þreytusvefni eftir vaktirnar. Þetta er sem sé mjög fínt. Plan sumarsins það er sem eftir er liggur fyrir. Vinna og sumó um verslunarmannahelgi. Ferðaklúbbur Papa Chuck skoðar Austurland helgina þar á eftir. Síðan er vinnuhelgi og loks kemur síðasta vinnutörnin sem líkur föstudaginn 23. ágúst og síðan er brúðkaup þann 24. ágúst hjá Rögnu megabeibi og Gumma körfunörra. Síðan er það bara vinna og svefn inn á milli. Byrja að blogga aftur af krafti í haust.

KK Gísli BB